Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 67
Einstaklingsframtakið á að fá notið sín á öllum sviðum íslensks atvinnulífs. Samstarf einkaaðila og ríkisins í heilbrigðismálum er ekki bara áhugaverð þróun heldur líka nauð- synleg þróun. Einka- rekstur þekkist reynd- ar víða í heilbrigðiskerfinu, læknastofur út um allan bæ eru reknar af einka- aðilum. Okkur ber skylda til þessa að tryggja að farið sé vel með almannafé og því þarf stöðugt að leita hagræðingar þegar kemur að notkun opinbers fjármagns. Margir hafa í þessu sambandi bent á kosti einkarekst- urs þar sem einkaaðilar eru oft á tíðum færari en ríkið til að veita gæða þjónustu á góðu verði. Hinu opinbera ber enn að greiða fyrir þjónustuna og stuðla að öflugu eftirliti og tryggja með því gæði þjónustunnar og að vel sé farið með almannafé. Höfundur gefur kost á sér í 4.-5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Einkarekstur Skattalækkanir á undanförnum árum hafa skilað sér í auknum skatttekjum fyrir ríkissjóð. Svartagallsraus þeirra vinstri manna sem töldu að fótunum yrði kippt undan velferðarkerfinu með skattalækkunum reyndist því ekki á rökum reist. Þvert á móti hafa skattalækk- anir styrkt getu okkar til að leggja fé í þá sam- neyslu sem sátt er um að halda úti. Reynslan kennir okkur að við eigum að halda áfram að feta braut skattalækkana. Við verðum að búa til gott umhverfi til handa atvinnulífinu hér á landi þannig að auka megi enn frekar erlendar fjárfestingar. Þannig getur svigrúm skapast til þess að lækka enn frek- ar skatta og álögur á einstaklinga. Við þurf- um því að byrja á því að skjóta styrkari stoðum undir atvinnulífið svo að þetta svigrúm geti skapist. Höfundur gefur kost á sér í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Skattasamkeppni Ragnheiður Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður forsætisráð- herra og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur- kjördæmi vill hafa enn meiri áhrif á hvert Ísland stefnir á næstu árum. Það er fagnað- arefni. Ragn- heiður hefur mjög skýra sýn og veit nákvæmlega hvert ber að stefna og það sem meira er hvernig ná skuli á áfangastað. Ragnheiður Elín er ung og vel menntuð kona sem hefur með störfum sínum sýnt að henni er treystandi til að ná árangri. Hún er fylgin sér, fljót að greina kjarna máls og er ekki með óþarfa mála- lengingar. Slíka eiginleika vil ég að minn þingmaður hafi að minnsta kosti. Ég hvet kjósendur til að setja Ragnheiði Elínu í 4. sæti á lista Sjálfstæðismanna í Suðvest- urkjördæmi í prófkjörinu í dag. Höfundur er bæjarstjóri í Garðabæ. Hvernig væri að leyfa ungu kjörkuðu hugsjónafólki með ferskar áherslur að komast að? Fólki sem þorir að standa á sínu? Sýnir skilning á þörf almenn- ings? Ég hef hugsjón fyrir velferð barna og er búin að finna þing- mann sem ég treysti til að standa fyrir þeim breyting- um sem mig langar að sjá. Eigum við ekki að leggja áherslu á að taka þátt í prófkjörum flokkanna og setja unga fólkið efst á listana? Ungt fólk með hugsjónir, áhuga á persónuleg- um þörfum manneskjunnar frekar en efnishyggju? Ég hef valið að styðja ungan þingmann, Ágúst Ólaf Ágústsson, varaformann Samfylk- ingarinnar. Hann hefur verið að leggja fram fjölmörg góð þingmál. Svona maður er að mínu skapi, ég vona að allir sjái hina miklu og góðu möguleika sem búa í stráknum! Komið, gerum breytingar, tökum þátt í prófkjörinu 11 nóvember hjá Samfylkingunni og styðjum þennan unga hugsjónamann!!! Höfundur vinnur hjá Félagsþjón- ustu Reykjavíkurborgar. Bryndís Haraldsdóttir tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- manna í Suðvesturkjördæmi, hún stefnir á 4.-5. sæti. Bryndís er 29 ára gömul hún er af þess- ari nýju kyn- slóð ungra kvenna sem er að hasla sér völl í atvinnu- lífinu en er um leið eiginkona og móðir. Bryndís hefur brenn- andi áhuga á að starfa að framgangi sjálfstæð- isstefnunnar þar sem frelsi ein- staklingsins er í hávegum haft svo og jöfn tækifæri allra til að þroska og nýta hæfileika sína. Ég hvet alla sjálfstæðismenn í Suðvestur- kjördæmi að veita Bryndísi braut- argengi í 4.-5. sæti í prófkjörinu, það verður engin svikinn af því. Höfundur er sálfræðingur og fyrrverandi flugstjóri. Hlutafjárútboð Tryggingamiðstöðvarinnar hf., kt. 660269-2079, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík. FJÁRHÆÐ ÚTBOÐS Á hluthafafundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. þann 26. september sl. var samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til að hækka hlutafé í félaginu um allt að 186.479.234 hluti. Stjórn félagsins hefur ákveðið að hækka hlutafé um 157.894.737 hluti sem nemur 16,9% aukningu hlutafjár. Heildarhlutir eftir aukninguna verða 1.090.290.905. Hlutirnir eru í sama flokki og þegar útgefnir hlutir. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis banka hf. hefur umsjón með útboðinu og hefur sölutryggt sölu allra hluta. Hluthöfum er boðið að kaupa nýja hluti í hlutfalli við hlutafjáreign sína. Verð í útboðinu verður 38 krónur á hlut. TILGANGUR ÚTBOÐS Tilgangur útboðsins er að styrkja eiginfjárstöðu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. vegna kaupa á hlutum í NEMI Forsikring ASA. FORGANGSRÉTTARÚTBOÐ – FYRIRKOMULAG OG SKILMÁLAR 157.894.737 hlutir eru boðnir hluthöfum Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í réttu hlutfalli við hlutafjáreign eins og hún var skráð í hlutaskrá félagsins í lok viðskiptadags þann 1. nóvember 2006. Forgangsréttarútboðið stendur frá 10. nóvember kl. 10.00 til 13. nóvember kl. 19.00. Áskriftum hluthafa ber að skila með rafrænum hætti á sérstöku áskriftarformi á vef Glitnis, www.glitnir.is. Kennitala og lykilorð sem send voru til hluthafa 2. nóvember eru nauðsynleg til að geta skráð áskrift. Rafræn staðfesting er skilyrði fyrir gildri áskrift. Þeir hluthafar sem ekki hafa aðgang að Internetinu geta hringt í Þjónustuver Glitnis í síma 440 4000 milli kl. 09.00 og 19.00 virka daga eða farið í næsta útibú Glitnis til að skrá áskrift sína. Nauðsynlegt er að hafa bréf þetta meðferðis til að skráning geti farið fram með réttum hætti. Þeir sem hringja inn til að skrá áskrift sína fá senda staðfestingu á áskrift með tölvupósti eða pósti ef hluthafi hefur ekki netfang. Ekki verður tekið við áskriftum með öðrum hætti en hér hefur verið lýst. Hluthafar geta framselt forgangsrétt sinn í útboðinu að nokkru eða öllu leyti. Réttur til umframáskriftar er ekki framseljanlegur. Hluthöfum er heimilt að skrá sig fyrir fleiri eða færri hlutum en þeir eiga hlutfallslegan rétt til. Nýti einhverjir hluthafar ekki rétt sinn að fullu, skiptast þeir hlutir sem eftir standa á milli hluthafa sem hafa skráð sig fyrir hærri fjárhæð í hlutfalli við hlutafjáreign samkvæmt hlutaskrá í lok dags þann 1. nóvember 2006. ALMENNT ÚTBOÐ – FYRIRKOMULAG OG SKILMÁLAR Seljist ekki allir hlutir í forgangsréttarútboðinu munu þeir hlutir sem eftir standa verða boðnir í almennu útboði að loknu áskriftartímabili. Lágmarksáskrift í almenna útboðinu er 5.000.000 kr. að markaðsvirði. Umsjónaraðili fyrir hönd útgefanda hefur heimild til að velja eða hafna áskriftum að eigin vild. Glitnir áskilur sér rétt til að hætta við almenna útboðið ef 95% eða meira af nýjum hlutum verða seldir í forgangsréttarútboðinu. Almenna útboðið stendur frá 14. nóvember kl. 10.00 til 15. nóvember kl. 19.00. Áskriftum ber að skila með rafrænum hætti á sérstöku áskriftarformi á vef Glitnis, www.glitnir.is. Rafræn staðfesting er skilyrði fyrir gildri áskrift. NIÐURSTAÐA ÚTBOÐS Niðurstaða sölu í almenna útboðinu verður tilkynnt Kauphöll Íslands þegar sölu lýkur. Þátttakendur geta, frá og með 17. nóvember, nálgast upplýsingar um úthlutun í útboðinu með sama hætti og skráning fór fram. GREIÐSLA Áskrift í útboðinu er skuldbindandi. Gjalddagi greiðsluseðla vegna hlutafjárkaupa er þriðjudagurinn 28. nóvember 2006. Berist greiðsla ekki tímanlega má innheimta skuldina á þann veg sem lög heimila. Í stað þess að grípa til innheimtuaðgerða hefur bankinn einhliða heimild til að fella ógreiddar áskriftir niður og ráðstafa þeim til þriðja aðila. AFHENDING HLUTA Eigi síðar en 30. nóvember verða hlutirnir gefnir út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands og afhentir til hluthafa. SKJÖL VARÐANDI SKRÁNINGUNA Lýsing verður gefin út 10. nóvember á ensku og hana má nálgast í fréttakerfi Kauphallar Íslands, news.icex.is, og á heimasíðu Glitnis, www.glitnir.is. Einnig er hægt að óska eftir útprentuðu eintaki hjá umsjónaraðila. Glitnir banki hf. – Fyrirtækjaráðgjöf, Kirkjusandi, 155 Reykjavík, tmutbod2006@glitnir.is. Reykjavík, 10. nóvember Glitnir banki hf. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF. HLUTAFJÁRÚTBOÐ 10.–15. NÓVEMBER 2006 Fjárhæð útboðs: 6.000.000.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.