Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 16
 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR16 „Það er allt gott að frétta og allt í gangi,“ segir Helgi Svavar Helgason, tromm- ari. „Við strákarnir í Flís erum að spila hér Í Manchester í kvöld og síðan förum við til Hollands og spilum í Amster- dam og þar í kring næstu þrjú kvöldin. Þá komum við aðeins heim og fáum okkur svið, en síðan er það New York þar sem við spilum í partíi hjá heimsfrægum töskuframleiðanda. Við, þetta viðkunnanlega djasstríó, keyrum um á svakalegum pimp- mobile sem hæfði betur hiphop- urum og þegar við komum frá New York fer okkur örugglega aðeins að langa í að lappa upp á bílinn. Við æfum aldrei heldur pimpum bara bílinn okkar. Í lok nóvember er það svo smá spilirí í London og þaðan í tveggja vikna túr um Japan.“ Helgi neitar því ekki að Flísmenn séu farnir að leggja drög að næstu plötu, en sú síðasta með útgáfum af lögum Hauks Morthens gekk mjög vel. Hann vill þó ekkert segja um næstu plötu. „Hins vegar vorum við í Helmusi und Dalla (Helgi og Davíð Þór Jónsson) að gefa út fyrstu plötuna okkar í gær. Ég bind miklar vonir við að þessi plata geri mig ríkan.“ Í persónulegu deildinni segir Helgi það standa upp úr að Ólafía Kristín dóttir hans hafi orðið eins árs í síðustu viku. „Elsa konan mín bakaði þessa forláta Hello Kitty-köku og Árný móður- systir hennar gerði þjóðlega brauðtertu með majonesi og alles.“ Hvað er að frétta? HELgi SVAVAr HELgASoN troMMAri Spilar fyrir töskuframleiðanda nær og fjær „orðrétt“ Framtíð Íslands í húfi „völdin eru ekki aðalfókusinn, heldur málefnið, framtíð Íslands er í húfi og að okkar mati stöndum við á krossgötu.“ MArÍA ELLiNgSEN, StJÓrNArFor- MAður FrAMtÍðArLANDSiNS, SEM ViLL KoMASt upp úr HJÓL- FöruM StÓriðJuStEFNuNNAr. Morgunblaðið 30. október. Er hagstætt skatta- umhverfi á tunglinu? „Það er ekkert í dönskum skattalögum sem segir að einhver munur sé á að greiða arð til Íslands, Dan- merkur, Lúxemborgar eða bara til tunglsins.“ Sigurður EiNArSSoN, StJÓrN- ArForMAður Kb bANKA, uM ÁSAKANir EKStrA bLADEt. fréttablaðið 30. október. „Danskir fjölmiðlar og sumir í þarlendu viðskiptalífi virðast sjá ofsjónum yfir velgengni Íslendinga í viðskiptum,“ segir Jónas Haraldsson, fréttastjóri Viðskiptablaðsins, um þær ásakanir sem íslenska fjármagnsútrásin verður nú fyrir í Ekstra bladet. „öfund í bland við illgirni hefur einkennt umfjöllunina. Samantekt Extrablaðsins er í beinu framhaldi þess. Engin dulúð ríkir um fjármögnun, hún hefur verið sótt á alþjóðlegan lánamarkað þar sem kjör hafa verið góð. útsjónarsemi Íslendinga hefur einfaldlega verið meiri en frænda okkar, svo ekki sé minnst á áræði. Vitaskuld nýta menn sér þau færi sem gefast innan settra reglna. Ekki hefur verið sýnt fram á lögbrot. Fyrsta grein Extrablaðsins sneri að mestu að Kaupþingi banka. Stjórnarformaður bankans hefur látið hafa eftir sér að umfjöllun blaðsins sé fáránleg og ásakanir út í hött. Svo er að sjá sem markaðurinn sé sama sinnis. Álag á skuldatryggingar Kaupþings banka á eftirmarkaði hefur staðið í stað þrátt fyrir umfjöllunina í Danmörku. greiningardeildir og miðlarar í Evrópu virðast lítið mark taka á Extrablaðinu. Krónan veiktist að vísu lítillega á föstudag vegna umræðunnar en hefur styrkst á ný. Langtímaáhrif virðast því lítil.“ SJónARhóll Ásakanir ekstra bLaDet Lítil langtímaáhri Jónas HaraLDsson Fréttastjóri Viðskipta- blaðsins n Hafinn er útflutningur á írskri mold til bandaríkjanna þar sem írskættaðir bandaríkjamenn kaupa moldina til að hafa „írsku fósturjörðina“ með sér í gröfina. Hver 340 gramma poki með „ekta írskri mold“ kostar 15 dali og er meiningin að úr pokanum sé sturt- að ofan á líkkistur á leið niður í banda- ríska jörð. Salan hefur farið fram úr björtustu vonum og þegar hefur selst mold fyrir milljón dali. Markaðurinn er stór því um 40 milljónir bandaríkjamanna rekja ættir sínar til Írlands. ÍRSk molD: mokASt út Um helgina varð Freyja Sigurðardóttir Íslands- meistari í Icefitness-keppn- inni. Hún sigraði örugglega, fékk 39 stig, þrettán stigum meira en sú sem varð í öðru sæti. Freyja er mikil fitness-drottning því hún hefur sigrað í öllum Íslandsmeistaramótum sem hún hefur tekið þátt í, árin 1999, 2000, 2001, 2002 og 2004, auk þess að sigra í ár. Þá hefur hún líka sigrað í fjórum bikarmótum, en bikar- og Íslandsmeistaramótið eru helstu fitness-mótin á Íslandi. „Ég var í fimleikum til 17 ára aldurs og fór í þetta þegar mig vantaði eitthvað eftir fimleikana. Ég keppti ekki árið 2003 því ég var ólétt og gat ekki keppt og í fyrra var ég að undirbúa það að flytja til Noregs,“ segir Freyja. Hún býr í Álasundi með knattspyrnukapp- anum Haraldi Frey Guðmunds- syni, sem hefur verið að gera góða hluti í vörninni með Álasundslið- inu. Freyja segist aldrei hafa verið í eins góðu formi og núna og var sex kílóum léttari nú en árið 2004. Meðal þess sem hún afrekaði á Icefitness var að taka 80 armbeygjur á 1.14 mínútu og hékk í næstum 3 mínútur í „fitnessgreip“, sem henni finnst reyndar leiðinlegasta greinin. „Fyrst og fremst þarf maður bara að vera ógeðslega agaður. Ég er náttúrlega með góðan grunn, til dæmis er ég hepp- in að hafa fæðst með góða líkams- byggingu, og hef alltaf hreyft mig mikið. Tólf vikum áður byrjar maður að fókusera á keppnina. Það er alveg bannað að svindla því smá svindl á hverjum degi hleður utan á sig og er orðið eins og stór máltíð á föstu- degi. Ég neita því ekki að maður er oft þreyttur á þessu á tímabil- inu, en nokkrum dögum fyrir mót fyllist maður eldmóði og sér fram á að þetta er að verða búið.“ Freyja getur þó enn ekki slappað af þótt hún hafi rúllað Icefitness- keppninni upp því bikarmótið fer fram á laugardaginn. „Það er frá- bært að hafa þessi tvö mót svona í röð,“ segir Freyja, sem æfir nú á fullu og ætlar ekki að gefa neitt eftir á laugardaginn. gunnarh@frettabladid.is Alveg bannað að svindla freyJa Með bikarinn Ásamt Jóhanni pétri Hilmarssyni sem sigraði í karlaflokki. n Byrjaði að fókusera á keppnina tólf vikum áður. n Morgunmat- ur: Einn og hálfur desi- lítri af hafra- mjöli með rúsínum í vatni. n Matur: Ókryddaður kjúkling- ur og fiskur – „Það eru margir fótboltaáhugamennirnir í Ála- sundi á sjónum svo við höfum góðan aðgang að ferskum og góðum fiski“ – ávextir og græn- meti „eins og þarf“, hrísgrjón og kartöflur. n Laugardagar eru nammidagar. Fékk sér þann mat sem henni langar í og smá súkkulaði. Sakn- aði íslenska súkkulaðisins. n Saknaði líka íslenska skyrsins og reyndi að búa sér til „skyr“ með því að mixa saman prótein- dufti og fitulitlu jógúrti. Ekki eins gott! n Í ræktina tvisvar á dag. Brennsla á morgnana í 45- 50 mínútur. Hlaupabretti eða hjól með allt á fullu í iPodinum. Byrjaði á brennsluteknói en varð fljótlega þreytt á því og endaði í Bítlun- um, U2 og Elvis. n Styrktaræfingar seinni part- inn. Skipti líkamanum upp í sex hluta – fætur, brjóstvöðva, tví- höfða, þríhöfða, bak og axlir – og tók 6-7 æfingar á hvern hluta fyrir sig eftir dögum. n Fimm vikum fyrir mót bætt- ust við æfingar fyrir keppnina, til dæmis armbeygjur og fitn- essgreip. n Síðustu dagana fyrir mót: Til að vera sem skornust þarf að minnka vatnsdrykkju. Bara einn lítra tveim dögum fyrir mót, hálfan lítra daginn áður og ekkert vatn á keppnisdaginn. n Fór í 5-6 ljósatíma þegar stytt- ist í keppni og fékk hjálp frá mömmu sinni við að pensla 4-5 umferðir af brúnkukremi á sig dagana fyrir mót. F A B R IK A N 2 0 0 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.