Fréttablaðið - 31.10.2006, Side 52

Fréttablaðið - 31.10.2006, Side 52
 31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR36 Skilnaður Pauls McCartney og Heather Mills tekur á sig sífellt undarlegri myndir. Nú eru rifjuð upp ummæli dóttur McCartney um eiginkonuna og framkomu Pauls við Lindu heitna McCartney. Bresku götublöðin halda áfram umfjöllun sinni um skilnað Heath- er Mills og Paul McCartney sem vakið hefur heimsathygli, ekki síst fyrir fjölmiðlafárið sem hefur ríkt í kringum málið að undan- förnu. News of the World birti á sunnudag frétt þess efnis að dóttir Pauls, fatahönnuðurinn Stella McCartney, hefði hótað Heather Mills lífláti skömmu eftir að hún lýsti því yfir að Paul hefði einnig lamið og komið illa fram við mömmu hennar, Lindu. „Af hverju varstu að giftast þessari belju? Hún hefur ekki gert neitt annað en að misnota okkur. Ég drep hana,“ á Stella að hafa öskrað að föður sínum samkvæmt götublaðinu. Fréttir um segulbandsupptök- ur sem Linda heitin McCartney gerði skömmu fyrir andlát sitt vöktu mikla athygli í síðustu viku en þar er hún sögð tjá sig á ein- lægan hátt um hjónaband sitt og Pauls. Upptökurnar gætu verið notaðar í réttarhöldunum sem hefjast snemma á næsta ári og er hugsanlegt að þær varpi nýju ljósi á hjónaband Pauls og Lindu, sem hingað til hefur verið talið það ást- ríkasta í skemmtanaiðnaðinum. Peter Cox, náinn vinur Lindu, segir að henni hafi oft liðið illa í hjónabandinu en Cox hefur upp- tökurnar undir höndunum og hefur fallist á að birta þær ekki opinberlega. Í samtali við Daily Mail ber hann Paul hins vegar ekki vel söguna og segir hann hafa komið illa fram við Lindu. „Hann átti það til að ráðskast með hana,“ sagði Cox við blaðið en lengi hefur andað köldu á milli þeirra og bað Paul hann vinsamlegast um að mæta ekki í jarðarför Lindu árið 1998. Þá segir Cox að Paul hafi jafnframt verið hrokafullur og talað um góðvin sinn John Lennon eins og hann væri enn á lífi. „Er það ekkert furðulegt?“ spyr Cox. The Sun segist á hinn bóginn hafa komist yfir óbirt viðtal sem sjónvarpsmaðurinn Garth Pearce tók við Lindu í maí 1980. Þar seg- ist hún elska Paul út af lífinu, að hún hafi ekkert yfir honum að kvarta. Þar tjáir Linda sig einnig um það þegar Paul var handtekinn á flugvelli í Japan með hass í fórum sínum. „Ég hræddist mjög að hann þyrfti að vera í fangelsi næstu sex eða sjö árin. Ég hugsaði alvarlega um það að kaupa hús í Japan sem við gætum búið í næstu árin því þá gæti ég heimsótt hann á hverjum degi,“ sagði Linda fyrir 26 árum. Stella vildi drepa Mills Stella Mccartney Hótaði að taka stjúpu sína af lífi skömmu eftir að Heather sagðist ætla að draga hjónaband Lindu og Pauls inn í skilnaðinn. Paul og HeatHer Ekki sér fyrir endann á fjölmiðlafárinu í kringum skilnað þeirra og málið verður flóknara með hverjum deginum sem líður. Fyrir ekki svo löngu síðan slóg- ust skemmtistaðirnir í Banda- ríkjunum um að partíljónið Paris Hilton mundi reka inn nefið en nú er öldin önnur og greinilegt að það er farið að halla undan fæti hjá Hilton. Henni var nýlega meinaður aðgangur að nýjasta klúbbnum í New York þvi eins og eigandi staðarins orðaði það vildi hann engar „Paris Hilton týpur“ inn á sinn stað. Nú hefur hún bæst á svartan lista hjá skemmti- stað í Los Angeles og því verður greyið Paris að fara að taka sig saman í andlitinu áður en hún verður útilokuð frá skemmtana- lífinu eins og það leggur sig. París bönnuð PariS Hilton Greyið stelpan er komin á svartan lista hjá nokkrum skemmtistöð- um í Bandaríkjunum. Sá skelfilegi atburður átti sér stað við upptökur á nýjustu mynd Leon- ardo DiCaprio að tæknimaður missti hendi þegar sprengja sprakk í hönd- unum á honum. Myndin nefnist „Blood Diamond“ og er með þeim Leonardo og Jennifer Connelly í aðalhlutverkum og fjallar um stríð- ið í Sierra Leone á tíunda áratugn- um. Tæknimaðurinn var að hand- fjatla kröftuga sprengju sem átti að nota við upptökur og sem sprakk með ofangreindum afleiðingum. Aðstandendur myndarinnar hafa verið mikið gagnrýndir fyrir að gæta ekki fyllsta öryggis við upp- tökur en fullvissa þeir þó að svo sé. Blóðug taka leonardo dicaPrio Lenti í því að tæknimaður missti hendi við upptökur á nýjustu mynd sinni „Blood Diamond“. Það var mikið um dýrðir á Barn- um um helgina þar sem partí var haldið með hrekkjavökuþema. Barinn var skreyttur með kóngulóarvef og öðru sem teng- ist þessari draugahátíð. Fólk mætti í sínu fínasta pússi og ímyndunaraflið hjá mörgum greinilega mjög frjótt. Grímur og tilheyrandi voru áberandi hjá gestum og var það mat margra að aldrei hefði dansinn dunað jafn vel og lengi á Barnum og á laugardagskvöldið. Hrekkjavaka á Barnum ÞeSSi var HreSS Margrét Vilbergsdóttir lét ekki að sér hæða og klæddi sig upp fyrir grímuballið. andlitSMálning Þóra Augustinussen hefur greinilega verið lengi að hafa sig til og var andlitsmálningin hin glæsi- legasta. ÞjónuStuStúlkan og geiSHan Ása Einarsdóttir var klædd sem blóðþyrst þerna og Sigga Dögg var hæglát geisha í tilefni dagsins. PlötuSnúðurinn Heimir Héðinsson passaði vel inn í partíið með gulllitaða grímu sem hann er þó alltaf með þegar hann spilar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.