Fréttablaðið - 07.09.2006, Síða 2
2 7. september 2006 FIMMTUDAGUR
SPURNING DAGSINS
STJÓRNMÁL Fundir í kjördæmis-
ráðum Samfylkingarinnar í
fjórum kjördæmum standa fyrir
dyrum en á þeim verður ákveðið
með hvaða hætti valið verður á
lista flokksins fyrir þingkosning-
arnar í vor.
Fundað verður í Norðaustur-
kjördæmi á sunnudag, í Suðvest-
urkjördæmi miðvikudaginn 13.
september, Norðvesturkjördæmi
laugardaginn 16. september og í
Suðurkjördæmi 17. september.
Fulltrúaráð Samfylkingarfé-
laganna í Reykjavík hefur þegar
samþykkt að halda prófkjör í
nóvember. - bþs
Samfylkingin ræðir framboð:
Aðferðir við val
á lista ákveðnar
MÁLIN RÆDD Samfylkingarmenn á
fundi í júní.
Heiðar, áttu fótum þínum fjör
að launa?
„Nei, ég er mjög sáttur við að Elli
kerling nái mér.“
Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar á
fimmtíu ára starfsafmæli um þessar
mundir, sem Heiðar ætlar ekki að fagna
sérstaklega. Ástæðan er sú að bæði hann
og konan hans eiga stórafmæli á árinu.
DÓMSMÁL Guðni Steinar Snæ-
björnsson, 23 ára gamall Reyk-
víkingur, var í gær dæmdur í
sextán mánaða fangelsi fyrir að
eiga í kynferðislegum samskipt-
um við 14 ára gamla stúlku á
hótelherbergi í Burnley. Frá
þessu greindi fréttavefur breska
ríkisútvarpsins, BBC, í gær.
Lögreglan í Burnley handtók
Guðna á hótelherbergi í febrúar á
þessu ári en hann hafði átt í
samskiptum við stúlkuna í
gegnum veraldarvefinn um
nokkurt skeið. Samkvæmt
fréttum BBC kom hann í tvígang
til Burnley, í september og
desember á síðasta ári, til þess að
heimsækja stúlkuna, og dvaldi
meðal annars á heimili hennar í
september.
Líklegt þykir að hann geti
losnað úr fangelsi innan fárra
mánaða þar sem hann hefur setið
í gæsluvarðhaldi í sjö mánuði. - mh
Karlmaður dæmdur í Burnley:
Fékk sextán
mánaða dóm
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
JAPAN, AP Kiko prinsessa, eiginkona Akishinos yngri
sonar Akihitos Japanskeisara, ól í gær son og er hann
fyrsta sveinbarnið sem fæðist í keisarafjölskyldunni
í fjörtíu ár. Þar með er botninn að mestu dottinn úr
umræðu um það hvort breyta eigi fornum reglum um
ríkiserfðir í Japan, þannig að kona geti erft keisara-
dæmið.
Barnið var tekið með keisaraskurði á sjúkrahúsi í
Tókýó. Drengurinn er þriðji í ríkiserfðaröðinni á eftir
föður sínum og föðurbróður, krónprinsinum Naru-
hito. Hirðin í Tókýó tilkynnti að greint yrði frá nafni
hins nýfædda prins næstkomandi þriðjudag.
Fréttinni af fæðingu sveinsins var tekið með kost-
um og kynjum í Japan, ekki síst meðal íhaldsmanna,
sem mjög höfðu beitt sér gegn hreyfingu þeirra sem
þrýstu á um að ríkiserfðareglunum yrði breytt. Dag-
blöð gáfu út aukablöð sem rifin voru út og sjónvarps-
stöðvar sendu út beint allan daginn af sjúkrahúsinu
og sýndu inni á milli heimildaþætti um foreldrana.
Þau eiga tvær dætur fyrir.
„Þetta er stórkostlegt,“ sagði Junichiro Koizumi
forsætisráðherra er hann var inntur eftir viðbrögð-
um við tíðindunum. „Ekki aðeins keisarafjölskyldan
heldur öll japanska þjóðin hlýtur að hafa fundið til
mikillar gleði,“ sagði hann. - aa
FAGNAÐARFRÉTTIR Tókýóbúar lesa aukablöð sem gefin voru
út til að flytja fréttir af fæðingunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Japanska prinsessan Kiko gekkst undir keisaraskurð:
Fyrsta sveinbarnið í fjörtíu ár
ÁKÆRA Tuttugu og þriggja ára
karlmaður var ákærður fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
líkamsárás í gær.
Hann er ákærður fyrir að
hafa skallað mann í andlitið á
veitingahúsinu Broadway í
byrjun maí í fyrra, með þeim
afleiðingum að fórnarlambið
hlaut bólgur í andliti, nefbrotn-
aði og framtönn í neðri gómi
brotnaði.
Ákæruvaldið krefst þess að
hinn ákærði verði dæmdur til
refsingar. Þá krefst þolandi að
ákærði verði dæmdur til
greiðslu bóta að fjárhæð tæplega
350 þúsund króna. - æþe
Árásarmaður ákærður:
Skallaði mann í
andlitið á bar
STJÓRNMÁL Valtýr Sigurðsson,
forstjóri Fangelsismálastofnunar
ríkisins, verður gestur á fundi
Allsherjarnefndar Alþingis í dag.
Málefni fangelsa
verða til umræðu
á fundinum en
þau hafa verið til
umfjöllunar í
samfélaginu
síðustu daga.
Fulltrúar
Samfylkingar-
innar í nefndinni
óskuðu eftir að Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra sæti fundinn
en varð ekki að þeirri ósk sinni.
Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri
í dómsmálaráðuneytinu, mun hins
vegar sitja hann fyrir hönd
ráðuneytisins. - bþs
Allsherjarnefnd fundar í dag:
Fangelsismála-
stjóri á fundinn
VALTÝR
SIGURÐSSON
VINNUMARKAÐUR Erlendir starfs-
menn hafa breytt vinnutíma og
vinnumenningu í byggingariðnaði
hér á landi. Þorbjörn Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Samiðnar,
segist finna fyrir því að íslenskir
iðnaðarmenn séu orðnir lang-
þreyttir á ástandinu.
„Erlendir starfsmenn koma
hingað til að vinna í þriggja mán-
aða lotu. Þeir vilja vinna mikið því
að þeir fara svo heim í tveggja til
þriggja vikna frí,“ segir Þorbjörn.
„Þetta er farið að trufla og þreyta
Íslendingana því að þeir hætta
ekki í tvær til þrjár vikur.“
Vinnufyrirkomulag erlendra
starfsmanna er leiðandi í vinnu-
menningu á byggingarsvæðum, að
sögn Þorbjörns. „Íslendingarnir
eru yfirmenn og þeir eru bundnir
yfir þessu. Útlendingarnir eru
hins vegar að vinna af sér til að
komast í frí.“
Fyrir nokkrum árum var talið
að vinnutíminn færi að styttast en
síðustu ár hefur það verið þvert á
móti, iðnaðarmenn vinna bæði á
laugardögum og sunnudögum.
Þegar við bætist að hlutfall
erlendra starfsmanna er hátt og
málakunnátta lítil þá hafa sam-
skiptin versnað.
Þorbjörn kveðst finna fyrir
þreytu meðal byggingamannanna
gagnvart lítilli málakunnáttu.
„Vinnustaðir eru ekki bara til að
ná sér í laun, þeir eru líka félags-
legur vettvangur. Þegar menn
geta ekki talað við nema lítinn
hluta af vinnufélögunum hefur
það áhrif,“ segir hann.
Ekki er óalgengt að Íslendingur
sé látinn stjórna fimm til sex
útlendingum. Þorbjörn bendir á að
Íslendingurinn geti stundum ekki
haft nein almenn samskipti við þá
og varla komið til skila hvað á að
gera. Kannski sé einn túlkur á
svæðinu, kannski ekki.
„Það verða ekki þessi félags-
legu tengsl sem eru eðlileg á
vinnustað og við finnum fyrir því.
Samskiptin verða miklu erfiðari,“
segir hann.
Iðnaðarmenn hafa nokkrar
áhyggjur af undirboðum og
atvinnuástandi meðal Íslendinga
þegar verkefnum lýkur og hægist
á bygginga- og framkvæmda-
markaðnum. Þorbjörn segir að
Samiðn líti almennt svo á að
Íslendingar gangi fyrir í vinnu.
„Auðvitað óttast maður að það
verði undirboð þegar samkeppni
um störfin eykst. Það er þekkt
fyrirbæri og getur gerst hér.“
ghs@frettabladid.is
Íslenskir verkamenn
þreyttir á ástandinu
Byggingamarkaðurinn stjórnast af vertíðarhugsun erlendra starfsmanna.
Íslenskir iðnaðarmenn eru þreyttir á því að vinna myrkranna á milli og komast
ekki burt, eins og erlendu starfsmennirnir. Félagsleg tengsl vantar á vinnustaði.
MENNINGIN HEFUR BREYST Ekki er óalgengt að Íslendingur sé látinn stjórna fimm til
sex útlendingum sem oft eru mállausir og vilja vinna myrkranna á milli því að þeir
eru á vertíð. Erlendu starfsmennirnir komast heim í tveggja til þriggja vikna frí en
Íslendingarnir eru bundnir yfir þeim og komast ekki í frí.
FRAMKVÆMDIR Jarðvinnuverktakar
eru uggandi um framtíð sína því
engin stór verkefni í jarðverktöku
á vegum hins opinbera eru í
bígerð. Öll útboð á sviði vegagerð-
ar voru sett á ís í sumar og var það
liður í aðgerðum stjórnvalda til að
slá á verðbólgu.
„Mörgum stórum verkefnum
lýkur fyrripart vetrar eða um og
upp úr áramótum og svo er fátt
framundan,“ segir Árni Jóhanns-
son hjá Samtökum iðnaðarins.
Þetta er í fyrsta sinn í nokkur
ár sem óvissa er meðal jarðvinnu-
verktaka en undanfarin ár hafa
þeir haft vissu fyrir mörgum stór-
um verkefnum. Árni segir vetrar-
kvíða gæta meðal jarðverktaka.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar
miðuðust við að efna ekki til
útboða en áfram er unnið að hönn-
un og undirbúningi verka. Enginn
veit hins vegar hvenær þau verða
boðin út. „Við skiljum þessi sjón-
armið og höfum fengið vissu fyrir
að undirbúningi er haldið áfram.
Það er því ekki spurning hvort,
heldur hvenær verður farið af
stað,“ segir Árni.
Nú um stundir hafa allir jarð-
vinnuverktakar nóg að gera, enda
áhersla lögð á að ljúka mörgum
verkum fyrir veturinn. Árni segir
miklar breytingar hafa orðið í
greininni, fyrirtækin séu orðin
miklu stærri en þau voru og þoli því
litla bið eftir nýjum verkum. - bþs
Jarðvinnuverktakar horfa fram á verkefnaskort vegna útboðsbanns í vegagerð:
Vetrarkvíði hjá jarðverktökum
GRAFIÐ FYRIR NÝJUM VEGI Jarðvinnu-
verktakar hafa nóg að gera þessar
vikurnar en horfa fram á verkefnaskort
eftir áramót.
DÓMSMÁL Tuttugu og átta ára
gamall karlmaður var í gær
dæmdur í sex mánaða fangelsi
fyrir ýmis lögbrot.
Hinn dæmdi á að baki langan
og óslitinn sakaferil sem nær allt
aftur til ársins 1996. Frá þeim
tíma og fram til júní árið 2003
hlaut hann fjórtán sinnum
refsingu fyrir ýmis brot.
Brotin voru framin á tímabilinu
frá því í mars 2004 til júlí 2005.
Hann var sakfelldur fyrir þjófnaði
úr fataverslunum, vörslu fíkni-
efna, fyrir að aka án ökuréttinda,
fyrir að stela eldsneyti af bensín-
stöðvum og líkamsárás. - æþe
Dómur í héraðsdómi:
Síbrotamaður
hlaut 6 mánuðiVinnustaðir eru ekki
bara til að ná sér í laun,
þeir eru líka félagslegur vett-
vangur.
ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI SAMIÐNAR