Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 50
 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR34 menning@frettabladid.is ! Kl. 20.00Pjetur Hafstein Lárusson er gestur á Skáldaspírukvöldi Lafleur útgáfunnar í Iðuhúsinu við Lækjargötu. Hann les bæði ljóð og sögur, meðal annars úr nýrri ljóðabók sinni: Vökuborg og draums sem nýverið kom út hjá bókaútgáfunni Sölku. >Dustaðurykiðaf... Gömlu Megasarplötunum. Hyllingar- diskurinn Pældu í því sem pælandi er í er nýkominn út en á honum taka ýmsir listamenn lög Megasar með sínu lagi en þeirra á meðal eru Hjálmar, KK, Baggalútur, Trabant og Rúnar Júlíusson. Þá er kominn út diskur þar sem Magga Stína syngur lög Megasar og er því enginn skortur á Megasarlögum í nýjum útgáfum en engu að síður er tilvalið að hlusta á meistarann sjálfan í og með. Í kvöld verður sýning á þýsku kvikmyndinni Sophie Scholl – Síðustu dagarnir eftir Marc Rothemund í sal Þjóðarbókhlöðunnar og hefst kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Myndin var fram- leidd 2005 og hefur ekki verið sýnd hér á landi. Í henni segir af örlögum Sophie Scholl en hún starfaði í andspyrnuhópnum Hvítu rósinni í München. Í febrúar 1943 tók hópurinn að dreifa flugritum gegn stríðinu og var Sophie handtekin af Gestapo. Hún var yfirheyrð af hörku en sagði aldrei til félaga sinna og neitaði sök. Saga Hvítu rósarinnar var einstök hetjusaga og kvikmyndin markaði nokkur skil í þýskri kvikmyndagerð enda mikilsmetin: fékk tvo birni á Berlínarhátíðinni, var tilnefnd til Óskars- verðlauna, vann Bodil í Danmörku, tilnefnd til fjögurra Evrópuverðlauna og vann tvö þeirra, svo nokkuð sé nefnt af þeim 23 tilnefningum og 15 verðlaunum sem myndin aflaði. Hér er á ferðinni þýsk stórmynd um merkilegt efni og er það til marks um slaka dreifingu kvikmynd á Íslandi að hún skuli ekki vera sett í venjulegar sýningar. Hvíta rósin Sophie Scholl Finnski píanóleikarinn Olli Mustonen hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hann leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í dag en á efnisskrá kvöldsins eru tveir píanó- konsertar Beethovens og sinfónía eftir Brahms. Olli Mustonen vakti fyrst athygli fyrir óhefðbundna túlkun sína á gömlum meistaraverkum og vann meðal annars Gramophone-verð- launin fyrir bestu hljóðfæra- upptöku ársins 1992. Hann hefur gefið út nokkra hljómdiska, þar á meðal einleiksverk eftir Beet- hoven, verk Shostakovich og Bachs auk þess að ferðast víða og halda tónleika bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Mustonen er fæddur í Helsinki en hann hóf nám í píanóleik, semballeik og tón- smíðum fimm ára gamall. Frí- stundir sínar notar hann til að semja sína eigin tónlist. Frum- sköpun er veigamikill þáttur í list Mustonens en hann leggur áherslu á að hverjir og einir tónleikar eigi að bera í sér ferskleika frum- flutnings. Hann þykir einstak- lega frumlegur og djarfur túlk- andi með frábæra tækni. Gerður var góður rómur af ein- leikstónleikum Mustonen á Lista- hátíð árið 2000 en þá lék hann einnig verk Beethovens og Brahms. Verkin á efnisskránni nú eru tveir fyrstu píanókonsertar Beethovens sem stimpluðu tón- skáldið inn í tónlistarlíf Vínar- borgar á sínum tíma. Sá fyrri kinkar kolli til tónsmíða Mozarts en gefur líka fyrirheit um seinni tíma dramatík í verkum Beet- hovens. Þá leikur Sinfóníuhljóm- sveitin þriðju sinfóníu Johannesar Brahms sem var frumflutt í Vínar- borg árið 1883 og fékk frábærar viðtökur enda er hún sögð búa yfir einstakri blöndu af ákefð, dulúð og angurværum trega. Tónleikarnir fara að venju fram í Háskólabíói og hefjast kl. 19.30. Hljómsveitarstjóri er Rumon Gamba. -khh Frumlegurfinnskurtúlkandi DjarfurtúlkanDisemlegguráhersluáferskleikafrumflutningsinsFinnski píanóleikarinn Olli Mustonen leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. FRéttABlAðið/GvA síðustuDagarJulia Jentsch í hlutverki hinnar hug- rökku og trúuðu stúlku sem tók upp baráttu gegn herstjórninni. Nýlega var tilkynnt að Deutsche Bank ætti fimmtíu þúsund myndlistarverk: íslensku bank- arnir eiga eitthvað færri og flest eru eftir íslenska lista- menn, en um helgina var opnuð sýning í aðalsal gamla Lands- bankans í Austurstræti á verk- um þriggja færeyskra meist- ara. Um er að ræða skiptisýningar á verkum Landsbanka Íslands og Færeyjabanka en fyrirtæki þessi fagna stórafmæli á þessu ári – Færeyjabanki aldarafmæli og Landsbankinn 120 ára afmæli. Sú hugmynd að halda sameiginlega upp á stórafmælin með þessum hætti varð til á fundum forsvarsmanna bank- anna seint á síðasta ári. Á sýn- ingunum eru verk eftir þrjá listamenn frá hvoru landi sem allir eru verðugir fulltrúar síns lands og sinnar kynslóðar en sýningarnar bera yfirskriftina „Maður, náttúra og mynd“. Í Færeyjabanka verða sýnd verk í eigu Landsbankans eftir listamennina Eggert Pétursson, Kristján Davíðsson og Jóhannes S. Kjarval. Í Landsbankanum í Austur- stræti verða til sýnis glæsileg verk í eigu Færeyjabanka eftir færeysku listamennina Ingálv av Reyni, Sámal Joensen-Miki- nes og Zacharias Heinesen. Hinn fyrstnefndi er talinn meðal fremstu módernista á Norður- löndunum en Færeyjarbanki á nokkur verka hans sem ekki hafa áður verið sýnd utan eyj- anna. Mikines var einn fyrsti nútímalegi túlkandi lifnaðar- hátta á sínum heimaslóðum og miðla verk hans fjölbreytileika þeirra með eftirminnilegum hætti. Heinesen er Íslendingum að góðu kunnur enda hefur hann oftsinnis ferðast hingað. Hann hefur unnið af mikill leikni, bæði í hlutlægum og óhlutlæg- um stíl og þykir sýna sérstakt næmi fyrir litum og hrynjandi forma. Sýningarnar standa yfir til 30. nóvember og verða öllum opnar á afgreiðslutíma bank- anna. Á völdum dögum á sýningar- tímanum er ráðgert að bjóða upp á leiðsögn listfræðings og verður það auglýst síðar. -pbb Færeyskir meistarar færeyskmynDlistFæreyskur dans, 1961 eftir Sámal Joensen-Mikines. Vi› sty›jum Steinunni Valdísi ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.