Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 86
Stjórn Fimleikasam-
bands Íslands fundaði á miðviku-
dagskvöldið með fulltrúum frá
Fimleikafélaginu Björk vegna
ásakana um líkamlegt ofbeldi
gegn átta ára stúlkum sem bornar
voru á einn þjálfara félagsins af
nemendum í íþróttaakademíunni í
Reykjanesbæ. Annar þjálfari hjá
sama fimleikafélagi var síðan sak-
aður um andlegt ofbeldi gegn níu
ára stúlku. Báðir þjálfararnir eru
erlendir.
„Við fórum yfir stöðuna með
fulltrúum Bjarkar. Fimleikasam-
bandið hefur staðið fyrir athugun
á því hvernig málum sé háttað hjá
félaginu og við finnum ekkert að
hjá Björkunum,“ sagði Kristján
Erlendsson, formaður Fimleika-
sambands Íslands, við Fréttablað-
ið í gær.
„Við finnum engar vísbending-
ar um að börn séu í hættu hjá
félaginu. Hins vegar þarf meiri
tíma til að gera formlega úttekt.
Við erum búnir að ræða við
þjálfara hjá félaginu, foreldra
og það er búið að bera þetta
undir þjálfara hjá öðrum félög-
um. Þetta er það sem við getum
gert hratt og vel. Þessi vinna er
öll búin. Á þessu stigi sér Fim-
leikasambandið ekki neina
ástæðu til að gera neitt í málinu
hjá Björkunum.“
Við hversu marga þjálfara og
foreldra hafi verið rætt við vildi
Kristján ekki tjá sig um og hann
vildi heldur ekki greina frá því
hverjir hefðu tekið viðtölin við
þessa aðila.
Foreldrar barnanna, sem eru í
hópnum þar sem hið umdeilda
atvik átti sér stað, eru sáttir við
frammistöðu þjálfarans og hafa
ekki yfir neinu að kvarta í hans
þjálfunaraðferðum.
Þeir hafa allir kvittað undir
yfirlýsingu þess efnis að þeir
standi á bak við þjálfarann.
„Hér er aftur á móti mál sem þarf
að skoða miklu betur en tíminn
hefur leyft okkur að gera. Við
erum alltaf að skoða hvað betur
má fara í fimleikahreyfingunni og
þetta mál fer í þann farveg,“ en
hver er þessi farvegur og hvernig
hyggst Fimleikasambandið
nákvæmlega fylgja málinu eftir?
„Í fimleikum er það þannig að
samband við foreldra er mjög náið
og foreldrarnir hafa góðan og
greiðan aðgang að þjálfurum.
Þannig að ef það koma upp ein-
hverjar athugasemdir þá hafa
félögin tekið mjög myndarlega á
því. Ef það er ekki gert þá skaðar
það félagið, iðkendur og samband-
ið við foreldra,“ sagði Kristján
Erlendsson, formaður Fimleika-
sambands Íslands.
Það var Jón Páll Pálmason,
nemandi við íþróttaakademíuna,
sem kom málinu af stað þegar
hann kvartaði formlega við Björk
yfir því sem hann sá á æfingu
stúlknanna. Fréttablaðið innti
hann eftir viðbrögðum við niður-
stöðu málsins.
„Fyrstu viðbrögðin eru þau að
ég er hissa. Við sem hópur munum
skoða hvað við gerum í framhald-
inu,“ sagði Jón Páll en hann var
ekki einn um að vera ósáttur við
þjálfunaraðferðirnar sem hann sá
heldur allir samnemendur hans
sem eru 27 talsins.
Hópurinn sendi formlega yfir-
lýsingu um málið til ÍSÍ, ÍBH og
Bjarkar vegna málsins síðastlið-
inn föstudag.
Kristján Erlendsson, formaður Fimleikasambands Íslands, segir að athugun sambandsins á þjálfun hjá
fimleikafélaginu Björk hafi ekki leitt neitt vafasamt í ljós. Fimleikasambandið sér því ekki neina ástæðu til
þess að aðhafast frekar í málinu. Aðilinn sem kom málinu af stað er hissa á niðurstöðunni.
Kristján Erlendsson,
formaður Fimleikasambands
Íslands, staðfesti við Fréttablaðið
í gær að aðeins hefðu ásakanir
um líkamlegt ofbeldi hjá fim-
leikafélaginu Björk verið
athugaðar af sambandinu.
Fimleikasambandið sá ekki
ástæðu til að ræða við Þóri
Gunnarson, föður níu ára stúlku
sem hætti að æfa hjá félaginu
vegna andlegs ofbeldis þjálfara
að því er Þórir segir.
Þórir kvartaði yfir málinu
skriflega áður en dóttir hans
hætti. Þegar Fréttablaðið spurði
þjálfarann, sem Þórir kvartaði
við, að því hvort einhverjar
kvartanir hefðu borist frá
foreldrum vegna einhvers af
þjálfurum félagsins var því
staðfastlega neitað. Engar
kvartanir hefðu borist. Það sagði
þjálfarinn áður en Þórir greindi
frá sögu dóttur sinnar.
Ræddi ekki
andlegt ofbeldi
Góðir menn eru keyptir og þeir eiga að sýna það
Gengi Íslendingaliðs-
ins Gummersbach í þýsku úrvals-
deildinni í vetur hefur vakið
verðskuldaða athygli enda var
ekki búist við sérstaklega miklu
af liðinu fyrir tímabilið. Miklar
mannabreytingar áttu sér stað
hjá félaginu og Alfreð Gíslason
þjálfari sagði í viðtali við Frétta-
blaðið á dögunum að hann væri
sáttur tækist liðinu að ná þriðja
sæti í deildinni.
Gummersbach er nú á toppi
deildarinnar og ósigrað í Meist-
aradeildinni. Hans-Peter Kräm-
er, stjórnarformaður félagsins,
er hæstánægður með árangur-
inn og játar það fúslega að hann
átti ekki von á slíku fyrir tíma-
bilið.
„Stjórnin er furðu lostin yfir
þvi hversu vel gengur. Þetta
gengi er eitthvað sem við áttum
ekki von á. Aðalástæðan fyrir
þessu góða gengi er þjálfarinn
Alfreð Gíslason sem að mínu
mati er einn besti þjálfari
heims,“ sagði Krämer við þýska
netmiðilinn Handball World.
Það eru svo sannarlega breytt-
ir tímar hjá þessu fornfræga
félagi því fyrir aðeins fimm árum
rambaði Gummersbach á barmi
gjaldþrots og framtíðin var síður
en svo björt.
„Við getum hugsanlega bland-
að okkur í baráttuna um titilinn
en við erum ekki sigurstrangleg-
asta liðið í þeirri baráttu. Mér
persónulega finnst við vera nokk-
uð á eftir Kiel eins og staðan er í
dag.
Við stöndum samt betur að
vígi þar sem Kiel á eftir að heim-
sækja okkur,“ sagði Krämer.
Með Gummersbach leika
Íslendingarnir Guðjón Valur Sig-
urðsson, Róbert Gunnarsson,
Sverre Andreas Jakobsson og
Guðlaugur Arnarsson.
Alfreð er einn besti þjálfari heims
Mohamed Sissoko,
miðjumaður Liverpool, varð fyrir
því óláni í leik Birmingham og
Liverpool á miðvikudaginn að
fara úr axlarlið. Sissoko var
haldið á sjúkrahúsi nóttina eftir
atvikið og Rafael Benitez, stjóri
liðsins, óttast að leikmaðurinn
verði lengi frá.
„Við vitum ekki hve lengi hann
verður frá keppni en það gæti
verið langur tími. Það gæti verið
meira en einn mánuður. Sissoko
hefur verið óheppinn með
meiðsli. Þetta eru ekki mjög
algeng meiðsli. Ég hef ekki séð
atvikið í endursýningu en þetta
var algjört slys,“ sagði Benitez
eftir leikinn gegn Birmingham.
Sissoko verður
lengi frá