Fréttablaðið - 31.10.2006, Síða 10
10 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
VInnUmARkAÐUR Pólverjar sem
koma skyndilega og óhugsað til
Íslands hafa oft verið atvinnulaus-
ir lengi í Póllandi. Maria Jolanta
Polanska, túlkur í Alþjóðahúsi,
segir að þetta fólk hafi ekki mikla
skólagöngu að baki, sé frá litlum
þorpum og komi hingað í leit að
betra lífi.
Pólsk slúðurblöð eiga sinn þátt
í því að æsa leikinn með skrifum
um betra líf og kjör í útlöndum.
Maria segist hafa lesið viðtal við
Pólverja sem hafi búið hér í tvö ár
og hafi lýst því hvernig hann byggi
í 140 fermetra húsnæði, æki fínum
bíl og færi tvisvar á ári til sólar-
landa.
„Það er satt að hann býr í svona
húsnæði og ekur á svona bíl en
hann gleymdi að segja það að
konan sem hann giftist hér er búin
að búa hér í fimmtán ár og var
rosalega dugleg og var alltaf í þre-
faldri vinnu. En fólk sem les þetta
trúir svona sögum og veit ekki að
á bak við húsnæðið er 25 eða 40
ára lán,“ segir hún.
Dæmi eru um að fólk komi með
ferðatöskurnar sínar beint í
Alþjóðahús frá flugvellinum og
spyrji um vinnu og húsnæði, að
sögn Mariu, og hér eru líka Pól-
verjar sem hafa verið plataðir
hingað gegnum starfsmannaleig-
ur á fölskum forsendum.
„Oft eru Pólverjar Pólverjum
verstir,“ segir Maria Jolanta. - ghs
Maria Jolanta Polanska
Pólskur túlkur í Alþjóðahúsi segir Pólverja oft Pólverjum versta:
Slúðurblöð gefa falska mynd
Hér með er auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2006 er lokið á alla
lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003 sem og
þeirra sem lagt er á í samræmi við VIII. - XIV. kafla tilvitnaðra laga. Jafnframt
er lokið álagningu á lögaðila, sem skattskyldir eru af fjármagnstekjum
samkvæmt ákvæði 4. mgr. 71. gr. laganna.
Álagningarskrár með gjöldum lögaðila verða lagðar fram í öllum
skattumdæmum í dag þriðjudaginn 31. október 2006. Skrárnar liggja frammi
til sýnis á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra
eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju sveitarfélagi dagana 31. október
til 14. nóvember n.k. að báðum dögum meðtöldum.
Skattseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda 2006 samkvæmt ofangreindu
skulu hafa borist skattstjóra eigi síðar en fimmtudaginn 30. nóvember 2006.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003,
um tekjuskatt.
31. október 2006.
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson
álagningu
Auglýsing
um opinberra gjalda
lögaðila á árinu 2006
alPaka-afkvæMi Þessi litli alpa-
kakálfur, Matyi, kom í heiminn í
dýragarði í Búdapest í Ungverjalandi
í síðustu viku. fréttaBlaðið/ap
ÖRYGGISmÁL Í undirbúningi eru
breytingar á reglugerð, þar sem
meðal annars verður tekið á aukn-
um öryggisbún-
aði í leigubif-
reiðum, að sögn
Sturlu Böðvars-
sonar sam-
gönguráðherra.
Fréttablaðið
hefur að undan-
förnu fjallað um
stöðu þessara
mála. Í ljós
hefur komið að
lágmarksbúnaður er í bílum á
sumum stöðvum en alls enginn hjá
öðrum. Tveir leigubílstjórar sögðu
frá reynslu sinni úr starfi í blaðinu
á laugardag. Þar kom fram að þeir
hefðu ítrekað orðið fyrir áreiti og
jafnvel líkamlegu ofbeldi í starfi.
„Ég hef ekki enn fengið tillögu
að breytingum á öryggisbúnaði í
leigubifreiðum, en að henni er
unnið nú,“ sagði Sturla. Hann sagði
enn fremur að fyrirhugaður væri
fundur ráðuneytisins með for-
svarsmönnum leigubifreiðastjóra
og bifreiðastöðvanna.
„Það er nauðsynlegt að á þessu
máli verði tekið og því hraðað,“
segir ráðherra, sem kveðst jafn-
framt leggja áherslu á að málið
verði unnið í góðri samvinnu þeirra
sem það varði. „Þess verður von-
andi ekki langt að bíða að tillögurn-
ar liggi fyrir.“ - jss
sturla
böðvarsson
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra:
Öryggi í leigubílum
verður aukið
UmhVeRfISmÁL Allt mælir gegn
áframhaldandi stóriðjustefnu og
verði henni haldið áfram mun hún
hafa skaðleg og hamlandi áhrif á
aðra framtíðarmöguleika, atvinnu-
vegi og lífsgæði í landinu, að mati
félagsmanna Framtíðarlandsins.
Á haustþingi félagsins, sem fram
fór á sunnudag-
inn, voru reifað-
ir ýmsir val-
möguleikar við
nefnda stóriðju-
stefnu. Á það
var bent að
stjórnvöld ættu
fremur að
leggja grunn að
lífvænlegu sam-
félagi en að
færa litlum
bæjarfélögum
heilu álverin.
Margt annað
en umhverfis-
mál bar á góma
á fundinum.
Rögnvaldur
Sæmundsson,
forstöðumaður
frumkvöðla-
seturs Háskól-
ans í Reykjavík, ræddi til að mynda
um frumkvöðlastarfsemi og sagði
í því samhengi að á Íslandi skorti
efnahagslegt jafnvægi. Í hring-
borðsumræðum tók Edda Rós
Karlsdóttir hjá greiningardeild
Landsbanka undir þetta og sagði
að það eina sem væri stöðugt við
núverandi gengisstefnu og „krónu-
lufsuna“ væri óstöðugleikinn.
Ljóst má því vera að félagar í
Framtíðarlandinu horfa ekki á
umhverfismálin ein, heldur á
marga þætti þjóðlífsins. Það er að
skilja á talsmönnum samtakanna
að þau muni beita sér í stjórnmál-
um í vetur. „Það er tilfinning
margra að pólitískur kúltúr á
Íslandi sé ónýt-
ur, því tal og
aðgerðir stjórn-
málamanna slá
ekki lengur í
takt við hjart-
slátt þjóðarinn-
ar. Þess vegna
vill Framtíðar-
landið vera
umræðuvett-
vangur og búa
til pólitík upp á
nýtt,“ segir Sig-
ríður Þorgeirs-
dóttir heim-
spekingur.
Í pallborðs-
umræðum tók
einnig til máls
Baltasar Kor-
mákur leikstjóri
og ræddu þau
Edda Rós ásamt
Skúla Skúlasyni, rektor Háskólans
á Hólum, meðal annars um byggða-
mál. Benti Edda Rós þar á að það
sem Íslendingar kölluðu byggða-
vanda væri einungis það að fólk
flytti frá einum stað til annars
vegna mismikilla atvinnutæki-
færa. Þetta kallaðist hjá öðrum
þjóðum flutningar og framþróun,
sagði Edda. klemens@frettabladid.is
Á eldfjalli
hugmynda
Það sem Íslendingar kalla byggðavanda nefna aðrar
þjóðir framþróun. Efnahagslegan stöðugleika frekar
en álver. Framtíðarlandið er komið í pólitík.
andri snær Magnason andri hélt fyrsta fyrirlesturinn á haustþingi framtíðar-
landsins er fram fór á Hótel Nordica um helgina. ræddi hann þar stóriðjustefnu og
áætlanir um að gera Ísland að mesta álframleiðslulandi heims. fréttaBlaðið/vilHelM
Edda rós
karlsdóttir
Pólitísk-
ur kúltúr
á Íslandi [er]
ónýtur.
sigríður
ÞorgEirsdóttir
HeiMspekiNgUr
rögnvaldur
sæMundsson
DÓmSmÁL Rúmlega tvítugur karl-
maður var í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær dæmdur í
hálfs árs fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás með öxi á
bílastæði í Mjódd í apríl
síðastliðnum.
Fjórir mánuðir af dómnum
falla niður að þremur árum
liðnum ef maðurinn heldur
skilorð. Við ákvörðun refsingar-
innar var tekið tillit til þess að
þetta er fyrsta brot mannsins.
Manninum var einnig gert að
greiða fórnarlambi árásarinnar
miskabætur og að greiða
sakarkostnað.
- ifv
Dæmdur í hálfs árs fangelsi:
Réðst á mann
með öxi
StJÓRnmÁL Steinunn Þóra Árna-
dóttir gefur kost á sér í fjórða
sæti í
sameiginlegu
forvali
Vinstrihreyf-
ingarinnar -
græns
framboðs
fyrir Suðvest-
ur- og Reykja-
víkurkjör-
dæmin.
Steinunn
Þóra sat í stjórn Reykjavíkur-
félags Vinstri grænna árin 2003
til 2005. Sat hún í nokkur ár í
miðnefnd Samtaka herstöðva-
andstæðinga. Þá hefur hún gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
MS-félag Íslendinga og Öryrkja-
bandalagið, þar sem hún situr nú í
framkvæmdastjórn. - sdg
Steinunn Þóra Árnadóttir:
Gefur kost á sér
í fjórða sætið
stEinunn Þóra
Árnadóttir