Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 4
Tuttugu og fimm ára karlmaður var í
gær dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að ráðast
á lögreglumann á skemmtistaðnum Kaffi Akur-
eyri, að kvöldi 31. desember í fyrra. Einnig var
maðurinn fundinn sekur um að hafa í fórum
sínum rúmlega tvö grömm af amfetamíni.
Tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn
fóru í eftirlitsferð inn á skemmtistaðinn og
höfðu afskipti af manninum sem hafði komið
við sögu lögreglu áður vegna ofbeldis- og
fíkniefnamála. Maðurinn reiddist er annar
lögreglumannanna ætlaði sér að athuga hvað
hann væri með í vinstri hendi sinni og tók
hann lögreglumanninn þá hálstaki, sneri hann
niður í gólfið og veitti honum þungt hnefa-
högg. Lögreglumaðurinn fékk djúpan skurð í
vörina og hlaut tognunaráverka á hálsi og
kjálka. Í dómnum kemur fram að við handtök-
una hafi hópast að lögreglumönnum nokkur
fjöldi manna og spörkuðu einhverjir í
lögreglumennina. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni á Akureyri hefur aldrei komið
í ljós hverjir voru þar að verki.
Maðurinn var fyrst dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, í
mars 2003 fyrir líkamsárás. Í desember 2004
var maðurinn aftur dæmdur fyrir líkamsárás,
að þessu sinni í sex mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið í þrjú ár. Í október í fyrra var
maðurinn dæmdur í tíu mánaða fangelsi,
þar af sjö mánuði skilorðsbundið, fyrir
fíkniefnalagabrot.
Með broti sínu rauf maðurinn skilorð og
þykir „með vísan til sakaferils hans ekki fært
að skilorðsbinda refsinguna að neinu leyti“,
eins og segir orðrétt í dómnum.
„Það vantar bara að taka
ákvörðun,“ segir Tryggvi Sveinbjörnsson,
markaðsstjóri Borgarplasts, sem gagnrýnir
áhugaleysi yfirvalda og verktaka á plast-
vegatálmum sem fyrirtækið framleiðir.
Tveir Pólverjar hafa nú verið úrskurðaðir
í farbann. Þeir höfðu stöðu sakbornings við
yfirheyrslur í kjölfar þess að landi þeirra
lést eftir að bíl þeirra var á laugardagskvöld
ekið á vegatálma úr steypu á Reykjanes-
braut. Áhöld eru um það hver mannanna ók
bílnum og hvort ökumaðurinn hafi verið
drukkinn og ekið of greitt. Telja má senni-
legt að betur hefði farið hefði vegatálminn
verið úr plasti en ekki steypu.
Tryggvi hjá Borgarplasti segir að frá
árinu 2003 hafi fyrirtækið boðið upp á
vegatálma úr plasti sem fylltir eru með vatni
til þyngingar. Hann segir að erlendis tíðkist
ekki að nota steypta tálma nema á átaka-
svæðum. Að sögn Tryggva voru tálmar Borg-
arplasts upphaflega hannaðir í samráði við
Vegagerðina, lögreglu og umferðarráð.
Áhuginn fyrir framleiðslunni hafi hins vegar
reynst lítill þegar á reyndi.
„Plasttálmarnir hafa ekki náð fótfestu.
Skýringin er annars vegar sú að það skortir
að setja reglur um vegatálma og hins vegar
að framkvæmdaaðilar eru að skiptast á
þessum steyputálmum sem dúkka upp á
hverjum staðnum eftir annan,“ segir
Tryggvi.
Að áliti Tryggva er brýnt að búa þannig
um hnútana að plasttálmar séu notaðir miklu
meira en nú sé gert. Þótt þeir séu ef til vill
dýrari í upphafi þá borgi þeir sig á endanum.
Plasttálmarnir séu miklu sýnilegri en
steyputálmarnir. Einnig skemmast bílar ekki
eins mikið við að lenda á þeim og það
stórminnki slysahættu.
„Við höfum keypt svolítið af þessum
plasttálmum og erum meðmæltir þeim enda
studdum við þetta framtak á sínum tíma,“
segir Björn Ólafsson hjá Vegagerðinni.
Björn segir að hins vegar séu menn
gjarnan að rugla saman merkingum við
vinnustaði og girðingum sem ætlaðar séu til
að verja þá menn sem eru að störfum á
svæðinu. Plasttálmarnir séu góðir en eigi
kannski ekki alls staðar við:
„Það er ekki gott ef menn keyra beint í
gegnum þetta og á mannskap sem er bak við.
Það verður að horfa á þetta í réttu sam-
hengi.“
Tálmar úr plasti komi í
stað steypuklumpanna
Markaðsstjóri Borgarplasts, Tryggvi Sveinbjörnsson, gagnrýnir áhugaleysi á vegatálmum úr plasti sem
hann segir myndu stórminnka slysahættu og skemmdir á bílum. Björn Ólafsson hjá Vegagerðinni segir
plasttálmana góða en hins vegar þurfi stundum að vernda vinnandi menn með steyputálmum.
Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra segir
fullyrðingar Björgvins G.
Sigurðssonar í Fréttablaðinu í
gær að Framsóknarflokkurinn
hafi blekkt
þúsundir
Íslendinga með
fyrirheitum
sínum um
milljarð til
baráttunnar gegn
fíkniefnum vera
rangar. „Þetta er
ekki í fyrsta
skipti sem
Björgvin heldur
þessu fram og því hefur verið
margoft svarað. Það kom í ljós í
apríl 2003 þegar þetta var tekið
saman að nær tveimur milljörð-
um hafði verið bætt við í þessi
mál á kjörtímabilinu 1999–2003.
Þannig að ef einhver er að reyna
að blekkja einhvern í þessu máli
þá er Björgvin G. Sigurðsson að
reyna að blekkja þjóðina með
þessari fullyrðingu.“
Framlagið hátt í
tveir milljarðar
Mohammed Shabir,
sextugur háskólamaður, verður að
öllum líkindum forsætisráðherra í
nýrri Palestínustjórn, sem nú er í
fæðingu. Tvær helstu stjórnmála-
hreyfingar Palestínumanna,
Hamas og Fatah, hafa komið sér
saman um þetta, að því er AP
fréttastofan hafði eftir Moussa
Abu Marzouk, yfirmanni í höfuð-
stöðvum Hamas í Sýrlandi.
Hamas og Fatah hafa árangurs-
laust reynt að mynda stjórn allar
götur síðan Hamas vann meirihluta
í þingkosningum fyrr á árinu.
Shabir og aðrir helstu ráðherrar
væntanlegrar stjórnar eru hvorki
meðlimir Hamas né Fatah.
Palestínustjórn
er að verða til