Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 79
Arnar er þrjátíu ára harkari sem
ekur leigubíl fyrir gigtveikan
frænda sinn. Hann er þjakaður
af minnimáttarkennd enda hefur
ýmislegt dunið á honum um árin
og hann tók aksturinn að sér í
von um að geta rétt úr kútnum
fjárhagslega eftir að hafa siglt
bókaútgáfu látins föður síns í
þrot.
Síðdegis á nýársdag tekur hann
farþega sem á eftir að setja rugl-
ingslegt líf hans enn frekar úr
skorðum en það er ljóst, nánast
frá því að gjaldmælirinn fer að
tifa, að farþeginn, Sigurbjörn, er
ekki með öllum mjalla. Og eftir
því sem mælirinn telur lengur
versnar staða Arnars.
Sigurbjörn er vel stæður
kaupsýslumaður á miðjum aldri.
Í meira lagi drjúgur með sig og
það sem verra er, pöddufullur.
Bíltúrinn er því í meira lagi
stefnulaus og langur en Sigur-
björn getur endalaust fundið upp
á nýjum áfangastöðum sem hann
lætur Arnar þeytast á milli.
Túrinn verður því býsna dýr
og þegar farþeginn slær eign
sinni á bílstjórann og bílinn með
150.000 króna eingreiðslu og
dregur Arnar með sér í ára-
mótafagnað á Hótel Valhöll á
Þingvöllum verður ekki aftur
snúið og það á heldur betur eftir
að koma Arnari í koll að hafa
gerst fylgdarsveinn fésýslu-
mannsins.
Gleðin á Þingvöllum endar
með ósköpum og áður en Arnar
veit af er hann grunaður um
morð og sér ekki aðra leið út úr
ógöngunum en að reyna að leysa
málið upp á eigin spýtur.
Farþeginn er önnur sakamála-
sagan sem Árni Þórarinsson og
Páll Kristinn Pálsson skrifa í
sameiningu en þeir tóku býsna
góðan sprett árið 2002 með Í
upphafi var morðið. Þar komu
gruggug fjölskylduleyndarmál
upp úr kafinu og svipaða sögu er
að segja hér en leyndarmál,
pukur og fjölskylduharmleikir
koma hægt og rólega upp á yfir-
borðið í kjölfar morðsins og
þegar loks kemur að skuldadög-
um er reikningurinn hár, ekki
síst hjá þeim sem hafa látið
gjaldmælinn ganga í áratugi.
Þeir félagar spinna söguna
býsna vel framan af. Áhugi og
forvitni lesandans er vakin strax
í leigubílnum á nýársdag og eins
og í almennilegri morðgátu liggja
margir undir grun. Þá skemmir
það ekki fyrir að eftir því sem
Arnar sekkur dýpra í fortíðarfen
fórnarlambsins rennur það æ
betur upp fyrir lesandanum að
hann hefur ekki verið alveg heið-
arlegur sögumaður og tengist
hinum myrta með ýmsu móti. Bíl-
túrinn örlagaríki var því ef til
vill alls ekki hrein tilviljun þegar
allt kemur til alls.
Plottið stendur því fyllilega fyrir
sínu en það hefði að ósekju mátt
bæta meira kjöti á þá beinagrind.
Persónurnar eru flestar einfald-
ar og dregnar fáum dráttum og
þegar það kemur að því að binda
endahnútinn á áhugaverða og
haganlega spunna söguna taka
höfundarnir ódýra útgönguleið.
Það er kúnst að klára góðan reyf-
ara og það þykir ekki traustvekj-
andi að láta persónurnar sjálfar
úttala sig um plottið og skýra
framvinduna í löngu máli en hér
eru sextán síður lagðar undir
þriggja manna tal í lokin þar sem
persónurnar hnýta lausa enda.
Þessi lausn er ljóður á annars
ágætri spennusögu en kemur
ekki í veg fyrir það að Árni og
Páll Kristinn skila af sér slark-
færum reyfara og vel það.
Gjaldmælir dauðans telur
Íslenski dansflokkurinn opnar
dyr sínar í nóvember og býður til
þriggja fjölskyldusýninga sem
henta jafnt ungum sem öldnum.
Mat flokksins er að mikilvægt sé
að auðvelda fólki að kynnast
dansi og sjá hversu skemmtilegt
það getur verið að koma á dans-
sýningu. Almenn þekking á dans-
listum er ekki mikil á Íslandi en
Íslendingar eru mikil leikhús-
þjóð en oft þarf meira til að fólk
mæti á danssýningar – að minnsta
kosti í fyrsta skiptið!
Flokkurinn býður börnum, 12
ára og yngri, frítt á sýningarnar
sem eru settar saman úr léttum
og skemmtilegum brotum úr
fyrri uppfærslum þeirra, Lúnu
eftir Láru Stefánsdóttur, Súrt og
sætt eftir Didy Veldman og
Screen-saver eftir Rami Be’er.
Ungmenni á aldrinum 13-16 ára
fá aðgöngumiða á hálfvirði.
Sýningarnar verða á laugar-
dögum í nóvember, sú fyrsta á
morgun kl. 14.
Fjölskyldusýningar
dansflokksins
7 8 9 10 11 12 13
Karen Millen KringlunniVetrarútsalaHöll ævintýranna
Laugardaginn 11. nóv. kl 14.00 örfá sæti laus
Föstudaginn 17. nóv. uppsewlt
Sunnudaginn 26. nóv kl. 11.00 laus sæti
Smiður jólasveinanna
Sunnudaginn 26. nóv. kl. 14.00
Miðvikudaginn 29. nóv. kl. 10.00 uppselt
Föstudaginn 1. des. kl. 10.00 og 14.00 uppselt
sem skiptir
máli í Reykjavík
Allt um allt
sem skiptir
máli í Reykjavík