Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 12
12 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR Villtur asni Þessi villti asni var afskaplega kátur þegar ljósmyndara bar að garði í gær. Hann leit dagsins ljós í dýragarði í Köln í Þýskalandi í síðustu viku, en enn er ekki búið að gefa honum nafn. Fréttablaðið/ap DAnmöRk Danskir vísindamenn hafa hafið viðamikla rannsókn á brúnrottum sem lifa í skólpræsum meðal notaðra smokka, matarafganga, saurs og annars úrgangs. Ástæðan er sú að í raun er afar fátt vitað um þessa fjölmenn- estu tegund spendýra í veröldinni, segir á fréttavef Politiken. „Það er yfirleitt óskaplega mörg- um spurningum ósvarað varðandi skólprottur sem gerir það erfiðara að berjast gegn þeim á sem skilvirk- astan hátt,“ sagði Ann-Charlotte Heiberg frá Meindýrarannsóknar- stofu Danmerkur. Til dæmis er lítið vitað um það hvar þær halda sig í skólprörunum og hversu oft þær koma upp úr þeim. Brúnrottur eru plága um allan heim, aðallega vegna þess að þær eru sjúkdómsberar, en einnig því þær naga göt á skólpræsakerfi borga. Þess vegna reyna borgaryfir- völd víða að eitra fyrir þeim, en vandinn er að sífellt fleiri rottur virðast þróa með sér ónæmi fyrir eitrinu. Því óttast heilbrigðisyfirvöld að rottufaraldur sé í vændum, nema nýjar aðferðir verði fundnar til að stemma stigu við dýrunum. Vísinda- menn í Lyngby, Rødovre og Kaup- mannahöfn fanga því þessa dagana villtar rottur og setja sendi í hnakka þeirra, svo hægt sé að fylgjast með hegðun þeirra í jörðu niðri. - smk Rottugangur rannsakaður í Kaupmannahöfn: Sendir settur í hnakka dýranna rottugangur Danskir vísindamenn hafa hafið viðamikla rannsókn á skólp- ræsarottum. Fréttablaðið/ap HestAR „Það hefur greinilega ekki gengið að hestamenn noti þann öryggisbúnað sem er nauðsynlegur án þess að um það gildi ákveðin lög og ég tel því spurningu hvort ekki þurfi að setja einhverjar reglur um þessa 25 til 30 þúsund hestamenn líkt og ökumenn þurfa að una,“ sagði Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, á fundi um öryggismál í hestamennsku sem fram fór í liðinni viku. Fundurinn var haldinn í tilefni af hrinu alvarlegra hestaslysa að undanförnu. Ólafur vill gera það að skyldu að hestamenn séu með reiðhjálma og endurskinsmerki líkt og ökumenn eru með bílbelti. Á fundinum velti Ólafur einnig upp spurningunni hvort reiðmenn þyrftu að þreyta próf til að fá leyfi til að sitja hest en það mæltist ekki vel fyrir á fundinum. Nauðsyn hjálmanotkunar var tíðrædd á fundinum en Þórir B. Kolbeinsson, heilsugæslulæknir á Hellu, kynnti niðurstöður nokkurra erlendra rannsókna sem gerðar hafa verið um slys tengd hestum. Kom þar fram að meiri líkur eru á alvarlegum áverka í hestamennsku en öðrum íþróttum, þar á meðal mótorhjólum. Þórir telur nauðsyn- legt að hestamenn væru ávallt með hjálma, einnig á jörðu niðri, því enda þótt flest slys verði við fall af hestbaki slasist margir við umhirðu hrossa, til dæmis þegar hestur sparkar frá sér. Þá hafi flestir af þeim knöpum sem deyja af völdum höfuðáverka erlendis ekki notað reiðhjálm. - sgi Fundur Vátryggingafélags Íslands um öryggismál í hestamennsku: Vilja að notkun hjálma verði lögbundin Hlustað af atHygli Þórir b. Kol- beinsson heilsugæslulæknir á Hellu og Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi. Það er okkur sönn ánægja að geta nú boðið hina frábæru C-Class bíla á einstaklega góðum kjörum. Með hverjum bíl fylgir vandað golfsett frá PING af gerðinni G5 sem verður sérstaklega mælt og sniðið að notandanum. PING er líkt og Mercedes-Benz þekkt fyrir framúrskarandi gæði. Þetta er einstakt tækifæri og gildir aðeins um mjög takmarkaðan fjölda af bílum sem við eigum tilbúna til sýnis og afhendingar strax. Það er því ekki eftir neinu að bíða, komdu og skoðaðu Mercedes-Benz C-Class og nýttu þér þetta frábæra tilboð. C-Class á einstöku verði og PING golfsett í kaupbæti H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Verð frá 3.750.000 kr. ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz bifreiða á Íslandi. Hestamenn í landssVeit Hestamenn ríða frá Selfossi í leirubakka í landssveit. Fréttablaðið/GVa LöGReGLUmÁL Ekið var á hross á Þverárfjallsvegi, milli Sauðár- króks og Blönduóss, síðdegis á sunnudaginn. Ökumaðurinn slasaðist ekki en bíllinn skemmdist mikið og er óökufær. Eftir áreksturinn hafði ökumaðurinn samband við lögregluna á Blönduósi sem kom fljótlega á vettvang. Hrossið, sem maðurinn keyrði á, hafði í gær enn ekki fundist þrátt fyrir ítrekaða leit lögregl- unnar. Lögreglan telur að hrossið hafi ekki meiðst en frekari rannsókn stendur nú yfir. - ifv Keyrði á hross: Ekið á hross á Þverárfjallsvegi tÆknI Forstjóri Heklu afhenti Sorpu sex EcoFuel-metangasbíla fyrir helgi. Starfsmenn Sorpu munu nota bílana í ýmislegt snatt. Með bílunum verða metanbílar á götum Reykjavíkur orðnir sextíu talsins. Um 50 sinnum ódýrara er að aka um á metanbíl- um en bensínbílum og þeir menga margfalt minna. - ifv Metangasbílar í borginni: Sorpa fær sex metangasbíla Knútur g. HauKsson Forstjóri Heklu afhenti fulltrúum Sorpu sex bíla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.