Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 16
Aðildin að Atlantshafs- bandalaginu og varnar- samstarfið við Bandarík- in hafa í meira en hálfa öld verið hornsteinar öryggis- og varnarmála- stefnu Íslands. Margt hefur grafið undan þessum hornsteinum á síðustu árum. Önnur grein. „Tímabært er að samstarf [Íslands við Bandaríkin og Atlantshafs- bandalagið í öryggis- og varnarmál- um] verði aðlagað frekar þeim breytingum sem orðið hafa í umheiminum á síðustu árum og að Íslendingar taki aukinn þátt í vörn- um landsins.“ Þetta mátti lesa í skýrslunni „Öryggis- og varnarmál Íslands við aldamót“, fylgiskjali með ræðu utanríkisráðherra á Alþingi 25. febrúar 1999, en höfundar þess voru þáverandi fastafulltrúi Íslands í höfuðstöðvum NATO og þáverandi yfirmenn skrifstofa varnarmála og alþjóðamála í utanríkisráðuneyt- inu. Sex og hálfu ári eftir að þessi orð voru skrifuð gerðist það loks, að þetta samstarf var „aðlagað frekar þeim breytingum sem orðið hafa í umheiminum á síðustu árum“ með einhliða ákvörðun Bandaríkjastjórn- ar um brottför varnarliðsins og nýju samkomulagi um framhald varnar- samstarfs landanna án fastrar við- veru bandarísks herliðs hérlendis. Enn er hins vegar eftir að skil- greina nánar með hvaða hætti Íslendingar taka aukinn þátt í vörn- um landsins. Í skýrslum utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkismál hefur í áratugi verið fastur liður að geta þess, að hornsteinar öryggis- og varnarmálastefnu Íslands væru aðildin að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamstarfið við Bandarík- in. Þetta tvennt hefur tryggt varnir Íslands í yfir hálfa öld. En óhætt er að fullyrða að gildi hvors tveggja hefur rýrnað á síð- ustu árum. NATO hefur breytzt úr hávígvæddu varnarbandalagi Vest- ur-Evrópu og Norður-Ameríku gegn sovézku ógninni í kalda stríðinu, í laustengdari öryggismálasamtök hátt í þrjátíu ríkja - eða yfir fjörutíu ríkja ef með eru talin öll samstarfs- ríkin í Evró-Atlantshafssamstarfs- ráðinu. Hinni miklu fjölgun aðildar- ríkja í bandalaginu hefur fylgt, að kjölfesturíkið Bandaríkin hefur að mörgu leyti hætt að líta á NATO sem meginumgjörð tengsla við bandamenn sína. Og margir eiga erfitt með að sjá að „hreyfanlegar varnir“ og leyni- leg varnaráætlun nýja samkomu- lagsins við Bandaríkin jafnist á við þær „sýnilegu og trúverðugu“ varn- ir sem hér voru með varnarliðinu, einkum og sér í lagi með orrustu- þotum þess. Allt frá því járntjaldið féll og Var- sjárbandalagið var leyst upp í byrj- un tíunda áratugarins hefur andláti NATO ítrekað verið spáð. Slíkum spám fjölgaði til muna er deilurnar stóðu sem hæst um Íraksstríðið árið 2003. Sérfræðingar telja þó að ástæðulaust sé að ætla annað en að NATO takist að tryggja tilveru sína um fyrirsjáanlega framtíð. „Frá því um aldamótin hafa ráða- menn bandalagsins lært að virða og starfa innan þeirra takmarkana sem bandalagið verður að virða ef það á að lifa af,“ skrifar danski varnarmálafræðingurinn Sten Rynning í nýjasta NATO Review. Rynning segir að í lok tíunda áratugarins hafi „pólitískur metn- aður og raunveruleikinn lent í árekstri í Kosovo“, sem hafi leitt til verstu kreppu NATO frá því kalda stríðinu lauk, og sú kreppa dýpkaði enn í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001 og hernaðarins sem fylgdi í kjölfarið í Afganistan og Írak. Að sögn Rynnings er metnaður NATO nú kominn í betri takt við veruleikann og bandalagið á góðri leið með að endurnýja sig. Íhlutun NATO í Kosovo, fyrsta „utan-svæð- is“-hernaðaraðgerð bandalagsins, leiddi til djúpstæðra deilna innan bandalagsins um það hvert hlut- verk þess skyldi vera. Þessar deilur leiddu Bandaríkjamenn til að álykta að hernaðaraðgerðir sínar fram- kvæmdu þeir heldur án þess að blanda hinu fjölþjóðlega bandalagi í þær, og leiðandi ríki meginlands- Evrópu til að styðja frekar nýja öryggis- og varnarmálastefnu Evr- ópusambandsins. Deilurnar sýndu í reynd að ekki væri lengur hægt að halda sömu einingu innan bandalagsins og hin sameinandi ógn úr austri hafði gert mögulega allan kaldastríðstímann. „Lærdómar sem dregnir voru af þessu urðu kveikjan að breyttum áherslum NATO. … Umskiptaáætl- unin sem nú stendur til að uppfæra [á leiðtogafundinum] í Ríga [í lok þessa mánaðar], endurspeglar að pólitískur metnaður er kominn í takt við veruleikann,“ skrifar Rynn- ing. „Útgangspunkturinn er ekki metnaður til einingar um allar aðgerðir, heldur þörfin á að byggja upp bandalag sem stendur samein- að en er sveigjanlegt, þar sem mis- munandi samsettir hópar aðildar- ríkja taka höndum saman um ólík verkefni á grunni hagsmuna og getu.“ Kjarninn í aðdráttarafli NATO er enn fimmta grein stofnsáttmál- ans, sem kveður á um að árás á eitt aðildarríki jafngildi árás á þau öll, og að á bak við þá tryggingu standi kjarnorkuvopnabúr Bandaríkjanna og sameinaður hernaðarmáttur aðildarríkjanna. Enda bíða þjóðir í Suðaustur- og Austur-Evrópu enn í röðum eftir að fá inngöngu í banda- lagið. Hugmyndir um að raðir þess verði opnaðar fyrir samherjum fjarri Evrópu og Atlantshafssvæð- inu á borð við Ástralíu og Japan og verði þar með eins konar „OECD öryggismála“ hafa þó ekki hlotið hljómgrunn innan bandalagsins, enn sem komið er að minnsta kosti. Er Donald Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir að framvegis myndi hvert verkefni ráða því hvaða bandamenn Bandaríkin fengju til liðs við sig, virtist hann með því ætla NATO veigaminna hlutverk. En ófarirnar í Írak hafa kennt ráðamönnum í Washington að án bandamanna getur jafnvel mesta herveldi sög- unnar ekki verið, ætli það sér að ná árangri í öðrum eins metnaðarfull- um verkefnum og að „flytja út“ lýð- ræði og gildi réttarríkis og mann- réttinda til heimshluta eins og Miðausturlanda. Þetta eru einmitt þau gildi sem NATO stendur vörð um. Þetta hefur aukið aftur gagn- semi NATO í augum ráðamanna vestra. Í nýjustu þjóðaröryggisá- ætlun Bandaríkjanna (National Sec- urity Strategy) stendur að NATO- samstarfið sé enn grundvallarþáttur í bandarískri varnarmálastefnu. Þegar þjóðaröryggisáætlanir Bandaríkjanna sem gerðar hafa verið í sex ára stjórnartíð George W. Bush (frá árinu 2002 og 2006) eru skoðaðar nánar, er annars greinilegt að samstarfi við banda- menn er þar gert mun lægra undir höfði en áður var. Michael T. Corg- an, dósent við Boston-háskóla og gestakennari í alþjóðastjórnmálum við Háskóla Íslands, kemst að þeirri niðurstöðu í nýrri rannsókn á þessu efni, að „mikilvægi Íslands í varn- aráætlunum Bandaríkjanna … er nú aðeins skugginn af því sem það var einu sinni.“ Varnarþarfir Íslands séu lentar mjög neðarlega í forgangsröðun utanríkis- og örygg- ismálastefnu Bandaríkjanna. Á fyrstu árunum eftir lok kalda stríðins drógu evrópsku NATO- ríkin verulega úr útgjöldum til varnarmála. Þessi samdráttur jók enn á það gríðarstóra bil sem er á milli hernaðargetu Evrópuríkjanna annars vegar og Bandaríkjanna hins vegar. Að evrópsk varnarút- gjöld deilist þar að auki á ótal aðskilda heri þjóðríkjanna gerir þau enn óskilvirkari í samanburðin- um við Bandaríkin. Þessi „getugjá“ á sinn þátt í léttara vægi NATO í huga bandarískra ráðamanna. Bandaríkjamenn hafa lengi þrýst mjög á evrópska bandamenn sína að auka útgjöld til varnarmála og fjárfesta í samhæfðari og skilvirk- ari herafla sem betur er í stakk búinn að bregðast við hættum og verkefnum nútímans. Þetta hefur meðal annars orðið til þess að NATO hefur gert nýju aðildarríkjunum í Mið- og Austur- Evrópu, þar á meðal Eystrasalts- löndunum þremur, að gera skuld- bindandi áætlanir um að auka framlög sín til varnarmála í áföng- um upp í tvö prósent af vergri landsframleiðslu. Þar sem Eystrasaltslöndin þiggja aðstoð annarra NATO-landa við að annast lofthelgiseftirlit í lögsögu þeirra, sem að miklu leyti er kostað af útgerðarríkjum þotnanna sem sinna því, leggja stjórnvöld í Tall- inn, Ríga og Vilníus sig fram um að standa undir þessum væntingum NATO, þrátt fyrir að þröngt sé í búi hjá sovétlýðveldunum fyrrverandi. Erfitt er að sjá að NATO, eða eitt- hvert eitt eða fleiri evrópsk aðildar- ríki bandalagsins, muni taka í mál að efla varnarskuldbindingar sínar gagnvart Íslandi nema gegn því að Íslendingar leggi mun meira „í púkkið“ en þeir gera nú. Um þetta segir varnarmálafræð- ingurinn Julian Lindley-French við rannsóknamiðstöðina Centre for Applied Policy við Münchenarhá- skóla: „Jafnvel minnstu aðildar- þjóðir bandalagsins verða að hlíta því að á meðan aðild færir þeim öryggi hins sterkasta, verða þau einnig að axla sinn skerf af alþjóð- legum skuldbindingum.“ Leiðrétt: Þau mistök urðu við vinnslu korts af varnarsvæðinu sem birtist í blaðinu í gær að Sandgerði var merkt sem Hafnir. Dvínandi gildi hornsteinanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.