Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 12
Sjálfstæðisflokkurinn
á sex þingsæti í Suðvesturkjör-
dæmi. Flokkurinn fékk fimm
menn kjörna í síðustu kosningum
og honum bættist einn þingmaður
árið 2005 þegar Gunnar Örn
Örlygsson gekk úr Frjálslynda
flokknum í Sjálfstæðisflokkinn.
Ekkert þeirra sem skipuðu þrjú
efstu sætin í síðustu kosningum
eru nú í framboði í kjördæminu.
Árni M. Mathiesen færði sig yfir í
Suðurkjördæmi, Gunnar I. Birgis-
son lét af þingmennsku á kjör-
tímabilinu og varð bæjarstjóri í
Kópavogi og Sigríður Anna Þórð-
ardóttir sækist ekki eftir endur-
kjöri. Það gera hins vegar Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Bjarni Benediktsson og Sigur-
rós Þorgrímsdóttir sem tók sæti
Gunnars Birgissonar á þingi. Sig-
urrós sækist eftir fjórða sætinu,
líkt og Jón Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri, Ragnheiður Elín
Árnadóttir, aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, og Bryndís Har-
aldsdóttir varaþingmaður sem
stefnir á 4.-5. sæti. Fimmta sætið
ætti að heita öruggt þingsæti og
raunar sýnir nýleg skoðanakönn-
un að Sjálfstæðisflokkurinn geti
jafnvel vænst sjö þingmanna í
kjördæminu.
Um þriðja sætið bítast Ármann
Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórn-
ar Kópavogs og Ragnheiður Rík-
harðsdóttir bæjarstjóri í Mosfells-
bæ. Bæði eru sjóuð í
sveitarstjórnarmálum en reyna
nú fyrir sér í landsmálunum og
stefna á öruggt þingsæti. Árni Þór
Helgason arkitekt og Pétur Árni
Jónsson skattaráðgjafi gefa kost á
sér í fimmta sæti listans og Stein-
unn Guðnadóttir íþróttakennari í
sjötta sætið.
Prófkjörið fer fram á morgun
og er kosið í öllum sex bæjarfélög-
um kjördæmisins. Hefst kjörfund-
ur klukkan níu og stendur til 18.
Þá er fyrstu talna að vænta. Tæp-
lega 16.500 kusu Sjálfstæðisflokk-
inn í Suðvesturkjördæmi í síðustu
kosningum.
Átta sækjast eftir
þremur þingsætum
Eining er um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og
Bjarni Benediktsson alþingismaður skipi tvö efstu sætin á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvesturkjördæmi. Hörð barátta er um önnur sæti listans.
Fyrirspurnir um sölu
Reykjavíkurborgar á hlut sínum í
Landsvirkjun, sem fulltrúar Sam-
fylkingarinnar í borgarráði lögðu
fram á fundi í síðustu viku, voru
ekki útræddar á fundi ráðsins í
gær.
Fyrirspurnirnar snerust um að
borgarstjóri Reykjavíkur, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, hefði selt
hlutinn fyrir ¿smánarverð¿ og
rökstuddu þeir þá skoðun með því
að vísa til verðmats á Landsvirkj-
un upp á 91,2 milljarða sem gert
var í lok árs 2005. Reykjavíkur-
borg seldi hlutinn miðað við að
verðgildi Landsvirkjunar væri
60,5 milljarðar.
Í Fréttablaðinu á laugardaginn
sagðist borgarstjóri ekki kannast
við 91,2 milljarða verðmatið,
meðal annars vegna þess að það
hefði aldrei verið lagt fyrir borg-
arráð.
Á fundinum í gær lögðu fulltrú-
ar Samfylkingarinnar fram ósk
um að 60,5 milljarða verðmatið,
sem lá til grundvallar samningn-
um um sölu hlutarins í Landsvirkj-
un, verði lagt fyrir borgarráð.
Björn Ingi Hrafnsson, formað-
ur borgarráðs, segir að „engin
ákvörðun hafi verið tekin“ um
hvort verðmatið verði lagt fyrir
ráðið en segist „reikna með“ að
fulltrúar Samfylkingarinnar fái
svör við þeim spurningum sem
þeir hafa lagt fram.
Á laugardaginn verður auka-
fundur í borgarráði þar sem meðal
annars verður fjallað um fyrir-
spurnir fulltrúa Samfylkingarinn-
ar.
Vilja sjá verðmat Landsvirkjunar
Fimmti hver karlkyns
Dani sem náð hefur sextíu og
fimm ára aldri á við áfengis-
vandamál að stríða. Mælist
ofdrykkja í þessum hópi þrefalt
meiri nú en hún gerði fyrir tólf
árum. Tíunda hver kona á sama
aldri drekkur einnig of mikið.
Þetta kom fram í Nyhedsavisen.
Sérfræðingur danska heilbrigðis-
ráðuneytisins segir kjarnann í
þessum hópi hafa misnotað áfengi
í rúm tuttugu ár og því muni
áfengistengdir sjúkdómar verða
algengari í framtíðinni.
Þrefalt meiri
ofdrykkja
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík, 11. nóvember nk.
6. sæti
Bryndís Ísfold
kynntu þér stefnumálin á
www.bryndisisfold.com
Grétar Þorsteinsson Sigurður Bessason
formaður Eflingar
Hugleikur Dagsson
myndasöguhöfundur
Oddný Sturludóttir
varaborgarfulltrúi
Falasteen Abu Libdeh
þýðandi
Eiríkur Bergmann
dósent
Dagný Ósk Aradóttir
laganemi
Reynir Harðarson
stofnandi CCP hf
Páll Óskar
Hjálmtýsson
söngvari
Magnús Már
Guðmundsson
Form. ungra jafnaðarmanna
Svanfríður Jónasdóttir
bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð
Guðrún Margrét
Guðmundsdóttir
Formaður UNIFEM
Lone Jensen
sviðsstjóri
Jón Atli Helgason
tónlistarmaður
Þórunn Pálsdóttir
kennari og leikari
Solveig Thorlacius
mannfræðingur
Ari Skúlason
hagfræðingur
Guðlaug Magnúsdóttir
fjölskylduráðgjafi
Við styðjum Bryndísi Ísfold í 6. sætið