Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Illa merkt Hvað með Johnsen?
Miðlungs-
pappírar
Vetrarsólstöður verða 22. desember. Aðgerðahópurinn
GlobalOrgasm í Kaliforníu hvetur nú íbúa jarðarinnar
til að fá fullnægingu þennan dag í nafni alheimsfriðar.
Verkefnið er unnið í samvinnu við vísindamenn í
Princeton-háskólanum sem starfrækja hnattræna vit-
undarverkefnið. Vísindamennirnir reka net mæli-
tækja um allan heim sem ku hafa sýnt fram á að mann-
leg samvitund – það þegar augu alheimsins beinast að
sama punkti, til dæmis meðan á stórviðburðum eins og
11. september og flóðbylgjunum í Asíu hefur staðið –
getur haft hnattræn áhrif á efni og orku. Nú vonast
skipuleggjendur fullnægingardagsins til að jákvæðir
lostastraumar heimsbyggðarinnar verði til góðs.
Það eru týpískir Kaliforníuhippar sem leiða verk-
efnið, þau Donna Sheehan og Paul Reffell. Þau hafa
staðið fyrir ýmsum verkefnum í þágu friðar, meðal
annars Baring Witness verkefnið sem fólst í því að
naktar konur og menn röðuðu sér upp til að forma
„Peace“ og friðarmerki út um allan heim. „Hugur
okkar hefur áhrif á orku- og efnissviðin, svo ef við
einbeitum okkur að friði og samvinnu á stóra degin-
um mun mikil fullnægingarorkan í bland við friðar-
hugsanir draga úr ofbeldi, hatri og ótta í heiminum,“
fullyrðir Donna. Og það veitir víst ekki af. (Meira á
globalorgasm.org).
Tíu metra hátt víkinga-
sverð blasir nú við þeim
sem keyra framhjá Laugar-
bakka í Húnavatnssýslu.
Sverðið stendur á þeim stað
þar sem fjölskylduskemmti-
garðurinn Grettisból verður
opnaður næsta sumar. Þar
verður víkingamenningin í
hávegum höfð og boðið upp
á ýmiss konar afþreyingu.
Jón Óskar Pétursson er fram-
kvæmdastjóri Grettistaks sem
stendur að garðinum. „Þetta verð-
ur skemmtigarður þar sem áhersla
verður lögð á þátttöku gestanna.
Þeir fá að reyna sig við aflraunir
og íþróttir og kynnast siðum og
menningu fornmanna,“ segir
hann. „Vopn og verjur víkinganna
verða kynnt og gestir fá meðal
annars að setja á sig brynju og
hjálm, æfa sig með sverð og spjót
og skjóta af boga.“
Jón segir í gríni að ef einhver
fái í bakið í atganginum sé stutt í
heilsugæsluna á Hvammstanga.
„Við stefnum að því að svæðið
verði lifandi og þar verði alltaf
nóg um að vera. Þarna verður úti-
leikhús í hlöðnum hring og sölu-
tjöld með handverki og minjagrip-
um. Við keyptum gamalt verkstæði
sem á endanum mun líta út eins og
víkingaskáli. Þar verðum við með
sýningarsvæði þar sem gestir geta
horfið aftur í aldir með hjálp
margmiðlunar og upplifað brot úr
sögunni. Grettisból verður því
ekki bara skemmtigarður heldur
líka fræðslusetur og handverks-
miðstöð.“
Þetta svæði hefur nú kannski
ekki verið það líflegasta á landinu
en Jón Óskar segir þetta vera að
breytast. „Jú, það hefur skort á
afþreyingarmöguleika hérna en
síðustu misserin hafa menn orðið
mun áhugasamari um þessi mál.
Selasetur Íslands var opnað nýlega
á Hvammstanga og einnig er boðið
upp á selaskoðunarferðir út á
Vatnsnes með Ákanum. Nú er hug-
myndin að Grettisból sogi til sín
fólk enda verður þetta eini vík-
ingagarður landsins. Það hefur
verið mikil vakning í sögutengdri
ferðamennsku á Íslandi og Grett-
isból verður hluti af því.“
Jón Óskar segir bjartsýni ríkja
með framtakið á svæðinu og að
margir séu að setja sig í réttar
stellingar. „Nokkrir eru nú þegar
orðnir vel hærðir og skeggjaðir.
En það eru skiptar skoðanir á
Gretti. Sumum finnst að hann hafi
verið bölvaður krimmi og skilja
ekkert í því hvers vegna er verið
að láta svona mikið með hann.“
Víkingaskemmtigarður opnar á
Laugarbakka næsta sumar
Töluvert áfall
Eggert Bjarnason
sölumaður hjá RV
R
V
62
19
B
Þegar gæðin skipta máli
Lotus Professional borðpappírsvörur
Á t
ilbo
ði
í nó
vem
ber
20
06
Lot
us L
inSt
yle
serv
íett
ur,
disk
am
ottu
r, „
löb
era
r“
og
dúk
ar
Til hátíðabrigða
Í verslun RV að Réttarhálsi eru
nú á tilboði Lotus LinStyle
dúkar og servíettur í mörgum
litum. Einnig eru á tilboði
ýmsar gerðir af servíettum,
diskamottum og „löberum“
með jólamynstri.
Takmarkað magn er í boði af sumum
jólavarningi. Fyrstur kemur fyrstur fær.