Fréttablaðið - 14.11.2006, Page 6
Ertu ánægð(ur) með það að
Árni Johnsen sé á leið á þing
á ný?
Ert þú skráð(ur) hjá heimilis-
lækni?
Öruggt og hlýtt
Timberland PRO
öryggisskór
13.900kr.
Heyrnarhlífar
m. útvarpi vandað
tæki frá Bilsom
7.990kr.
Vattfóðraður kuldagalli
léttur og vatnsheldur
8.990 kr.
Predator
flottir öryggisskór
9.990 kr.
SÆ
B
R
A
U
T
D
ug
g
uv
o
g
ur
Súð
arvo
gur
K
na
rr
ar
vo
g
ur
ESSO Aðföng 14 verslanir – sjá www.esso.is Sími 560 3433
Endurvinnslan
VIÐ ERUM HÉR!
Knarrarvogi 4
Bein framlög ríkissjóðs til meðferð-
arstofnana og annarra aðila utan Landspítala -
háskólasjúkrahúss (LSH) sem sinna meðferðarúr-
ræðum fyrir áfengis- og fíkniefnaneytendur hafa
aukist um 139,6 milljónir á tímabilinu 2000-2006 á
verðlagi dagsins í dag.
Öll þjónusta sem krefst aðkomu lækna heyrir
undir heilbrigðisráðuneytið. Það veitir fjármagn til
SÁÁ, Hlaðgerðarkots (meðferðarheimilis Samhjálp-
ar) og vist- og meðferðarheimilisins Krýsuvíkur-
skóla auk meðferðardeilda innan LSH. Ekki reyndist
gerlegt að fá aðskildar tölur um framlög til meðferð-
arúrræða innan LSH við vinnslu þessarar greinar
fyrir tímabilið, en það framlag var um 308 milljónir
árið 2001. Núgildi framlags ráðuneytisins árið 2000
til annarra meðferðarstofnana er 521,3 milljónir, en
framlagið árið 2006 var 625,9 milljónir króna.
Rúm 80 prósent af framlögum heilbrigðisráðu-
neytisins utan LSH renna til SÁÁ. Samt sem áður
hefur SÁÁ þurft að skera niður í meðferðarþjónustu
sinni vegna rekstrarfjárskorts. Hann er að sögn
samtakanna tilkominn vegna þess að ríkisframlög til
meðferðarinnar voru ekki nægjanleg og höfðu
rýrnað að verðgildi undanfarin ár á undan.
Þjónustusamningur samtakanna við ríkið rann út
um síðustu áramót og að sögn Þórarins Tyrfingsson-
ar, yfirlæknis á Vogi, er bilið á milli þess sem
samtökin þurfa í rekstur sinn og þess sem ríkið
býður enn of breitt til að hægt sé að skrifa undir.
„En ég treysti því að menn séu skynsamir. Okkur
fannst allavega skynsamlegt að hinkra og sjá
framvindu mála áður en við förum að búa til
meðferð sem aðlagar sig þessum peningaskorti.“
Þórarinn segir að það vanti samt sem áður um 120
milljónir í rekstur samtakanna á verðlagi dagsins í
dag þar sem útgjaldaaukning hafi orðið vegna
launahækkana og nýrra lyfja. „Menn taka heldur
ekki alltaf inn í þetta að neysluvenjurnar breytast
með tímanum og þá þarf meiri pening í þetta.“
Öll þjónusta fyrir börn og unglinga undir 18 ára
aldri utan afvötnunar heyrir undir félagsmálaráðu-
neytið. Það veitir því fjármagni til heimila fyrir börn
og unglinga með þjónustusamninga við ríkið,
Meðferðarstöðvar ríkisins (Stuðlar), auk Byrgisins
og endurhæfingarstöðvarinnar Krossgatna.
Ráðuneytið veitti um 602,5 milljónum til mála-
flokksins árið 2000 á núverandi verðlagi en 637,7
milljónum árið 2006. Framlög þess hafa því aukist
um 32,5 milljónir á tímabilinu. Þess ber þó að geta að
börn og unglingar geta verið tekin til meðferðar án
þess að eiga við neysluvanda að stríða því þangað
eru einnig send börn vegna óupplýstra afbrota,
ofbeldisverka eða annarra heðgunarvandamála.
Rúmlega 70 prósent af öllum framlögum félagsmála-
ráðuneytisins til meðferðarmála renna til þessara
heimila.
Framlög hafa aukist
en ekki nógu mikið
Framlög ríkissjóðs til meðferðarmála hafa aukist um 139,6 milljónir króna frá alda-
mótum. Enn vantar þó 120 milljónir í rekstur SÁÁ vegna launahækkana og nýrra
lyfja. Þórarinn Tyrfingsson segir Íslendinga nægilega ríka til að geta gert betur.
Íbúar í Túnunum í Reykjavík
eru afar ósáttir við fyrirhugaða háhýsabyggð
á svokölluðum Höfðatorgsreit.
Í bréfi frá stjórn Íbúasamtaka Laugardals
sem sent er fyrir hönd íbúa í Túnunum og
Ásholti eru gagnrýnd fjölmörg atriði við
skipulagningu Höfðatorgsreitsins og
framsetningu kynningarefnis vegna fram-
kvæmdarinnar. Reisa á nokkrar afar háar
íbúðablokkir, þær tvær hæstu nítján og
sextán hæðir. Nítján hæða blokkin slagar
hátt upp í Hallgrímskirkjuturn.
Sérstaklega gagnrýna íbúarnir að frá
háhýsunum muni stafa mikill skuggi sem
leggist yfir hús þeirra þegar sól hallar til
vesturs, jafnvel um hásumar:
„Þetta kemur til með að hafa mikil áhrif á
Íverðmæti eignanna og fara þeir fram á
bætur frá borginni ef af verður,“ segir í bréfi
íbúasamtakanna.
Þá hafa íbúarnir einnig áhyggjur af
vindhviðum sem kunni að skapast í kring um
háhýsin. Þeir eru einnig hreinlega uggandi
um framtíð sinna eigin húsa. „Á hverfið
kannski að verða næsta byggingarsvæði?“
spyrja þeir.
Í gær sendu íbúarnir inn mótmæli á fund
skipulagsráðs Reykjavíkur. Eru þeir meðal
annars ósáttir við að til standi að breyta
deiliskipulagi að kröfu verktakafyrirtækisins
Eyktar þannig að byggingarmagn á Höfða-
torgsreitnum verði tvöfaldað. „Það flögrar að
okkur sú hugsun að einhver sé að gera
Eyktinni greiða.“
Landssamband eldri
borgara hefur sent frá sér
fréttatilkynningu vegna greinar
í Fréttablaðinu í gær um
afnotarétt leiguíbúða hjá
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Í tilkynningunni frá samband-
inu er bent á að samkvæmt
nýlegum tölum um tekjur eldri
borgara sé það búsetuform sem
greint er frá í fréttinni ekki
mögulegt nema viðkomandi geti
selt verðmæta og skuldlausa
eign á móti.
Í tilkynningu Sambandsins er
það það sagt skjóta skökku við
að stofnun eins og Hrafnista sem
stofnuð hafi verið til að jafna
félagslegar forsendur almenn-
ings skuli byggja framtíðarsýn í
búsetumálum aldraðra á
starfsemi.
Aðeins fyrir
eignafólk