Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 56
40 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is FótboltI Fréttablaðið greindi í gær frá sláandi mun sem er á greiðsl- um til handa A-landsliði karla og kvenna. Strákarnir í karlaliðinu fá greiddar 40.000 krónur fyrir hvert verkefni í dagpeningagreiðslur sem og árangurstengdar greiðsl- ur. Þeir hafa verið að fá 100.000 krónur fyrir sigurleiki en munu hækka í 120-150.000 krónur í núverandi undankeppni. Stelpurnar í A-landsliði kvenna fá einnig dagpeningagreiðslur en eingöngu í útileikjum. Síðasta dag- peningagreiðsla var 8.700 krónur sem gerði rúmlega 2.000 krónur á dag. Engir dagpeningar eru greiddir fyrir heimaleiki eins og áður segir þótt stelpurnar verði fyrir sama vinnutapi í heimaleikj- um og í útileikjum. Engar árangurstengdar greiðslur eru til handa stúlkunum og hafa aldrei verið. Fréttablaðið setti sig í samband við Eggert Magnússon, formann KSÍ, í gær og spurði hann út í málið. „Ég hef ekkert um málið að segja á þessu stigi. Ég er staddur erlendis og hef ekki séð þessa grein. Við munum samt væntan- lega svara henni með yfirlýsingu,“ sagði Eggert en af hverju gefur hann ekki kost á viðtali? „Af því ég hef engan áhuga á að gefa ykkur viðtal að svo stöddu. Menn vita ekki alveg hvað þeir eru að gera,“ sagði Eggert og lagði síðan á. Yfirlýsingin kom seinni partinn í gær og má lesa hér að neðan. Þess má geta að Eggerti hefur verið hampað fyrir að auka veg og vanda kvennaknattspyrnunnar og hann fékk til að mynda „Bleika steininn“ frá Femínistafélagi Íslands árið 2004. Fréttablaðið hafði einnig sam- band við Kjartan Daníelsson, for- mann landsliðsnefndar kvenna, og óskaði eftir viðbrögðum við þess- um mun á greiðslum. „Það er framkvæmdastjórnin sem ákveður þessar greiðslur en ekki við,“ sagði Kjartan en telur hann þessar greiðslur sanngjarn- ar? „Hvað er sanngjarnt í þessu? Auðvitað vildum við fá meira af peningum inn í kvennaboltann en megnið af tekjunum kemur í gegn- um karlaboltann og kvenfólkið hefur notið góðs af því.“ Aðspurður sagði Kjartan að landsliðsnefndin hefði ekkert gert til þess að rétta þennan launamun en mun nefndin beita sér fyrir því að stelpurnar fái hærri greiðslur í ljósi nýjustu upplýsinga? „Við munum alveg örugglega gera eitthvað,“ sagði Kjartan en hvað ætlar nefndin nákvæmlega að gera? „Það get ég ekki sagt þér núna.“ henry@frettabladid.is Við munum gera eitthvað Kjartan Daníelsson, formaður landsliðsnefndar kvenna, segir að nefndin muni örugglega gera eitthvað varðandi muninn á greiðslum til handa karla- og kvennalandsliði Íslands. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, neitaði að tjá sig. eggert magnússon Vildi ekki tjá sig um launamál landsliðsmanna Íslands í knatt- spyrnu. Hann hafnaði beiðni um viðtal og sagðist mundu svara með yfirlýsingu. fréttablaðið/gVa > Viktor Bjarki fer utan á fimmtudag Knattspyrnukappinn Viktor bjarki arnarsson hefur náð samningum við norska liðið lilleström um kaup og kjör en félagið keypti hann af Víkingi á dögunum. Viktor bjarki fer utan á fimmtudag þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun. að henni lokinni verður skrifað undir samninga. lilleström vill fá Viktor bjarka strax út í kjölfarið og svo hann geti spilað með liðinu í „royal league” þar sem bestu félög Skandinavíu etja kappi sín á milli. FótboltI BBC greindi frá því í gær að framtíð West Ham yrði ráðinn í þessari viku en eins og kunnugt er berjast tveir hópar um völdin í félaginu og fyrir öðrum hópnum fer Eggert Magn- ússon, fomaður KSÍ. Samkvæmt BBC standa Egg- ert og félagar höllum fæti í bar- áttunni við Íranann Kia Joorab- chian sem er dyggilega studdur af Ísraelanum Eli Papouchaldo. Alan Pardew, knattspyrnu- stjóri félagsins, hefur sagt að óvissan í kringum félagið skili sér í slökum leik á vellinum en lítið hefur gengið hjá West Ham það sem af er vetri, „Því fyrr sem við fáum botn í þessi mál, þeim mun betra fyrir alla. Ég hef séð það frá fyrstu hendi hversu skemmandi þessi óvissa er. Það verður allt mikið betra þegar búið er að ganga frá öllum þessum málum,“ sagði Pardew við BBC í gær. - hbg Niðurstaða væntanleg hjá West Ham: Eggert Magnússon að missa af West Ham kia jooraBchian Stendur samkvæmt breskum fjölmiðlum betur en Eggert Magnússon í baráttunni um West Ham. fréttablaðið/gEtty iMagES FótboltI Knattspyrnusamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna fréttar Fréttablaðsins um greiðslur sambandsins til landsliðskarla og -kvenna. Hún er svohljóðandi: „Vegna fréttar Fréttablaðsins um greiðslur til leikmanna A landsliða Íslands í knattspyrnu vill KSÍ koma eftirfarandi á fram- færi: KSÍ hefur markvisst byggt upp kvennaknattspyrnu á liðnum áratug þrátt fyrir að litlar sem engar tekjur hafi verið af þeirri starfsemi. Þær litlu tekjur sem þó hafa fengist hafa verið í formi styrkja sem hvergi nærri hafa staðið undir rekstrinum. Kostn- aður við rekstur A landsliðs kvenna og þriggja yngri landsliða kvenna er að mestu greiddur af tekjum A landsliðs karla. Þetta er sá raunveruleiki sem við blasir. Tekjur A landsliðs karla byggjast á áhuga almennings á leikjum liðsins og réttindagreiðslum vegna sjónvarpsútsendinga frá þeim, mest erlendis frá. KSÍ hefur átt mikið og gott samstarf á vettvangi knatt- spyrnunnar við systursamtök sín á Norðurlöndum og þar er þess- um málum svipað farið og hér á landi. KSÍ hefur reynt að jafna stöðu leikmanna í kvennalandsliðum sl. áratug gagnvart karlalandsliðum - enn er þó langt í land að fullur jöfnuður náist þegar kemur að A landsliðum. Það er verkefni kom- andi ára að bæta þar úr.“ Yfirlýsing frá KSÍ vegna fréttar Fréttablaðsins um greiðslur til landsliðsmanna: Tekjur af karlalandsliðinu greiða kostnað kvennanna Marel baldvinsson var í tapliði Molde í norsku úrvalsdeildinni en þá tapaði liðið fyrir Veigar Páli gunnarssyni og félögum í Stabæk, 8-0. Veigar skoraði tvö markanna og var að sögn Marels óstöðvandi. „Hann svoleiðis rúllaði vörninni okkar upp,“ sagði Marel. Hann segist sjaldan hafa orðið vitni að öðru eins. „ég hef aldrei séð jafn mikla yfirspilun í fótboltaleik í efstu deild. Þeir hreinlega keyrðu yfir okkur,“ sagði hann. Molde þurfti að vinna leikinn til að eiga enn möguleika á að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. „Við lentum undir snemma í leiknum. Við börðumst þó áfram og áttum til að mynda skalla í slá en þegar þeir skora öðru sinni þá sá maður að menn koðnuðu niður þá og þegar. Menn áttuðu sig á því hvað væri að gerast, að það væri engin leið úr þessu og það átti sér stað andlegt hrun.“ Eftir um hálftíma leik var markverði Molde vikið af velli með rautt spjald og Marel í kjölfarið skipt út af fyrir varamarkvörð liðsins. „Eftir á að hyggja var það bara ágætt því það var nógu vont að horfa á leikinn af hliðarlínunni. Nú erum við fallnir nema við vinnum næsta leik með 20 mörkum og hitt liðið tapi og er það auðvitað ekkert að fara að gerast. Það var því frekar þung stemning á æfingu í dag þar sem menn þurftu að horfast í augu við fallið.“ Marel hefur aldrei tekist á við þennan veruleika áður, en segist ætla að taka þessu eins og maður. „ég sé alls ekki eftir því að hafa komið hingað. ég á ekki von á öðru en að efna minn tveggja ára samning.“ Sem fyrr segir átti Veigar Páll stórleik og segir Marel að hann njóti mikillar virðingar meðal norskra knattspyrnumanna. „Margir hafa kosið hann leikmann ársins í deildinni. Það er ekki nóg með að hann skori heilan helling heldur leggur hann upp heilan haug af mörkum.“ Marel hlaut gullskóinn í ár en hann skor- aði ellefu mörk með blikum áður en hann var seldur til Noregs. Hann var einnig valinn í lið ársins. „Það var góður bónus á tímabilinu og alltaf gaman þegar manni hlotnast álíka heiður.“ MarEl baldViNSSoN: Var Í byrjuNarliði MoldE SEM taPaði 8-0 Í fyrradag EN fallið blaSir Við Sjaldan séð aðra eins útreið í efstu deild
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.