Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 74
7. september 2006 FIMMTUDAGUR38
menning@frettabladid.is
!
Fræðslustarf Listasafns
Reykjavíkur verður eflt í
vetur en þar er stefnt að
aukinni fræðslu fyrir alla
aldurshópa.
Ólöf Kristín Sigurðardóttir,
deildarstjóri fræðsludeildar lista-
safnsins, útskýrir að fræðslustarf-
ið sé veigamikill hluti af starfsemi
Listasafns Reykjavíkur en í vetur
verður þeim hluta gert enn hærra
undir höfði. „Við höfum nýlokið
við að senda efni í skólana til kynn-
ingar fyrir kennara en á milli 10
og 12 þúsund nemendur heim-
sækja safnið á hverju ári. Við
erum líka sífellt að reyna að auka
þjónustu við almenna safngesti.“
Listasafn Reykjavíkur starfar í
þremur húsum en núverandi
stefna safnsins er að aðgreina þau
með skýrari hætti en áður. „Nú
stendur yfir sýningarröð á Kjar-
valsstöðum sem ætluð er yngstu
kynslóðinni. Í norðursal hússins
eru sýningar á íslenskri myndlist
þar sem allt umhverfi er gert
aðgengilegt börnum,“ segir Ólöf
Kristín og útskýrir að þrisvar
verði skipt um verk þar fram til
áramóta. „Þessi sýning er sett upp
í tengslum við bókina Skoðum
myndlist sem kom út hjá Máli og
menningu í vor en sýningunni
hefur verið mjög vel tekið. Á
sunnudögum bjóðum við upp á
sérstaka leiðsögn eða fjölskyldu-
stund á sýningunni kl. 14 þar sem
safnakennari leiðir umræðu um
verkin og hjálpar til við að opna
þann heim sem þar er að finna.“
Ólöf bendir á að sýningin á
Kjarvalsstöðum sé fremur hugsuð
sem fjölskyldusýning en fyrir
hópa. Safnið hefur tekið á móti
hópnum frá yngstu bekkjum
grunnskólanna og leikskólum
borgarinnar sem hafa notið sýn-
ingarinnar. „Það er ákveðin þörf
fyrir afþreyingu fyrir fjölskyld-
urnar inni á söfnunum - ef krökk-
unum leiðist þá leiðist öllum. Við
reynum að koma til móts við þær
þarfir, til dæmis með þessari sýn-
ingu.“ Ólöf bendir á að í Ásmund-
arsafni hafi safnið líka leitast við
að vekja forvitnilegar samræður
um myndlist en í sýningarskrá
sem fylgir sýningunni eru spurn-
ingar sem foreldrar geta nýtt sér
sem útgangspunkta í samræðum
við yngri gesti hennar.
Önnur nýbreytni sem Lista-
safnið hefur boðið upp á í ár er
leiðsögn fyrir ferðamenn á ensku.
Áður fyrr var aðeins hægt að
panta slíka þjónustu en nú er boðið
upp á ókeypis leiðsögn á Kjarvals-
stöðum kl. 15 á fimmtudögum. „Þá
er áherslan yfirleitt á íslenska
myndlist í eldri kantinum,“ segir
Ólöf og bætir við að erlendir gest-
ir séu iðulega mjög forvitnir um
íslenska list.
Boðið er upp á leiðsögn fyrir
almenna safngesti bæði í Hafnar-
húsinu við Tryggvagötu og á Kjar-
valsstöðum kl. 15 á sunnudögum
en Ólöf bendir á að í tengslum við
sýninguna Pakkhús postulanna
sem nýlega var opnuð þar séu
einnig hádegisleiðsagnir í boði
fjóra föstudaga á meðan á sýning-
unni stendur. Listamennirnir sem
eiga verk á sýningunni taka líka
virkan þátt í þessum leiðsögnum
og ennfremur verður boðið upp á
gjörninga í húsinu auk málþings
um sýninguna þann 7. október
næstkomandi.
Einn falinn fjársjóður leynist
líka í Hafnarhúsinu en það er
bókasafn hússins. „Bókasafnið
hefur byggst upp í gegnum árin en
þar er að finna bækur sem keypt-
ar hafa verið vegna einstaka sýn-
inga auk bóka um íslenska lista-
sögu. Við erum líka í samstarfi við
erlend söfn og fáum nýjustu sýn-
ingarskrár sendar hingað. Safnið
stendur öllum opið og þar er
vinnuaðstaða. Við setjum fram
bækur sem tengjast sýningum
safnsins hverju sinni, bæði hér í
Hafnarhúsinu og á Kjarvalsstöð-
um og reynum þannig að gera ítar-
efni um þær sem aðgengilegast.“
Verið er að vinna að því að skrá
bækurnar inn í kerfi Borgarbóka-
safns Reykjavíkur svo hægt sé að
fá þær með millisafnaláni. Nú
hafa líka verið settar upp sérstak-
ar bókahillur vegna sýningarinnar
Pakkhús postulanna þar sem hver
listamaður hefur sína hillu með
bókum sem haft hafa áhrif á við-
komandi en þar geta gestir glöggv-
að sig á störfum þeirra. „Hér er
líka er búið að koma upp lessvæði
þar sem fólk getur setið í hring -
eins og í heitum potti - og skeg-
grætt listina ef það vill.“
Nánari upplýsingar um starf
Listasafns Reykjavíkur og
fræðsludeildina má finna á heima-
síðunni listasafnreykjavikur.is.
kristrun@frettabladid.is
FYRIR YNGSTU UNNENDUR MYNDLISTAR
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir fræð-
andi sýningaröð fyrir börn um íslenska
myndlist í tengslum við bókin Skoðum
myndlist.
Fræðsla og faldir fjársjóðir
ÓLÖF KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR Öll fjölskyldan getur fræðst um myndlist hjá Listasafni Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jazzkvartett Sunnu Gunnlaugs-
dóttur heldur tónleika á Café
Rósenberg í Lækjargötu kl. 21 í
kvöld. Hljómsveitina skipa auk
Sunnu, sem leikur á wurlitzer-raf-
píanó, þeir Jóel Pálsson saxófón-
leikari, Þorgrímur Jónsson bassa-
leikari og Scott McLemore á
trommur. Á efnisskránni eru tón-
smíðar eftir Ornette Coleman
og Cörlu Bley auk laga eftir hljóm-
sveitarmeðlimi.
Sunna mun leika í góðum
félagsskap á Jazzhátíð í Reykjavík
í lok mánaðarins en á spilar hún
ásamt Tore Brunborg saxófónleik-
ara og kvartett sínum. - khh
SUNNA GUNNLAUGSDÓTTIR Í góðum
félagsskap á Café Rosenberg og Jazz-
hátíð í Reykjavík.
Djass á Cafe Rósenberg
Vetrarstarfi Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands var þjófstartað á hér á
síðum Fréttablaðsins í gær og eru
lesendur beðnir velvirðingar á
því - einkum þeir sem mættu upp
í verslunarmiðstöðina Smáralind
í gær og komu þar að tómum
kofanum. Hið rétta er að óvenju-
legir upphafstónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í Smáralind
fara fram kl. 17 í dag.
Fyrirhuguðum útitónleikum
sveitarinnar á Austurvelli var
með snarheitum breytt í innitón-
leika á skjólbetri stað vegna
slakra veðurskilyrða það af er
vikunnar. Það rignir sjaldnar í
Smáralindinni, svo dýrmætum
hljóðfærum sveitarinnar er borg-
ið og mögulega fá færri kvef en
af volki niðri í bæ.
Aðalstjórnandi sveitarinnar,
Rumon Gamba, mun í dag stýra
sveitinni, sem leika mun glæsileg
verk úr heimi tónbókmenntanna.
Er þetta því kjörið tækifæri fyrir
forvitna tónlistarunnendur að
hlýða á frábæran flutning á
óvenjulegum tónleikastað. Í
Smáralindinni verður leikið eitt-
hvað fyrir alla, gestum gefst til
dæmis kostur á að heyra ung-
verska dansa Brahms og Vínar-
tóna eftir Strauss auk kunnug-
legra stefja Jóns Múla Árnasonar,
Alfreðs Clausen og Sigvalda
Kaldalóns og Hróðmars Sigur-
björnssonar.
Á morgun, föstudag, verður
sveitin síðan komin á sinn heima-
völl í Háskólabíói en þá mun
norska sópransöngkonan Solveig
Kringelborn syngja með sveit-
inni. Kringelborn hefur undan-
farin misseri heillað hlustendur
með hæfileikum sínum og er hún
orðin gríðarlega eftirsótt í óperu-
og tónleikasölum heimsins. Túlk-
un hennar á verkum norrænna
skálda hefur verið hampað tölu-
vert og því bíða margir komu
hennar með eftirvæntingu.
Solveig Kringelborn syngur
einnig á sérstökum tónleikum
næstkomandi laugardag en tón-
leikar þeir eru til styrktar verk-
efninu „Lífið kallar“ sem er sam-
starfsverkefni FL Group, BUGL
og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Verkefnið miðar að því að styrkja
fjölskyldur barna og unglinga
sem eiga við andlega erfiðleika að
etja en verkefnið leggur sérstaka
áherslu á að aðstoða sjúklinga og
aðstandendur við mótun nýrrar
lífssýnar í bráðameðferð og ekki
síst að henni lokinni, þar sem lífs-
gleðin er höfð að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um vetr-
arstarf Sinfóníuhljómsveitar
Íslands má finna á heimasíðunni
www.sinfonia.is. - khh
Klassík í Smáralind
VETRARSTARF AÐ HEFJAST Sinfóníuhljómsveitin tekur landsmenn með trompi og
treður upp í Smáralind. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þýskir fræðimenn segjast hafa fundið tvö handrit
skrifuð af tónskáldinu Jóhannesi Sebastían Bach.
Fréttavefur BBC greinir frá því að handrit þessi
séu afrit af orgeltónlist Dietrich Buxtehude og
Jóhanns Adam Reinken sem Bach er talinn hafa
gert þegar hann var 15 ára gamall.
Haft er eftir Bach-sérfræðingunum Michael Maul
og Peter Wollny sem starfa í skjalasafni Bachs í
Leipzig að handritin varpi nýju ljósi á frama og
hæfileika hins unga tónskálds en skjölin staðfesta
að hann hafi verið nemandi orgelleikarans Georg
Böhm. Fræðingarnir segja handritin allsérstök og
þótt þau beri brag af kennaranum vitni þau einn-
ig um metnað og hæfileika nemandans.
Handritin fundust í kjölfar bruna í bókasafni
greifynjunnar Önnu Amalíu en kastali kenndur
við hana í héraðinu Weimar í Austur-Þýskalandi
brann fyrir tveimur árum og eyðilögðust þá rúm-
lega 50 þúsund bækur. Skjalasafn í hvelfingu
safnsins bjargaðist þó og þar með blessunarlega
Bach-handritin einnig.
JÓHANN SEBASTÍAN BACH Eru glósur orgelnemandans
unga komnar í leitirnar?
Bach-handrit í leitirnar
> Ekki missa af...
kvikmyndinni Börn sem verður
frumsýnd á laugardaginn. Leik-
hópurinn úr Vesturporti sýnir
sig og sannar á hvíta tjaldinu í
styrkri stjórn Ragnars Braga-
sonar.
fönksveitinni Jagúar á Barnum
við Laugaveg í kvöld.
sýningu dansleikhúsdrottningar-
innar Pinu Bausch í Borgar-
leikhúsinu um miðjan mánuð-
inn. Einstakt tækifæri til að sjá
sviðslist á heimsmælikvarða.
Kl. 21.00
Stórsveit Benna Hemm Hemm
leikur á Café Amsterdam ásamt
Retro Stefson. Tónleikarnir eru þeir
síðustu í tónleikaröð Smekkleysu og
The Reykjavík Grapevine en fyrir
áhugasama má einnig benda á að
sveitin leikur í húsakynnum Smekk-
leysu á Klapparstíg 27, kl. 17.