Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 31.10.2006, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 31. október 2006 13 BAnDARíkIn, AP George Bush Bandaríkja- forseti segir Bandaríkin ekki stunda pyntingar á föngum, þrátt fyrir orð vara- forsetans Dick Cheney þess efnis að það geti hjálpað til við yfirheyrslur að „dýfa föngunum í vatn“. Þetta var haft eftir varaforsetanum í útvarpsviðtali á dögunum. Mannréttindasamtök hafa kvartað undan athugasemdum varaforsetans og segja hann lýsa yfir stuðningi við þekkta pyntinga- tækni, þar sem vatni er hellt yfir höfuð þolandans svo hann telji sig vera að drukkna. Hvíta húsið gaf á föstudaginn út yfirlýsingu þess efnis að Cheney hefði ekki verið að tala um þessa pyntingatækni. „Þessi þjóð stundar ekki pyntingar og mun ekki beita þeim,“ segir Bush Bandaríkjaforseti. „Við munum yfirheyra fólk sem er handtekið á vígvellinum til að ganga úr skugga um hvort það hefur upplýsingar sem gagnast fyrir varnir þessa lands.“ „Ríkisstjórnin studdi pyntingar, en skipti svo um skoðun,“ sagði John Kerry, öldunga- deildarþingmaður demókrata. „Er hún aftur fylgjandi pyntingum?“ Vika er í þingkosningar í Bandaríkjunum og benda skoðanakannanir til að repúblikanar muni tapa þingmeirihluta sínum. - sgj George Bush Bandaríkjaforseti ver orð Dick Cheney varaforseta um pyntingar: Bandaríkjamenn stunda ekki pyntingar GeorGe Bush Forsetinn neitaði því á fundi með Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra NATO, að Bandaríkin stæðu fyrir pyntingum. FréTTABlAðið/AP ÞJÓnUSTA Verslunin Fylgifiskar mun opna sjávarréttabar í flugstöð Leifs Eiríkssonar í apríl á næsta ári þegar nýtt brottfarar- svæði verður opnað. Samningur um opnun barsins var undirritað- ur fyrir helgi og segir Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Leifsstöðvar, hliðstæða bari mjög vinsæla í flugstöðvum erlendis. Á sjávar- réttabarnum verður boðið upp á létta sjávarrétti ásamt tilbúnum réttum sem fólk getur tekið með sér í vélarnar. Guðbjörg Glóð Logadóttir, framkvæmdastjóri Fylgifiska, segist gera ráð fyrir að tíu starfsmenn muni starfa á sjávarréttabarnum í Leifsstöð sem þýðir tvöföldun á núverandi starfsmannafjölda. „Opnun sjávarréttabarsins er nýtt skref fyrir Fylgifiska sem hingað til hafa sérhæft sig í sölu tilbúinna fiskrétta og heitum mat í hádeginu.“ - hs Flugstöð Leifs Eiríkssonar: Fylgifiskar í flugstöðinni undirritun Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri leifsstöðvar, ásamt Guðbjörgu G. logadóttur, framkvæmdastjóra Fylgifiska. VInnUmARkAÐUR Félag íslenskra fótaaðgerðafræðinga mótmælir harðlega þeirri fyrirætlan Snyrtiakademíunnar að hefja kennslu í fótaaðgerðafræðum án þess að hafa leyfi yfirvalda. „Snyrtiakademían er snyrtiskóli sem útskrifar iðnaðarmenn. Fótaaðgerðafræði er löggilt heilbrigðisfag,“ segir í tilkynn- ingu frá félaginu. Fótaaðgerðafræðingar benda á að unnið sé að því að nám í fótaaðgerðafræði verði þrjú ár eftir stúdentspróf. Snyrtiakademían stefni hins vegar að því að námið verði eitt og hálft ár í snyrtiskóla. - ghs Fótaaðgerðafræðingar: Mótmæla námi í snyrtiskóla Gjafahandbók Flugstöðvarinnar er komin út Dagana 12. október – 21. nóvember geta farþegar nálgast Gjafahandbók Flugstöðvarinnar í öllum verslunum Flugstöðvarinnar og á heimasíðunni www.airport.is. Gjafahandbókin er jafnframt happadrættismiði og geta heppnir farþegar unnið til glæsilegra vinninga. Dregið er út vikulega og eru vinningsnúmer auglýst á heimasíðu Flug- stöðvarinnar www.airport.is Góðir farþegar Vegna framkvæmda í flugstöðinni og aukinna öryggisráðstafanna hvetjum við fólk til þess að gefa sér góðan tíma fyrir flug. Mætið tímanlega og njótið ferðarinnar. Innritun hefst kl. 5.00 eða 2 tímum fyrir brottför. FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.