Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 16
Aðildin að Atlantshafs-
bandalaginu og varnar-
samstarfið við Bandarík-
in hafa í meira en hálfa
öld verið hornsteinar
öryggis- og varnarmála-
stefnu Íslands. Margt
hefur grafið undan
þessum hornsteinum á
síðustu árum.
Önnur grein.
„Tímabært er að samstarf [Íslands
við Bandaríkin og Atlantshafs-
bandalagið í öryggis- og varnarmál-
um] verði aðlagað frekar þeim
breytingum sem orðið hafa í
umheiminum á síðustu árum og að
Íslendingar taki aukinn þátt í vörn-
um landsins.“
Þetta mátti lesa í skýrslunni
„Öryggis- og varnarmál Íslands við
aldamót“, fylgiskjali með ræðu
utanríkisráðherra á Alþingi 25.
febrúar 1999, en höfundar þess
voru þáverandi fastafulltrúi Íslands
í höfuðstöðvum NATO og þáverandi
yfirmenn skrifstofa varnarmála og
alþjóðamála í utanríkisráðuneyt-
inu.
Sex og hálfu ári eftir að þessi orð
voru skrifuð gerðist það loks, að
þetta samstarf var „aðlagað frekar
þeim breytingum sem orðið hafa í
umheiminum á síðustu árum“ með
einhliða ákvörðun Bandaríkjastjórn-
ar um brottför varnarliðsins og nýju
samkomulagi um framhald varnar-
samstarfs landanna án fastrar við-
veru bandarísks herliðs hérlendis.
Enn er hins vegar eftir að skil-
greina nánar með hvaða hætti
Íslendingar taka aukinn þátt í vörn-
um landsins.
Í skýrslum utanríkisráðherra til
Alþingis um utanríkismál hefur í
áratugi verið fastur liður að geta
þess, að hornsteinar öryggis- og
varnarmálastefnu Íslands væru
aðildin að Atlantshafsbandalaginu
og varnarsamstarfið við Bandarík-
in. Þetta tvennt hefur tryggt varnir
Íslands í yfir hálfa öld.
En óhætt er að fullyrða að gildi
hvors tveggja hefur rýrnað á síð-
ustu árum. NATO hefur breytzt úr
hávígvæddu varnarbandalagi Vest-
ur-Evrópu og Norður-Ameríku gegn
sovézku ógninni í kalda stríðinu, í
laustengdari öryggismálasamtök
hátt í þrjátíu ríkja - eða yfir fjörutíu
ríkja ef með eru talin öll samstarfs-
ríkin í Evró-Atlantshafssamstarfs-
ráðinu. Hinni miklu fjölgun aðildar-
ríkja í bandalaginu hefur fylgt, að
kjölfesturíkið Bandaríkin hefur að
mörgu leyti hætt að líta á NATO
sem meginumgjörð tengsla við
bandamenn sína.
Og margir eiga erfitt með að sjá
að „hreyfanlegar varnir“ og leyni-
leg varnaráætlun nýja samkomu-
lagsins við Bandaríkin jafnist á við
þær „sýnilegu og trúverðugu“ varn-
ir sem hér voru með varnarliðinu,
einkum og sér í lagi með orrustu-
þotum þess.
Allt frá því járntjaldið féll og Var-
sjárbandalagið var leyst upp í byrj-
un tíunda áratugarins hefur andláti
NATO ítrekað verið spáð. Slíkum
spám fjölgaði til muna er deilurnar
stóðu sem hæst um Íraksstríðið árið
2003. Sérfræðingar telja þó að
ástæðulaust sé að ætla annað en að
NATO takist að tryggja tilveru sína
um fyrirsjáanlega framtíð.
„Frá því um aldamótin hafa ráða-
menn bandalagsins lært að virða og
starfa innan þeirra takmarkana
sem bandalagið verður að virða ef
það á að lifa af,“ skrifar danski
varnarmálafræðingurinn Sten
Rynning í nýjasta NATO Review.
Rynning segir að í lok tíunda
áratugarins hafi „pólitískur metn-
aður og raunveruleikinn lent í
árekstri í Kosovo“, sem hafi leitt til
verstu kreppu NATO frá því kalda
stríðinu lauk, og sú kreppa dýpkaði
enn í kjölfar hryðjuverkaárásanna
á Bandaríkin 11. september 2001 og
hernaðarins sem fylgdi í kjölfarið í
Afganistan og Írak.
Að sögn Rynnings er metnaður
NATO nú kominn í betri takt við
veruleikann og bandalagið á góðri
leið með að endurnýja sig. Íhlutun
NATO í Kosovo, fyrsta „utan-svæð-
is“-hernaðaraðgerð bandalagsins,
leiddi til djúpstæðra deilna innan
bandalagsins um það hvert hlut-
verk þess skyldi vera. Þessar deilur
leiddu Bandaríkjamenn til að álykta
að hernaðaraðgerðir sínar fram-
kvæmdu þeir heldur án þess að
blanda hinu fjölþjóðlega bandalagi í
þær, og leiðandi ríki meginlands-
Evrópu til að styðja frekar nýja
öryggis- og varnarmálastefnu Evr-
ópusambandsins.
Deilurnar sýndu í reynd að ekki
væri lengur hægt að halda sömu
einingu innan bandalagsins og hin
sameinandi ógn úr austri hafði gert
mögulega allan kaldastríðstímann.
„Lærdómar sem dregnir voru af
þessu urðu kveikjan að breyttum
áherslum NATO. … Umskiptaáætl-
unin sem nú stendur til að uppfæra
[á leiðtogafundinum] í Ríga [í lok
þessa mánaðar], endurspeglar að
pólitískur metnaður er kominn í
takt við veruleikann,“ skrifar Rynn-
ing. „Útgangspunkturinn er ekki
metnaður til einingar um allar
aðgerðir, heldur þörfin á að byggja
upp bandalag sem stendur samein-
að en er sveigjanlegt, þar sem mis-
munandi samsettir hópar aðildar-
ríkja taka höndum saman um ólík
verkefni á grunni hagsmuna og
getu.“
Kjarninn í aðdráttarafli NATO
er enn fimmta grein stofnsáttmál-
ans, sem kveður á um að árás á eitt
aðildarríki jafngildi árás á þau öll,
og að á bak við þá tryggingu standi
kjarnorkuvopnabúr Bandaríkjanna
og sameinaður hernaðarmáttur
aðildarríkjanna. Enda bíða þjóðir í
Suðaustur- og Austur-Evrópu enn í
röðum eftir að fá inngöngu í banda-
lagið. Hugmyndir um að raðir þess
verði opnaðar fyrir samherjum
fjarri Evrópu og Atlantshafssvæð-
inu á borð við Ástralíu og Japan og
verði þar með eins konar „OECD
öryggismála“ hafa þó ekki hlotið
hljómgrunn innan bandalagsins,
enn sem komið er að minnsta kosti.
Er Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, lýsti því
yfir að framvegis myndi hvert
verkefni ráða því hvaða bandamenn
Bandaríkin fengju til liðs við sig,
virtist hann með því ætla NATO
veigaminna hlutverk. En ófarirnar í
Írak hafa kennt ráðamönnum í
Washington að án bandamanna
getur jafnvel mesta herveldi sög-
unnar ekki verið, ætli það sér að ná
árangri í öðrum eins metnaðarfull-
um verkefnum og að „flytja út“ lýð-
ræði og gildi réttarríkis og mann-
réttinda til heimshluta eins og
Miðausturlanda. Þetta eru einmitt
þau gildi sem NATO stendur vörð
um. Þetta hefur aukið aftur gagn-
semi NATO í augum ráðamanna
vestra. Í nýjustu þjóðaröryggisá-
ætlun Bandaríkjanna (National Sec-
urity Strategy) stendur að NATO-
samstarfið sé enn grundvallarþáttur
í bandarískri varnarmálastefnu.
Þegar þjóðaröryggisáætlanir
Bandaríkjanna sem gerðar hafa
verið í sex ára stjórnartíð George
W. Bush (frá árinu 2002 og 2006)
eru skoðaðar nánar, er annars
greinilegt að samstarfi við banda-
menn er þar gert mun lægra undir
höfði en áður var. Michael T. Corg-
an, dósent við Boston-háskóla og
gestakennari í alþjóðastjórnmálum
við Háskóla Íslands, kemst að þeirri
niðurstöðu í nýrri rannsókn á þessu
efni, að „mikilvægi Íslands í varn-
aráætlunum Bandaríkjanna … er
nú aðeins skugginn af því sem það
var einu sinni.“ Varnarþarfir
Íslands séu lentar mjög neðarlega í
forgangsröðun utanríkis- og örygg-
ismálastefnu Bandaríkjanna.
Á fyrstu árunum eftir lok kalda
stríðins drógu evrópsku NATO-
ríkin verulega úr útgjöldum til
varnarmála. Þessi samdráttur jók
enn á það gríðarstóra bil sem er á
milli hernaðargetu Evrópuríkjanna
annars vegar og Bandaríkjanna
hins vegar. Að evrópsk varnarút-
gjöld deilist þar að auki á ótal
aðskilda heri þjóðríkjanna gerir
þau enn óskilvirkari í samanburðin-
um við Bandaríkin. Þessi „getugjá“
á sinn þátt í léttara vægi NATO í
huga bandarískra ráðamanna.
Bandaríkjamenn hafa lengi þrýst
mjög á evrópska bandamenn sína
að auka útgjöld til varnarmála og
fjárfesta í samhæfðari og skilvirk-
ari herafla sem betur er í stakk
búinn að bregðast við hættum og
verkefnum nútímans.
Þetta hefur meðal annars orðið
til þess að NATO hefur gert nýju
aðildarríkjunum í Mið- og Austur-
Evrópu, þar á meðal Eystrasalts-
löndunum þremur, að gera skuld-
bindandi áætlanir um að auka
framlög sín til varnarmála í áföng-
um upp í tvö prósent af vergri
landsframleiðslu.
Þar sem Eystrasaltslöndin þiggja
aðstoð annarra NATO-landa við að
annast lofthelgiseftirlit í lögsögu
þeirra, sem að miklu leyti er kostað
af útgerðarríkjum þotnanna sem
sinna því, leggja stjórnvöld í Tall-
inn, Ríga og Vilníus sig fram um að
standa undir þessum væntingum
NATO, þrátt fyrir að þröngt sé í búi
hjá sovétlýðveldunum fyrrverandi.
Erfitt er að sjá að NATO, eða eitt-
hvert eitt eða fleiri evrópsk aðildar-
ríki bandalagsins, muni taka í mál
að efla varnarskuldbindingar sínar
gagnvart Íslandi nema gegn því að
Íslendingar leggi mun meira „í
púkkið“ en þeir gera nú.
Um þetta segir varnarmálafræð-
ingurinn Julian Lindley-French við
rannsóknamiðstöðina Centre for
Applied Policy við Münchenarhá-
skóla: „Jafnvel minnstu aðildar-
þjóðir bandalagsins verða að hlíta
því að á meðan aðild færir þeim
öryggi hins sterkasta, verða þau
einnig að axla sinn skerf af alþjóð-
legum skuldbindingum.“
Leiðrétt: Þau mistök urðu við vinnslu korts
af varnarsvæðinu sem birtist í blaðinu í
gær að Sandgerði var merkt sem Hafnir.
Dvínandi gildi hornsteinanna