Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 46
tískumolar
Helgu Ólafsdóttur
Það er oft sagt að allir helstu
tískustraumar byrji í Japan,
sérstaklega innan götutísk-
unnar. Þar er allt leyfilegt og
því meira því betra. Fötin
eru hlaðin af ótrúlegum
smáatriðum sem hvergi
hafa sést áður. Það sama
á við um farða og
hárgreiðslurnar. Japanar
eru ekki hræddir við að
feta ótroðnar slóðir í þeim
efnum. Ég verð að
viðurkenna að mér finnst
ansi hressilegt að rýna í
japanska tísku, er ekki
málið að hrista af sér
stífleikann og taka
þessar stúlkur frá Japan
sér til fyrirmyndar??
Byrjar tískan fyrir austan?
SIRKUS10.11.06
6
„Ég er nýbyrjuð með þessa síðu, hún er eiginlega enn þá
bara í vinnslu,“ segir Elísabet Alma Svendsen í Rokki og
rósum en hún heldur úti tískublogginu reykjaviklooks.
blogspot.com. Á síðunni birtir Elísabet ljósmyndir af fólki sem
klæðir sig á spennandi og frumlegan hátt.
„Þetta er bara fólk sem ég hitti á förnum vegi,“ segir Elísabet
um viðfangsefni sín. Hún segir flesta taka vel í það þegar hún
vindur sér upp og biður um að fá að smella af mynd. „Fólki
finnst það bara skemmtilegt,“ segir hún.
Síðan hennar Elísabetar er byggð á fyrirmyndum um allan
heim. Til dæmis Face Hunter-síðunni en maðurinn á bak við
hana, Yvan Rodic, hefur vakið athygli fyrir götutískuljósmyndir
sem hann birtir daglega á heimasíðu sinni. Yvan þessi var í
Reykjavík í síðasta mánuði og fór meðal annars á Airwaves-
hátíðina. „Ég hitti hann einmitt þegar hann var hérna á
Airwaves. Við töluðum saman og hann nefndi við mig hvað
honum þætti það skrýtið að það væri engin síða sem fangaði
götutískuna í Reykjavík.“
Elísabet tók því áskorun Yvans og segir það verðugt verkefni
að klófesta götutískuna í Reykjavík. „Ég hef alltaf haft áhuga á
tísku og svo finnst mér þetta bara svo gaman.“
ELÍSABET ALMA SVENDSEN KLÓFESTIR REYKVÍSKA GÖTUTÍSKU Á BLOGGINU SÍNU:
Face Hunter er fyrirmyndin
Ég ætla að óska öllum þeim til hamingju sem
náðu að krækja sér í Viktor & Rolf hönnun
þegar H&M opnaði dyrnar í vikunni. Ég reikna
með að það hafi verið kattaslagur um flíkurnar
og allt sé búið í dag!
Allt búið!
Nýjasti aukahluturinn í Japan eru bling bling
neglur. Mjög geggjað fyrirbæri, málið er að
kaupa mismunandi lituð naglalökk og svo eru
neglurnar skreyttar með alls konar steinum,
demöntum og dúlleríi eins og Japönum er
einum lagið. Ef þú ert í aukahluta bling bling
krísu þá er þetta alveg málið.
Geggjaðar
japanskar neglur!
Y-3 heitir lína sem hinn japanski Yohji Yamamoto hannar fyrir
adidas. Herralínan er nú fáanleg á Íslandi í hinni undurfögru
nýju lífsstílsverslun 3 hæðir á Laugavegi 60. Ef þig vantar flotta
og einstaka jólagjöf fyrir karlinn, þá mæli ég með Y-3. Það er
samt bannað að láta jólainnkaupin bíða fram á Þorláksmessu,
þá verður allt búið!
Klæddu karlinn!
Upp á síðkastið hef ég heyrt marga tískuspek-
úlanta segja að allt sé í tísku! Ekki falla í þá
gildru að trúa
þessu, því þetta er
ekki rétt. Eitt af því
sem er alls ekki í
tísku eru stutt
gallapils, hin
svokölluðu mínípils.
Ef þú ert ein af
þessum forföllnu
mínipilsa-gellum,
plísssss, leggið
þessum litlu
pjötlum. Prófaðu í
staðinn síða kósí
peysu, með þykkum
og hlýjum sokka-
buxum, belti í mittið
og flott stígvél eða
hæla!
Engin míní-
pils, takk!
Elísabet Alma Svendsen,
áhugakona um tísku, starfs-
maður í Rokk og Rósum.
reykjaviklooks.blogspot.com