Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS SUBARU FORESTER CS Nýskr. 02.06 - Beinskiptur - Ekinn 10þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 2.390 .000. - Noregur, Ísland, Ástralía, Írland og Svíþjóð raða sér í efstu sæti lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna (HDI), sem gefinn er út með þróunarskýrslu stofnunarinnar í ár (Human Development Report). Í lífskjaralistanum er tekið tillit til þriggja þátta, lífslíkna, menntunarstigs og þjóðartekna á mann samkvæmt kaupmáttarstuðli. Verst eru lífskjörin samkvæmt þessari mælingu í Afríkuríkinu Níger. Það vermir botnsæti listans, það 177., með lífskjarastuðulinn 0,311. Ísland mælist með stuðulinn 0,96 en Noregur 0,965. Yfirskrift þróunarskýrslu SÞ í ár er „Handan skorts: Völd, fátækt og vatnskreppan í heiminum“. Eins og fram kom í máli Sørens Mandrup Petersen, fulltrúa norrænu skrifstofu þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, UNDP, sem kynnti skýrsluna á blaðamannafundi í Reykjavík í gær, er í henni vakin athygli á þeim alvarlega vanda sem skortur á aðgengi að neysluvatni veldur í þróunarlöndunum. Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, kynnti á fundin- um umfangsmikið vatns- og hreinlætisverkefni sem stofnunin er að hefja í Malaví. Verkefnið verður unnið í samstarfi við þrjú ráðuneyti í Malaví og héraðs- stjórnir á Monkey Bay-svæðinu í suðurhluta landsins. Um er að ræða verkefni til fjögurra ára sem hefst fyrir áramót og lýkur í árslok 2010. Verkefnið er stórt á mælikvarða Þróunarsamvinnustofnunar. Kostnaðar- tölur hljóða upp á rúmlega þrjár milljónir Bandaríkja- dala fyrir verkið í heild, þar af er hlutur ÞSSÍ alls 2,6 milljónir dala eða rúmlega 180 milljónir króna. . Niðurstaða efna- rannsóknar á fimmtán e-töflum sem lögreglan í Reykjavík gerði upptækar hjá rúmlega þrítugum karlmanni hinn 7. nóvember liggur nú fyrir. Ekkert kom fram sem benti til þess að þær innihéldu eitur. Rannsóknin fór fram í ljósi þess að skammt er síðan að stúlka lést eftir inntöku e-töflu og tveir unglingspiltar urðu fárveikir og voru fluttir á sjúkrahús um sömu helgi. Grunur vaknaði um að á markaðinum væru baneitraðar e- töflur. Því var efnið sem tekið var af manninum sent til rannsóknar í flýtimeðferð. Maðurinn sem hafði töflurnar í fórum sínum reyndist einnig vera með um 30 grömm af amfetamíni. Ekkert eiturefni í e-töflunum Talsvert hefur verið um að innflytjendur sem búsettir eru hér á landi hafi hringt í Alþjóðahúsið til að lýsa áhyggj- um sínum og kvíða vegna þeirrar umræðu um innflytjendamál sem á sér stað nú, að sögn Einars Skúlasonar, framkvæmdastjóra þess. „Fólk hefur áhyggjur af stöðu sinni í samfélaginu og það hefur áhyggjur af framtíðinni,“ segir Einar. „Þeir sem hafa hringt er fólk sem sest hefur hér að og horfir til búsetu hér til framtíðar. Það veltir fyrir sér hvert stefni með þessari umræðu.“ Einar segir að þeir sem hringt hafi vegna þessa séu frá ýmsum löndum. Þá hafi fólk sem komið hafi í Alþjóðahúsið annarra erinda einnig rætt um áhyggjur sínar vegna innflytjendaumræð- unnar. „Þó svo að ekki skynji allir umræðuna, þar sem ekki allir fylgjast með íslenskum fjölmiðl- um, þá held ég að langflestir viti um hana og að hún sé rædd í hópi innflytjenda. Þá tel ég að and- rúmsloft sé erfiðara á ýmsum vinnustöðum nú en áður, því fólk er svo fljótt til. Ég get ímyndað mér að andúð sé nú sýnilegri inni á vinnustöðum. Þegar fólk sem er áberandi í samfélaginu, hvort sem það eru þingmenn eða aðrir, tjáir sig opinberlega um ákveðin málefni á einhvern ákveðinn hátt þá finna aðrir ef til vill réttlæt- ingu fyrir ákveðnu viðhorfi sínu og réttlætingu fyrir að gera það ljósara inni á sínu svæði, vegna þess að viðhorfið hefur verið samþykkt í opinberri umræðu. En það er reynsla okkar að það þurfi mikið að ganga á hjá þessu fólki áður en það fer að kvarta.“ Einar bendir á að fólk eigi fárra kosta völ hér á landi, sé því mismunað á grundvelli uppruna. Það þurfi að kæra til lögreglu sem hegningarlagabrot og síðan sé tekin ákvörðun um framhald máls. Þetta sé því miklu lengra og flóknara ferli hér á landi heldur en í löndum Evrópusambandsins og í Noregi. Þar séu til staðar lög sem banni mismunun. Nóg sé að viðkomandi tilkynni mismunun og þá fari rannsókn af stað. „En það er alveg klárt að þess- ar áhyggjur og jafnvel kvíði hafa áhrif á líðan fólks,“ segir Einar. „Óvissan um framtíðina verður meiri.“ Innflytjendur lýsa áhyggjum og kvíða Talsvert er um að innflytjendur sem búa hér hringi í Alþjóðahús til að lýsa áhyggjum og kvíða vegna þeirrar umræðu sem nú á sér stað hér á landi um innflytjendamál. Fólk hefur áhyggjur af stöðu sinni í samfélaginu. Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, skoraði í gær á aðildarþjóðirnar að taka sig á og verja meira fé til varnarmála. Aðeins sjö af 26 NATO-ríkjum verja í þau fullum tveimur prósentum af landsfram- leiðslu, eins og NATO ætlast til að hvert og eitt þeirra geri. Ísland er eina NATO-ríkið sem hefur engin útgjöld til varnar- mála á fjárlögum. Við brottför varnarliðsins hefur réttlæting Íslendinga fyrir því að þeir spari sér þennan útgjaldalið veikst til muna. Tvö prósent af landsfram- leiðslu Íslands samsvarar um tuttugu milljörðum. Scheffer brýnir NATO-þjóðir Jóhannes Jónsson var yfirheyrður í gær af starfsmönn- um embættis Ríkislögreglustjóra vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum er tengjast starfsemi Fjárfestingafélagsins Gaums. Jóhannes er stjórnarfor- maður í félaginu. Jóhannes var yfirheyrður í tvo og hálfan tíma í húsakynnum Ríkislögreglustjóra. „Ég þurfti að vera í þessu musteri réttlætisins í um tvo og hálfan tíma. Mér finnst með ólíkindum að Jón H.B. Snorrason og Haraldur Johann- essen fái að stjórna enn einni aðförinni að mér, fjölskyldu minni og fyrirtækinu sem við tengjumst,“ sagði Jóhannes. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs og sonur Jóhann- esar Jónssonar, hefur þegar verið yfirheyrður vegna rannsóknar Ríkislögreglustjóra á meintum skattalagabrotum Baugs og Gaums. Spurður út í starfsemi Gaums Er pólitík orðin keppni í pen- ingaeyðslu? Ummerki um að kókaín hafi verið haft um hönd fundust á þremur af 30 klósettum danska þinghússins í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn, að því er danska blaðið BT greindi frá í gær. Þingforsetinn, Christian Mejdahl, segist sleginn og að málið sé tilefni lögreglurannsóknar. Í rannsókn BT var sama kókaínprófi beitt og lögreglan notar við leit að fíkniefnum. Klósettin þrjú þar sem kókaínleif- ar fundust eru í þeim hluta Kristjánsborgarhallar sem kallast Provianthuset. Kókaín á þing- húsklósettum „Það er búið að vera storm- ur og krapahríð í allan dag,“ sagði Jón Ingólfsson, bóndi og veðurathugunarmaður á Skjald- þingsstöðum, í gærkvöld. Þar mældist langmest úrkoma í gær á landinu, 51 millimetri. Vonskuveður var víða um land í gær. Lögreglan á Húsavík sagði að þar hefði snjóað allan daginn og gengið á með hvassviðri. Í gær- kvöld var orðið þungfært innan- bæjar og ekkert ferðaveður um héraðið og austur í land. Milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur var sömuleiðis hríðarveður og þungfært. Á Akureyri var kominn tals- verður snjór en lögreglan sagði engin stórtíðindi vegna veðurs þar. Illviðri var milli Hofsóss og Siglufjarðar og stórhríð á Þver- árfjalli. Hjá lögreglunni á Blönduósi fengust þær upplýsingar að fólk hefði lítið treyst sér til að aka Langadal vegna gríðarlegs hvassviðris. Vindhviður þar hafi farið um og yfir 40 metra á sek- úndu í „baneitruðum“ strengj- um. Á Blönduósi var nokkuð um að hlutir fykju til, meðal annars bárujárn. Á Skagaströnd skemmdist bátur í höfninni þegar hann rakst utan í annan. Á Vesturlandi var sömuleiðis mikið hvassviðri. Veðurstofan sagði að smám saman drægi úr vindi þegar liði á daginn í dag. Hvassviðri og hríð röskuðu umferð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.