Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 1
Mikill meirihluti,
eða 73,1 prósent telur að takmarka
þurfi frekar veitingu dvalarleyfa
til útlendinga. Þetta kemur fram í
nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins sem gerð var á þriðjudaginn.
26,9 prósent telja að þess þurfi
ekki.
Þá segir þriðjungur, eða 32,9
prósent, að fjöldi útlendinga á
Íslandi sé mikið vandamál hér á
landi. Tveir þriðju svarenda telja
hins vegar að vandamálið sé lítið
eða ekkert.
Minnsti hópurinn, eða 23,6 pró-
sent, telur að fjöldinn sé ekkert
vandamál. 43,6 prósent telja
vandamálið lítið.
Einar Skúlason, framkvæmda-
stjóri Alþjóðahúss, segist viss um
að umræða síðustu daga hafi villt
fólki sýn.
„Ég held að ef fólk lítur í kring-
um sig þá sé líklegt að fáir komi
auga á mikil vandamál,“ segir
Einar. „Til dæmis hefur komið
fram að hlutfallslega eru íslenskir
ríkisborgarar líklegri til að fremja
afbrot en erlendir ríkisborgarar.“
Varðandi dvalarleyfin segist
Einar telja að almennt skorti fólki
þekkingu á fyrirkomulagi á veit-
ingu slíkra leyfa.
„Ég velti því fyrir mér hvort fólk
geri sér grein fyrir hversu mörg-
um er hafnað. Eins og umræðan
hefur verið síðustu daga má
álykta að allir fái leyfi en það er
ekki þannig. Hundruðum umsækj-
enda hefur verið hafnað á síðustu
mánuðum, þá aðallega fólki sem
kemur frá löndum utan EES-
svæðisins.“
Birgir Hermannsson stjórn-
málafræðingur segir niðurstöð-
una kannski sýna að fólki finnist
nóg um fjölda útlendinga á
Íslandi.
„Það er erfiðara að túlka hvað
fólk vill að verði gert,“ segir Birg-
ir. „Það getur verið að fólk hafi
áhyggjur af því að fjöldi útlend-
inga breyti þjóðinni eða þeim
fylgi glæpir. Þetta sé ógn og spill-
ing erlendis frá sem leggist á
þjóðarlíkamann og spilli honum.“
Hann segir þó erfitt að segja til
um hve hræðslan vegi þar mikið.
Sjötíu prósent vilja frekari
takmarkanir á dvalarleyfum
Ríflega 40 prósent telja fjölda útlendinga hér á landi vera lítið vandamál og um fjórðungur segir vanda-
málið ekkert, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Þriðjungur segir vandamálið mikið. Fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahúss segir að líti fólk í kringum sig sé líklegt að fáir komi auga á vandamál.
Breska leiguflugfélagið
Astraeus, sem flýgur frá Gatwick,
ætlar á næstunni að sækja um
leyfi til íslenskra stjórnvalda fyrir
flugi frá Íslandi til Bandaríkjanna.
Þetta verður gert í samvinnu við
lággjaldaflugfélagið Iceland
Express sem hefur kynnt áform
sín um flug til Boston og New York
frá og með næsta vori, í beinni
samkeppni við Icelandair.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru stjórnendur Iceland
Express með til skoðunar að fara
einnig í samkeppni við Icelandair
í fragtflutningum og telja sig vera
samkeppnishæfa á því sviði.
Astraeus og Iceland Express
eru tengd sterkum eignaböndum.
Á dögunum eignaðist Fons, eign-
arhaldsfélag Pálma Haraldssonar
og Jóhannesar Kristinssonar, 51
prósents hlut í Astraeus á móti
sjóðum og stjórnendum félagsins.
Greiddu þeir 650 milljónir króna
fyrir hlutinn. Fons á jafnframt
Iceland Express að öllu leyti.
Ætlunin er að nýta Boeing 757-
vélar Astraeus til Bandaríkja-
flugsins en þetta eru vélar sem
taka um það bil tvö hundruð far-
þega. Iceland Express á hins vegar
engar vélar en býr yfir öflugu
söluneti og leiðakerfi til Skandin-
avíu. Farþegum Iceland Express á
Norðurlöndum býðst þannig að
fljúga til Íslands og þaðan til
Bandaríkjanna eða öfugt.
Aukin samkeppni við Icelandair
HEIMSFRUMSÝND
17.11.2006
www.midi.is/bio
FORSALAN Á NÝJU
JAMES BOND MYNDINA
ER HAFIN Á MIDI.IS/BIO
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Í DAG ER
FÖSTUDAGUR!
ÁI
N
í grænni lautu
tíska tíðarandinn heilsa myndlist pistlar matur stjörnuspá
ER BORAT KANNSKI MAHÍR?» Nýjasta stjarnan
BÆKURNAR ERU EINSOG BÖRNIN MÍN» Björk Bjarkadóttir
MATUR
MÁTTUR
MENNTUNAR
» Kesara Anamthawat-Jónsson
SV
REGGÍ Í JANÚARTHE WAILERS
Á ÍSLANDI [4]
BERTI MILLJÓN Á HERRAKVÖLDI VALS Eyddi hundruð-um þúsunda
GUÐJÓN Í OZ
Aftur orðinn piparsveinn
SIRKUS10. NÓVEMBER 2006
FATAHÖNNUÐURINN IMBA Í NIKITA • Gerir það gott í New York [14]
Konurnar sem
klæða þjóðina
Máttur menntunar
Icelandair og Iceland
Express ákváðu í gærkvöldi að
fresta öllu millilandaflugi sínu nú
í morgunsárið vegna spár um
ofsaveður. Gert er ráð fyrir að
flug muni hefjast upp úr níu hjá
Iceland Express og um hádegi hjá
Icelandair miðað við upplýsingar í
gærkvöld. Þá var ekki búið að
gera neinar ráðstafanir varðandi
frestun á innanlandsflugi á
Reykjavíkurflugvelli.
Sigurður Þ. Ragnarsson,
veðurfræðingur á NFS, spáir ofsa-
veðri vestan til á Suðurlandi og
við sunnanverðan Faxaflóa, fram
að hádegi en þá fer heldur að
lægja. Má búast við 22-33 m/s á
þessu svæði og að vindhviður nái
um eða yfir 50 m/s til fjalla.
Úrhellisrigning mun fylgja
hvassviðrinu. Að mati Sigurðar
verður veðrið verst á Reykjanesi
og á Suðurlandi.
Öllu millilanda-
flugi frestað