Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 34
7. september 2006 FIMMTUDAGUR4
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Silki við öll tækifæri
Í Ármúla 42 er til húsa Gallery Kína, sem selur ógrynni
af kínverskum listmunum en einnig fallegan
kínverskan fatnað.
Það er skemmtilegt að litast um í Gallery Kína
enda ótal kínverskir listmunir sem prýða versl-
unina sem vanalega sjást ekki í öðrum íslensk-
um verslunum. Innan um vasana, postúlínið og
handverkin er að finna fallegan fatnað sem
gerður er úr 100% silki og með kínverskum
munstrum. Slæður, kjólar og buxur í stíl eru til
í öllum stærðum og eru flott í bland við
venjulegan fatnað eins og gallabuxur eða
einlita boli.
Buxur og kjóll sem er
bundinn við. Buxurnar
gætu verið flottar undir
svartan kjól og kjóllinn
flottur við gallabuxur.
Hálsmen úr
jarðsteinum. Háls-
menin boða góða
lukku, hamingju
eða eru með
stjörnumerkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Þunnur silkikjóll sem er bæði
flottur við svartar sokkabuxur
og yfir gallabuxur.
Herraföt úr
þykku silki.
Alls kyns silkislæður í
öllum litum og munstrum
fást í Gallery Kína.
Lítil handtaska. Töskurnar fást í
öllum litum og passa vel undir
varalitinn, veskið og símann.
Buddur og litlar
töskur eru í miklu
úrvali í Gallery Kína.
Sumarið senn á enda og skóla-
börn hér á landi sest á skóla-
bekk, sum hver reyndar fyrir
tveimur vikum, eða þau sem
hafa fjögurra daga skólaviku og
eru ekki í skóla fyrir hádegi á
laugardögum eins og þau sem
byrjuðu í þessari viku.
Lífið er að komast í fastar
skorður hér í borg, flestir komn-
ir heim úr fríi. Eitt af því fyrsta
sem margir gera er einmitt að
kaupa skólaföt fyrir þau yngstu
og líklegt er að næsta laugar-
dag verði stærsti verslunardag-
ur haustsins í búðum eins og H
& M, Zara og Gap. Hér er laug-
ardagur aðalverslunardagurinn
en sem betur fer er enn óleyfi-
legt að opna búðir á sunnudög-
um í flestum stórborgum Frakk-
lands. Því verslar almenningur
á laugardögum. Nú þurfa jafnt
grunnskóla- sem menntaskóla-
krakkar að fá nýjar flíkur fyrir
skólann til að vera almennilega
til fara. Í neysluþjóðfélagi
okkar er það nauðsynlegt til að
forðast aðkast og einelti í skól-
um.
Til þess að auðvelda fólki að
finna það sem gleður barnsaug-
að gefa tískublöð eins og Vogue
sérblað með barnavetrartísk-
unni og þar er af mörgu að taka.
Sífellt fleiri tískuhús bjóða upp
á barnaföt fyrir þá sem eru
loðnari um lófana eins og
DNKY, Ralph Lauren, Zadig &
Voltaire svo aðeins örfáir séu
nefndir. Hver þekkir ekki litlu
Prada íþróttaskóna sem hafa
verið seldir um langt skeið eða
röndóttu peysurnar frá Sonia
Rykiel sem eru með sömu rönd-
um fyrir fullorðna? Viðskipta-
vinir tískuhúsanna á Avenue
Montaigne hafa löngum komið
við hjá Dior og skotist svo yfir
til Baby Dior til þess að mæðgur
geti verið eins til fara. Nýjasta
tískuhúsið sem blandar sér í
barnafataviðskiptin er D & G
sem er ódýrari lína Dolce &
Gabbana og er seld í búðinni
efst á Rivoli-götu, rétt fyrir
neðan Concorde-torgið. Sá síð-
asti sem skellir sér í barnaslag-
inn er Roberto Cavalli.
Ekki veit ég hvort börnin
sem eru í lúxusfatnaði frá tísku-
húsunum séu hamingjusamari í
skólanum en önnur. Það er ekki
hægt annað en að spyrja hvers
þau geti vænst seinna meir í líf-
inu. Ég gat ekki annað en hugs-
að um verðgildi hlutanna þegar
ég sá tíu ára stúlku velja sér
Chanel-tösku í búðinni við Cam-
bon-götu, alein meðan móðirin
mátaði föt. Hún hafði þegar
Fendi-tösku á öxlinni og nú átti
að bæta Coco í safnið. Hvað
hefur þessi stúlka lært um
manngildi eða hvað þarf að hafa
fyrir hlutunum í lífinu? Það
verður erfitt að toppa Chanel-
töskuna um tvítugt eftir að hafa
byrjað tíu ára. Það er hætt við
að það geti orðið erfitt að finna
eitthvað spennandi til að gefa
lífinu gildi.
Allt stafrófið er svo ...
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Fallegar
töskur
Frábært úrval
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS!
WWW.GRAS.IS
Til að virka grennri er gott að fara
í buxur með víðum skálmum og
vera í topp sem liggur laust að.
Forðast skal þröng pils og buxur.
Þverröndótt virkar ekki vel en
langröndótt þeim mun betur.
Til að hylja maga er gott að
nota síða jakka, ekki of víða. Forð-
ast skal flíkur með stórum vösum
framan á, eða annað skraut sem
dregur athyglina að maganum.
Til að draga athygli frá miklum
mjöðmum og lærum er gott að
fara í pils með hringsniði. Hér er
einnig gott að forðast flíkur sem
eru með vasa eða áberandi skraut
yfir mjaðmir og læri. Það getur
verið sniðugt að vera í flegnu, það
dregur athyglina að andlitinu.
Góð ráð fyrir
kvöldið
Svartur er mjög grennandi litur og alltaf
flottur.