Tíminn - 30.03.1979, Síða 21
Föstudagur 30. mars 1979
21
Ungmennafélag Biskupstungna frumsýnir:
íslandsklukkuna
— í Aratungu í kvöld
FI — Ungmennafélag Biskups-
tungna frumsýnir tslandsklukk-
una eftir Halldór Laxness i Fé-
lagsheimilinu Aratungu i kvöld.
Leikstjóri er Sunna Borg. en hún
stýröi leikflokki Ungmennafélags
Biskupstungna á liðnu ári einnig.
Leikgerð tslandsklukkunnar er
hér flutt svo til óstytt. Sviðsskipt-
ingar eru tiöar og útbúnaöur allur
flókinn. Hefur Stéingrimur Vig-
fússon, Laugarási, haft forystu
um leiktjaldagerð, en formaður
Geölæknafélag
íslands:
Læknaráð
Land-
spítalans
— heföi átt að leita
álits geðlækna
FI — „Læknaráð Landspitalans
hefði átt að leita álits geðlækna
viö samningu greinargeröar
þeirrar er það birti 7.2. 1979, þar
sem mælt er gegn áætlun um
geðdeild við Landspitalann”,
segir m.a. i yfirlýsingu, sem
gerð var 12. þ.m. á almennum
fundi i Geölæknafélagi tslands.
Taldi fundurinnekki sæma að
leggjast gegn umbótum á þjón-
ustu viðeinn hóp sjúklinga, þótt
bæta þurfi einnig aöstööu ann-
arra. Ráðist hafi verið i bygg-
ingu geödeildar við Landspital-
ann af brýnni þörf vegna lang-
varandi skorts á aðstöðu til
þjónustu við geðsjúka.
Fundurinn lýsti aftur á móti
ánægju sinni með þær úrbætur,
sem eruá næsta leiti á þjónustu
við geðsjúka og treystir heil-
brigöisyfirvöldum að vinna
áfram aö nauðsynlegri upp-
byggingu þessa þáttar heil-
brigðiskerfisins.
'---------i_______
Sýning
á vlnnu
— nemenda í
Breiðholts-
skóla
Sýning veröur á vinnunemenda
i Breiöhoitsskóla iaugardaginn
31. mars og sunnudaginn 1. aprll
n.k. og verðurhún opin kl. 14 til 18
báða dagana.
bá er afmælisrit skólans að
koma út með margvislegu efni
eftir nemendur og kennara, en
þetta er tlunda starfsár skólans —
fyrsta skólans I Breiöholtinu.
Skólinn sem byggður er eftir
teikningu arkitektanna Ormars
Þórs Guömundssonar og örnólfs
Hall varfullbyggöur haustið 1971
og um vorið 1972 voru nemendur
skólans flestir eöa 1455 en skólinn
er byggður fyrir 800-850 nemend-
ur.
Nú eru I skólanum um 1100
nemendur. Guömundur Magnús-
sonfræðslustjóri Austurlands var
skólastjóri Breiöholtsskólans til
1977. Núverandi skólastjóri er
Þorvaldur Öskarsson.
leiknefndar, Halla Bjarnadóttir i
Vatnsleysu, hefur borið hita og
þunga undirbúningsins I heild.
Leikmyndina gerði Gunnar
Bjarnason.
Með veigamestu hlutverkin
fara Bragi Þorsteinsson, Vatns-
leysu,leikur Jón Hreggviðsson, en
Rggnar Lýðsson, Gýgjarhóli,
Arnas Arneus og Jóhanna Ró-
bertsdóttir, Neðra-Dal, Snæfriöi
Islandssól.
Fjölmenni hefur starfað að
undirbúningi leiksýningarinnar
enda eru leikarar tuttugu og sjö
og hinir ótaldir, sem beint eða
óbeint hafa komið við sögu.
Aðstæður til æfinga vegna veöurs
og færðar hafa ekki veriö sem
skyldi, en aðstandendur sýning-
arinnar hafa fórnað öllum sfnum
kröftum fyrir hana á myrkum
miðsvetrardögum.
A sl. ári sýndi Ungmennafélag
Biskupstungna sjónleikinn Glsl
eftir Brendan Behan. Formaður
UMF Biskupstungna er nú Sveinn
Snæland. Heimir Steinsson skóla-
stjóri i Skálholti ritar formálsorð
i sýningarskrá að íslandsklukk-
Jóhanna Róbertsdóttir og
Sigurður Þorsteinsson sem
Snæfríður tslandssól og lög-
maður Evdalin
Kennarar við Ármúlaskóla
— óþreyjufullir eftir ákvörðun um framtlð skólans
AM — Kennarar viö Armúla-
skóla hafa sent frá sér mót-
mælaályktun þar sem átalinn er
sá dráttur, sem orðinn er á
ákvörðun um starfsemi skólans
næsta skólaár, og álitur óviðun-
andi að búa við þá óvissu sem
rikir um framtiö skólans. Enn-
fremur er þess óskað, að kenn-
arar við skólann séu haföir með
i ráðum er fjallaö verður um
þessi mál.
Magnús Jónsson, skólastjóri
Armúlaskóla, sagði blaðinu, aö
þar sem ekki hefðu enn veriö
settlög um framhaldsnám væru
fjölbrautarskólarnir ekki sam-
kvæmt heimildum nema Fjöl-
brautarskólinn í Breiðholti, en
gefa yrði heimild hverju sinni
fyrir Armúlaskólann og Lauga-
lækjarskóla.
Þetta skapar margháttaða
óvissu fyrir kennaraliðið, til
dæmis er nú einn grunnskóla-
bekkur við Armúlaskóla, sem
ekki er að vita nema verði lagö-
ur niöur þegar lögin um fram-
haldsnám veröa sett, en rætt er
um að leggja grunnskólann
alveg niöur, en fjölga fram-
haldsbrautum. Enn fremur er
ekki að vita nema skólinn veröi
tekinn til einhverra annatra
nota en nú.
Mörgum mun þykja ólíklegt
að lögin um framhaldsnám
verði afgreidd á þessu vori, þar
sem mörg ljón eru i veginum, —
ekki sist ágreiningur um kostn-
aðarskiptingu milli rlkis og
sveitarfélaga.
iSkerðu skorpuna af sam *
lokunríi minni, hafðu. litla
gúrkusneið, settu 45% ost
i stað 30% litla sneið af'
tómat, og settu meira
salt.
© Bull's