Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 79

Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 79
Arnar er þrjátíu ára harkari sem ekur leigubíl fyrir gigtveikan frænda sinn. Hann er þjakaður af minnimáttarkennd enda hefur ýmislegt dunið á honum um árin og hann tók aksturinn að sér í von um að geta rétt úr kútnum fjárhagslega eftir að hafa siglt bókaútgáfu látins föður síns í þrot. Síðdegis á nýársdag tekur hann farþega sem á eftir að setja rugl- ingslegt líf hans enn frekar úr skorðum en það er ljóst, nánast frá því að gjaldmælirinn fer að tifa, að farþeginn, Sigurbjörn, er ekki með öllum mjalla. Og eftir því sem mælirinn telur lengur versnar staða Arnars. Sigurbjörn er vel stæður kaupsýslumaður á miðjum aldri. Í meira lagi drjúgur með sig og það sem verra er, pöddufullur. Bíltúrinn er því í meira lagi stefnulaus og langur en Sigur- björn getur endalaust fundið upp á nýjum áfangastöðum sem hann lætur Arnar þeytast á milli. Túrinn verður því býsna dýr og þegar farþeginn slær eign sinni á bílstjórann og bílinn með 150.000 króna eingreiðslu og dregur Arnar með sér í ára- mótafagnað á Hótel Valhöll á Þingvöllum verður ekki aftur snúið og það á heldur betur eftir að koma Arnari í koll að hafa gerst fylgdarsveinn fésýslu- mannsins. Gleðin á Þingvöllum endar með ósköpum og áður en Arnar veit af er hann grunaður um morð og sér ekki aðra leið út úr ógöngunum en að reyna að leysa málið upp á eigin spýtur. Farþeginn er önnur sakamála- sagan sem Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson skrifa í sameiningu en þeir tóku býsna góðan sprett árið 2002 með Í upphafi var morðið. Þar komu gruggug fjölskylduleyndarmál upp úr kafinu og svipaða sögu er að segja hér en leyndarmál, pukur og fjölskylduharmleikir koma hægt og rólega upp á yfir- borðið í kjölfar morðsins og þegar loks kemur að skuldadög- um er reikningurinn hár, ekki síst hjá þeim sem hafa látið gjaldmælinn ganga í áratugi. Þeir félagar spinna söguna býsna vel framan af. Áhugi og forvitni lesandans er vakin strax í leigubílnum á nýársdag og eins og í almennilegri morðgátu liggja margir undir grun. Þá skemmir það ekki fyrir að eftir því sem Arnar sekkur dýpra í fortíðarfen fórnarlambsins rennur það æ betur upp fyrir lesandanum að hann hefur ekki verið alveg heið- arlegur sögumaður og tengist hinum myrta með ýmsu móti. Bíl- túrinn örlagaríki var því ef til vill alls ekki hrein tilviljun þegar allt kemur til alls. Plottið stendur því fyllilega fyrir sínu en það hefði að ósekju mátt bæta meira kjöti á þá beinagrind. Persónurnar eru flestar einfald- ar og dregnar fáum dráttum og þegar það kemur að því að binda endahnútinn á áhugaverða og haganlega spunna söguna taka höfundarnir ódýra útgönguleið. Það er kúnst að klára góðan reyf- ara og það þykir ekki traustvekj- andi að láta persónurnar sjálfar úttala sig um plottið og skýra framvinduna í löngu máli en hér eru sextán síður lagðar undir þriggja manna tal í lokin þar sem persónurnar hnýta lausa enda. Þessi lausn er ljóður á annars ágætri spennusögu en kemur ekki í veg fyrir það að Árni og Páll Kristinn skila af sér slark- færum reyfara og vel það. Gjaldmælir dauðans telur Íslenski dansflokkurinn opnar dyr sínar í nóvember og býður til þriggja fjölskyldusýninga sem henta jafnt ungum sem öldnum. Mat flokksins er að mikilvægt sé að auðvelda fólki að kynnast dansi og sjá hversu skemmtilegt það getur verið að koma á dans- sýningu. Almenn þekking á dans- listum er ekki mikil á Íslandi en Íslendingar eru mikil leikhús- þjóð en oft þarf meira til að fólk mæti á danssýningar – að minnsta kosti í fyrsta skiptið! Flokkurinn býður börnum, 12 ára og yngri, frítt á sýningarnar sem eru settar saman úr léttum og skemmtilegum brotum úr fyrri uppfærslum þeirra, Lúnu eftir Láru Stefánsdóttur, Súrt og sætt eftir Didy Veldman og Screen-saver eftir Rami Be’er. Ungmenni á aldrinum 13-16 ára fá aðgöngumiða á hálfvirði. Sýningarnar verða á laugar- dögum í nóvember, sú fyrsta á morgun kl. 14. Fjölskyldusýningar dansflokksins 7 8 9 10 11 12 13 Karen Millen KringlunniVetrarútsalaHöll ævintýranna Laugardaginn 11. nóv. kl 14.00 örfá sæti laus Föstudaginn 17. nóv. uppsewlt Sunnudaginn 26. nóv kl. 11.00 laus sæti Smiður jólasveinanna Sunnudaginn 26. nóv. kl. 14.00 Miðvikudaginn 29. nóv. kl. 10.00 uppselt Föstudaginn 1. des. kl. 10.00 og 14.00 uppselt sem skiptir máli í Reykjavík Allt um allt sem skiptir máli í Reykjavík
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.