Fréttablaðið - 31.10.2006, Síða 45
ÞRIÐJUDAGUR 31. október 2006 29
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
icex-15 6.336 -0,55% Fjöldi viðskipta: 588
Velta: 3.778 milljónir
HLUtAbréF Í úrVALSVÍSitÖLU: Actavis 65,30 +0,00% ... Alfesca
5,00 +0,20% ... Atlantic Petroleum 586,00 -0,34% ... Atorka 6,32
+0,00% ... Avion 35,70 +4,08% ... Bakkavör 59,80 -1,65% ...
Dagsbrún 4,94 +0,00% ... FL Group 22,60 -1,74% ... Glitnir 23,00
+0,00% ... Kaupþing 848,00 -0,59% ... Landsbankinn 25,80 -0,77%
... Marel 79,50 +0,00% ... Mosaic Fashions 16,50 -0,60% ... Straum-
ur-Burðarás 16,40 -1,21% ... Össur 122,00 -0,81%
Umsjón: nánar á visir.is
Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur
ákveðið að höfða dómsmál til
ógildingar úrskurði kærunefndar
frá því í sumar varðandi Sparisjóð
Hafnarfjarðar (SPH). Kærunefnd-
in komst að þeirri niðurstöðu að
Samkeppniseftirlitinu hefði verið
óheimilt að takmarka atkvæðis-
rétt ákveðinna einstaklinga í
Sparisjóði Hafnarfjarðar við fimm
prósent.
„Okkar mat er að í máli þessu
reyni á grundvallarþætti varðandi
hlutverk og getu Fjármálaeftir-
litsins til að stuðla að traustri fjár-
málastarfsemi í landinu,“ segir
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, sem er ósammála
niðurstöðum kærunefndar og
telur rökstuðningi áfátt. „Í málinu
reynir á mikilvæg atriði fyrir
íslenskan fjármálamarkað sem
snýr að virkni lagaákvæða og getu
eftirlitsins til þess að framfylgja
lögum um fjármálafyrirtæki,“
segir jafnframt í tilkynningu
eftirlitsins vegna málsins.
Í lögum eru sérstök ákvæði um
virkan eignarhlut í sparisjóðum
sem miða meðal annars að því að
tryggja dreifða eignaraðild.
Þannig má enginn fara með meira
en fimm prósent atkvæðisréttar
og bara hægt að mynda virkan
eignarhlut vegna fjárhagslegrar
endurskipulagningar eða aukinn-
ar samvinnu sparisjóða. - óká
Fjármálaeftir-
litið höfðar mál
JóNAS Fr. JóNSSoN Jónas er forstjóri
Fjármálaeftirlitsins.
Avion Group hefur selt eignir fyrir 34
milljarða króna og nemur hagnaður af
sölunni fyrir skatta 10,5 milljörðum
króna. Rekstur Avion verður fyrir vikið
einfaldari og styrkist efnahagur félags-
ins sem nýtist til áframhaldandi vaxtar.
Annars vegar er um að ræða sölu á
allri leiguflugs- og ferðaþjónustueining-
unni XL Leisure Group, sem var ein af
þremur stoðum félagsins, fyrir þrjátíu
milljarða króna. Phillip Wyatt, forstjóri
XL Leisure, leiðir kaupendur og nemur
söluhagnaður Avion 7,3 milljörðum króna
fyrir skatta.
Telur Greiningardeild Kaupþings að
söluverðið á XL sé vel viðunandi.
Þá hefur félagið selt rúman helmings-
hlut sinn í Avion Aircraft Trading (AAT),
sem sýslar með flugvélar, til Hafþórs
Hafsteinssonar, stjórnarformanns AAT,
Arngríms Jóhannssonar, stofnanda Air
Atlanta og lykilstjórnenda fyrir 3,5 millj-
arða króna og er söluhagnaður 3,2 millj-
arðar. Avion Group mun áfram halda utan
um 49 prósenta hlut í AAT sem bókfærð-
ur er á 200 milljónir króna. Dulin verð-
mæti liggja því augljóslega enn inni í
félaginu.
„Við erum fjárfestingarfélag þannig
að við nýtum þau tækifæri sem okkur
bjóðast. Kaupum og seljum áfram og
fjárfestum í því þar sem við teljum okkur
geta bætt við verðmætin og aukið þau
fyrir okkar hluthafa,“ segir Magnús Þor-
steinsson, stjórnarformaður félagsins.
Félagið mun eftir sem áður fjárfesta í
félögum í flutningastarfsemi.
Fjármögnun vegna kaupanna er að
fullu lokið og greiða kaupendur hluta
kaupverðs með bréfum í Avion Group
sem samsvarar 22 prósentum hlutafjár í
félaginu. Straumur-Burðarás hefur samið
við Avion um sölutryggingu á bréfunum.
Hlutabréf í Avion hækkuðu skarplega
á markaði í gær, eða um rúm fjögur pró-
sent. Frá byrjun október nemur hækkun-
in um sautján prósentum. - eþa
AVioN GroUP HAGNASt VerULeGA Magnús
Þorsteinsson og Steingrímur Pétursson kynna
sölu eigna fyrir 34 milljarða króna.
Avion slær tvær flugur í einu höggi
MeStA hæKKUn
Avion +4,08%
Alfesca +0,2%
MeStA LæKKUn
Flaga -4,84%
FL Group -1,74%
bakkavör -1,65%
Stoðtækjafyrirtækið Össur skilaði
5,7 milljóna dala hagnaði á þriðja
fjórðungi ársins. Þetta svarar til
387 milljóna íslenskra króna á
tímabilinu samanborið við rúmar
274 milljónir króna í hagnað á
sama tíma í fyrra.
Í tilkynningu frá Össuri kemur
fram að hagnaður fyrir afskriftir,
vexti og skatta (EBITDA) hafi
numið 12,1 milljónum dala eða 867
milljónum íslenskra króna, sem er
17 prósenta aukning frá þriðja
ársfjórðungi í fyrra.
Haft er eftir Jóni Sigurðssyn,
forstjóra Össurar, að afkoman sé
rétt undir væntingum en að fyrir-
tækið sé bjartsýnt á að ná mark-
miðum sínum á árinu. - jab
Afkoman und-
ir væntingum
vetrardekk
S t æ r ð V e r ð
1 3 " 1 7 5 / 7 0 R 1 3 5 . 9 0 0 . -
1 4 " 1 7 5 / 6 5 R 1 4 6 . 6 0 0 . -
1 4 " 1 8 5 / 6 5 R 1 4 6 . 8 0 0 . -
1 5 " 1 9 5 / 6 5 R 1 5 7 . 9 0 0 . -
AÐALNÚMER · SÍMI 520 8000
SKEIFUNNI 11 REYKJAVÍK · 520 8001
DRAUPNISGATA 1 AKUREYRI · 520 8002
DALSHRAUNI 13 HAFNARFJÖRÐUR · 520 8003
SMIÐJUVEGI 68 KÓPAVOGUR · 520 8004
BÍLDSHÖFÐA 12 REYKJAVÍK · 520 8005
E Y R A R V E G I 2 9 S E L F O S S · 5 2 0 8 0 0 6
w w w . s t i l l i n g . i s
NEGLANLEG!
Í FrAmLeiðSLUSAL ÖSSUrAr Össur skil-
aði minni hagnaði á þriðja ársfjórðungi
en vonir stóðu til.