Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 31. október 2006 5 Konur sem ala börn eftir fimmtugt eru bæði andlega og tilfinningalega jafn hæfar mæður og yngri konur. Þetta er niðurstaða rannsóknar vísindamanna við Kaliforníu- háskóla sem leiddi einnig í ljós að eldri konum er hvorki hætt- ara við heilsubresti né heldur eru þær stressaðri en þær ungu. Rannsóknin náði til hundrað og fimmtíu kvenna sem gengust undir tæknifrjóvgun á árunum 1992 til 2004. Allar konurnar höfðu fengið egg frá annarri konu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að sú ákvörðun stjórnvalda í nokkrum löndum að setja aldurstakmark á gervi- frjóvganir byggi á fordómum. Aðrir vísindamenn benda hins vegar á að það séu ekki mæð- urnar sem áhyggjum valda í þessu samhengi heldur börnin sem horfi fram á að missa mæður sínar á unglingsaldri. Nú í júlí varð sextíu og tveggja ára barnasálfræðingur elsta kona Bretlands til að ala barn en elsta kona heims til þessa er talin vera Adriana Iliescy frá Rúmeníu sem ól dótturina Elísu Maríu í fyrra, þá sextíu og sex ára að aldri. „Gamlar“ mæður jafn góðar Patricia Rashbrook 62 ára og maður hennar eignuðust barn saman í júlí. Margar konur fá verki í bak, hnakka og herðar af völdum brjóstahaldara. Þetta sýna niðurstöður kannana sem North American Spine Society og nærfataframleiðandinn Maidenform gerðu á yfir tvö þúsund konum nýlega. 59 prósent kvennanna sögðu brjóstahaldarann ávallt valda verkjum. Konurnar sögðu að hlírinn á brjóstahöldurunum væri algengasta vandamálið, en einnig krækjan aftan á brjóstahaldaranum, spangir og skálastærð. 39 pró- sent kvennanna sögðust aldrei eiga í vand- ræðum með brjóstahaldarana á meðan tvö prósent þeirra notuðu ekki brjóstahaldara. Könnunin var gerð í þeim tilgangi að athuga verki í baki, herðum og í hnakka eins og kemur fram á WebMD. Mestu máli skiptir að vera í réttum brjóstahaldara sem hentar vaxtalagi hverrar konu og velja rétta stærð. Flestar sérverslanir með brjóstahaldara og nærföt bjóða upp á mælingu og ráðgjöf. Bakverkir af völdum brjóstahaldara Rannsóknir sýna að pör sem eiga í erfiðleikum með að eign- ast barn eru þrisvar sinnum líklegri til að eignast barn með einhverfu eða heilalömun. Heilsufarsleg vandamál foreldra, sem öftruðu því að þeir gætu átt börn saman, virðast auka hættuna á að börn þeirra verði fötluð. Rannsókn gerð í Kaliforníu- háskóla á fjögur þúsund konum og börnum þeirra, sem voru allt að sex ára gömul, sýndi að þeir sem eiga við frjósemisvandamál að stríða, kljást oft við hjartasjúkdóma og sykursýki. Líkur á vandkvæð- um á meðgöngu og við fæðingu eru sömuleiðis álitnar meiri hjá þessum hópi. Sýnt þótti að líkur á fötlun eins og seinþroska, einhverfu, heila- lömun, krabbameini og hvers kyns áföllum væru 2,7 sinnum hærri í hópi barna þeirra kvenna sem áttu við frjósemisvanda að etja. Einhverfa ein og sér var fjórum sinnum líklegri til að skjóta upp kollinum hjá börnum þeirra. Þá reyndist einnig vægari fötl- un, eins og athyglisbrestur, náms- örðugleikar eða sjón- og heyrnar- skerðing fjörutíu prósentum algengari hjá börnum foreldra sem leitað höfðu sér aðstoðar til að eignast barn. Frá þessu er greint á fréttavef BBC, www.bbc.co.uk. - rve Tengsl milli ófrjósemi og einhverfu Seinþroski barna er tengdur við frjósemis- vandamál foreldra. Samfélagið, félag framhaldsnema við félagsvísindadeild Háskóla Íslands, stendur fyrir hádegisfundi 1. nóvember milli klukkan 12 og 13. Ber fundurinn yfirskriftina Nauðganir á Íslandi: Hvað getum við gert? Pallborðsumræður verða með þátt- töku fulltrúa allra stjórnmálaflokk- anna. Fundurinn er öllum opinn. fundur } Nauðganir á Íslandi Lille Collection
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.