Fréttablaðið - 07.09.2006, Síða 31
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Steinunn Bergsteinsdóttir er mikil
blómakona og hefur síðastliðin ár rækt-
að orkídeur heima hjá sér með góðum
árangri.
„Ég keypti mér orkídeu fyrir nokkrum árum
og svo tók hún upp á því að blómstra eitt
vorið. Þá varð ég svo montin að ég fór og
keypti mér fleiri,“ segir Steinunn en
orkídeur þurfa sérstaka umönnun til að þær
blómstri enda vaxa þær yfirleitt bara í regn-
skógum. „Í skóginum hanga þær utan á
trjánum og fá óbeint sólarljós í gegnum
laufþykknið. Þannig að þær þurfa alltaf
birtu en takmarkað sólarljós og góðan raka.
Upp á birtuna að gera er best að hafa
þær í glærum blómapottum og láta þær
standa innan við gluggann þannig að þær
fái hæfilegt sólarljós. Svo verður að passa
að þær séu alltaf rakar. Þær mega ekki
standa í vatni heldur er best að vökva þær
smávegis á hverjum degi og úða þær,“ segir
Steinunn. Orkídeurnar blómstra ekki á vet-
urna enda er ekki nægileg birta þá en þær
bæta það margfalt upp á sumrin. „Elsta
orkídean mín blómstraði þvílíkt í fyrra. Það
komu sextíu blóm og þetta var hreinlega
eins og foss. Blómin eru svo afskaplega fal-
leg og standa svo lengi sem mér finnst mik-
ill kostur.
Blóm eru líka svo heimilisleg þó maður
megi nú ekki drukkna í þeim. Blómarækt
kallar nefnilega á mikið viðhald og stúss ef
þetta á að vera eitthvað fallegt,“ segir Stein-
unn en nú er hún að fara að flytja og þarf að
búa jafn vel um blómin í nýja húsnæðinu.
„Hér er ég með þakglugga sem gerir stof-
una svo bjarta og hentuga fyrir ræktun á
blómstrandi blómum. Ég vona bara að
orkídeunum mínum eigi eftir að líða jafn
vel í nýja húsnæðinu.“ erlabjorg@frettabladid.is
Sérstakt augnayndi
Steinunn Bergsteinsdóttir með einni blómstrandi orkídeunni sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
7. september, 250. dagur
ársins 2006.
Skartgripaverslanir Tiffany &
co hafa tilkynnt að tekjur hafi
lækkað töluvert á
öðrum ársfjórðungi
2006. Þrátt fyrir
niðursveifluna eru
forsvarsmenn fyrir-
tækisins bjartsýnir
á framtíðina, meðal
annars þar sem til
stendur að fjölga verslunum og
kynna nýjar vörur til sögunnar.
Föndurstofan var nýverið flutt á
neðri hæð Síðumúla 15 og var
opnuð 4. september síðastliðinn.
Nú er opið 13.00 - 18.00 virka
daga og laugardaga 12.00-15.00.
Frá og með 14. september verður
opið á fimmtudagskvöldum til kl.
21.00. Þar verður mikið af nýjum
námskeiðum í boði, meðal ann-
ars kortagerð, geisladiskasaumur
og grænlenskur perlusaumur. Sjá
www.fondurstofan.net.
Bandarísk rannsókn hefur leitt
í ljós að hjónaband dregur úr
þunglyndi. Svo virðist sem þung-
lyndissjúklingar þurfi á tilfinninga-
legri nánd að halda sem fæst í
hjónabandinu. Niðurstöðurnar
komu á óvart þar sem búist var
við að rannsóknin sýndi fram á
hið gagnstæða. Þetta kemur frá á
www.persona.is.
ALLT HITT
[ TÍSKA HEILSA HEIMILI ]
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 6.27 13.26 20.23
Akureyri 6.07 13.10 20.12
Tískukóngurinn Fuller
SIMON FULLER SKAPAR SÉR NAFN Í TÍSKUBRANSANUM
Þáttaframleiðandinn Simon Fuller og tískufrömuðurinn Rol-
and Mouret tilkynntu nýverið að þeir hygðust opna saman
nýja hönnunarskrifstofu undir heitinu 19Rm. Fuller sagði í
viðtali að þeir félagar sæju fram á endalausa möguleika með
hið nýja fyrirtæki. Sé haft í huga hversu vel Fuller hefur tekist
upp í skemmtanaiðnaðinum með þáttum á borð við Ameri-
can Idol og Pop Idol má vænta mikils af þeim í framtíðinni.
Simon Fuller framleiddi American Idol þættina.
BLÓMASKREYTINGAR
Blómaþorpið er spennandi
verkstæði þar sem útbúnar
eru fallegar og sérstakar
blómaskreytingar.
HEIMILI 10
FRJÁLSLEGUR OG VANDAÐUR
KVENFATNAÐUR
Fatnaður frá þýska merkinu
Hayman fæst nú í Anas í
Hafnarfirði.
TÍSKA 2