Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 20

Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 20
greinar@frettabladid.is Hægrimenn á Íslandi, hvort heldur í Sjálfstæðis-flokki, Framsóknarflokki eða Samfylkingu, hafa löngum legið flatir fyrir bandarískum stjórnvöldum og þjónað þeim jafnt til góðra sem vondra verka. Bandaríkjun- um var leyft að hafa hér herstöðvar meðan þeim þóknaðist og logið að þjóð- inni að það væri greiði og gustukarverk fyrir Íslendinga, til að tryggja öryggi okkar. Þegar kanahernum þóknaðist loks að pakka niður og hypja sig fólu dindl- arnir í ríkisstjórninni þeim eftir sem áður sjálfdæmi um að gæta öryggis þjóð- arinnar. Sjálfsagt felst í því leyfi til að njósna um íslenska borgara, eftirleiðis sem hingað til, með aðstoð íslenskra dindilmenna. Versta óhæfuverkið hin síðari ár var að styðja innrás Bandaríkjanna og Bret- lands í Írak. Það var gert í blóra við íslensku þjóðina og ekki hlustað á ótal viðvaranir. Innrásin var í trássi við alþjóðalög, Sameinuðu þjóðirnar og heilbrigða skyn- semi. Allflestir sáu hvílíkt feigðarflan þetta var og efa- semdirnar náðu langt inn í hægri klíkurnar. Fljótlega kom t.d. í ljós að hættan sem umheiminum átti að stafa af kjarnavopnum harðstjórans Saddam Hussein var helber lygi, eða í besta falli misskilningur. En Davíð og Halldór fóru sínu fram vel studdir af Morgunblaðinu. Öryggishagsmunum og heiðri íslensku þjóðarinnar var fórnað. Nú vilja fæstir þá Lilju kveðið hafa sem innrásin í Írak er. Ríkisstjórnir, þingflokkar og þingmenn víða um heim snúa baki við Bush og Blair eftir því sem óöldin í Írak magnast og minnir æ meir á hörmungarnar í Víet- nam fyrir fjórum áratugum. En hvorki Davíð né Halldór viðurkenna mistök sín og er ólíklegt að afsökunarbeiðni þeirra berist úr þessu. Báðir hafa þeir hlotið feit embætti og sitja þar óáreittir meðan hundruð manna týna lífi dag hvern og milljónir þjást fyrir þeirra tilstuðlan. Það má kalla það tilræði við norræna samvinnu að senda Halldór til Kaup- mannahafnar með óþvegnar, blóðugar hendur. Vinsti hreyfingin - grænt framboð er eini flokkurinn sem berst heill fyrir sjálfstæðri, friðsamlegri utanríkis- stefnu Íslands og hefur hafnað stuðningi við stríðs- rekstur Bandaríkjanna og Bretlands í Írak og Afgan- istan alla tíð. Nú er það verkefni allra friðelskandi Íslendinga að gera veg VG sem mestan í alþingiskosn- ingunum í vor svo hægt verði að koma íslenskri utan- ríkisstefnu aftur á réttan kjöl. Eflum VG í vor! Höfundur er formaður VG á Suðurnesjum. Blóðugar hendur Dómsdagsspár eru ekki nýjar af nálinni og í sögu mann- kyns hefur útrýmingu þess verið spáð ítrekað. Sem betur fer hefur þó engin þessara spáa ræst enn sem komið er. Ein nýleg gerir ráð fyrir hruni fiskstofnanna, ekki síst vegna breytinga á sjávarhita í kjölfar gróðurhúsaáhrifa, sem eru tilkomin vegna skammtíma- hugsunar og gróðasjónarmiða mannkyns. Vísindamenn eru að vísu ekki allir sammála þessu og kenningar þeirra og umræður segja okkur hinum það eitt að lítið er vitað. En í fáfræði okkar hljótum við þó að verða að leggjast á eitt og gera okkar besta til að vernda lífsskilyrði á jörðinni svo kynslóðir afkomenda okkar geti lifað hér líka. Undanfarin ár hafa fjölmargir skólar landsins verið „á grænni grein“ en það er verkefni á vegum Landverndar sem gengur út á undirbúning og vinnu í umhverfismálum. Á heimasíðu Landverndar er listi yfir þá 77 grunn- og leikskóla sem eru á grænni grein og margir þeirra hafa þegar fengið hinn merka Grænfána til merkis um góðan árangur, jafnvel oftar en einu sinni. Bláfáninn er veittur höfnum og baðströndum sem hafa bætt gæði og þjónustu og stuðlað að verndun umhverfisins. Ef marka má heimasíðu Landvernd- ar hefur Bláfáninn ekki átt sömu vinsældum að fagna og Grænfán- inn en góð mál vinnast hægt svo vonandi fjölgar Bláfánahöfnum landsins á næstu árum. Skólar á grænni grein vinna ómetanlegt uppeldisstarf varðandi umhverfismál og börnin læra mikilvægi þess að fara vel með, flokka sorp, spara rafmagn o.s.frv. Í sumum skólum er jafnvel búin til molta úr lífrænum úrgangi og í öllum skólum fer fram mikil umræða um umhverf- ismál. Börnin eru áhugasöm enda framtíð þeirra í húfi en þó er ljóst að starf skólanna fer fyrir lítið ef því er ekki fylgt eftir á heimilun- um. Þess vegna þarf átak í umhverfismálum að vinnast í öllu þjóðfélaginu, á heimilum og vinnustöðum. Mörg fyrirtæki og stofnanir hafa þegar sett sér umhverfis- stefnu og gengur vonandi vel að fylgja henni eftir. Of víða vantar þó slíka stefnu og sjá má bruðlað með orku, pappír, plast og umbúðir af ýmsu tagi svo fátt eitt sé nefnt. Ef fyrirtæki landsins tækju sig almennt saman í andlitinu í umhverfismálum er ég ekki í vafa um að það skilaði sér inn á heimili starfsmannanna. Þetta snýst nefnilega ekki síst um ákveðið viðhorf og nálgun sem við þurfum öll að temja okkur. Margir hafa unnið gott starf á þessum vettvangi en aðrir láta eins og þeim komi þetta ekki við. Í fararbroddi ættu auk sveitarfé- laga og ríkisstofnana t.d. að vera fyrirtæki sem starfa að umhverf- ismálum og náttúrurannsóknum og -nýtingu, matvælaframleiðslu og í ferðaþjónustu. Auðvitað ættu öll fyrirtæki að tileinka sér þessi vinnubrögð og á heimasíðu Landverndar (www.landvernd.is) er að finna ágætan gátlista sem öllum er frjálst að nýta sér. Margt smátt gerir eitt stórt og þótt þessar ábendingar kunni að virðast léttvægar við fyrstu sýn er alls ekki svo. Ef öll fyrirtæki landsins tileinkuðu sér þessi vinnubrögð gæti sparast ómæld orka, pappír og sorp svo fátt eitt sé nefnt. Meðal ábendinga Landverndar má nefna að hver starfsmaður hafi merktan bolla svo ekki þurfi að þvo bollana oft á dag (plast- bollar koma auðvitað ekki til greina), prentað og ljósritað beggja vegna á blöð eins og hægt er, slökkt er á rafmagnstækjum utan skrifstofutíma og keyptar eru inn vistvænar og vottaðar vörur, svo sem pappír og ræsti- efni. Allt eru þetta einfaldar aðgerðir en stuðla að umtalsverð- um sparnaði hjá fyrirtækjum sem hlýtur að vera eftirsóknarvert auk þess að draga úr sorpi og sóun. Hitt er þó líklega meira um vert að með slíkum aðgerðum verður viðhorfsbreyting hjá öllu starfsfólki sem skilar sér inn á heimili þeirra. Vonandi hafa sem flestir þegar stigið öll þessi skref og mörg fleiri innan dyra hjá sér og nokkur ferðaþjónustufyrirtæki hafa t.d. verið til mikillar fyrirmyndar á þessu sviði. Allir geta lagt sitt af mörkum, vilji er allt sem þarf. Umhverfisvernd í verki Þess vegna þarf átak í um- hverfismálum að vinnast í öllu þjóðfélaginu, í skólum, á heimilum og í fyrirtækjum GADDAVÍR SIGURJÓN MAGNÚSSON „Gaddavír er látlaus, hefðbundin, vel skrifuð skáldsaga sem gefur tilefni til þess að velta fyrir sér mannlegu eðli… Í stærra samhengi og táknsögulega fjallar Gaddavír um erfðasyndina, þjáningu, jafnvel píslarvætti.“ - Geir Svansson, Morgunblaðið, 3. nóv. 2006 ÁHRIFAMIKIL SKÁLDSAGA SEM HELDUR LESANDANUM Í HELJARGREIPUM P rófkjör undangenginna vikna sýna fram á fremur lítinn áhuga þátttakenda á að stilla upp fjölbreyttum listum fyrir alþingiskosningarnar í vor. Konur virðast eiga ákaflega erfitt uppdráttar í próf- kjörum, nema hlutfall þeirra sé þeim mun hærra í hópi þeirra sem gefa þar kost á sér. Sama máli gegnir um eldri borgara, en vissulega eru ekki margir í þeim hópi sem gefa kost á sér, og Íslendinga af erlendum uppruna sem eru enn færri í prófkjörum. Svo virðist sem karlmenn á tæplega miðjum aldri séu líklegast- ir til að ná árangri í prófkjörum og er það íhugunarefni hvað það er sem gerir þá svona trúverðuga í augum þátttakenda í prófkjör- um. Það er mikið áhyggjuefni að svo virðist sem bakslag sé komið í hlutfall kvenna í stjórnmálum. Konum fækkaði í sveitarstjórn- um landsins eftir kosningarnar í vor sem leið og niðurstöður und- angenginna prófkjara hafa verið á þann veg að fátt virðist geta komið í veg fyrir að hlutfall kvenna á Alþingi Íslendinga lækki á næsta kjörtímabili og er það þó ekki sérlega glæsilegt á því kjör- tímabili sem nú er að renna sitt skeið. Vissulega liggja fyrir þær staðreyndir að færri konur en karlar gefa kost á sér í prófkjörum. Sömuleiðis sækjast konur að með- altali eftir sætum neðar á lista en karlmenn. Engar tölur liggja fyrir um kynjahlutfall og aldurssamsetningu þeirra sem taka þátt í prófkjörum en leiða má líkur að því að sá hópur endurspegli kjós- endur að minnsta kosti betur en hópurinn sem gefur kost á sér, þ.e. að kynja- og aldurssamsetning sé þar tiltölulega jöfn. Flestir hljóta að vera sammála um að til þess að listi höfðaði sem best til breiðs hóps kjósenda ætti að vera að finna á honum tiltölulega breiðan hóp fólks. Gallinn við prófkjörin er vitanlega sá að ekki er raðað á lista með tilliti til þessa heldur fer uppröðun eftir því hvernig atkvæði falla. Á landsbyggðinni, og raunar í öllum kjördæmum utan Reykja- víkurkjördæmanna, virðast sjónarmið byggðarlaga einnig vega þyngra en það sjónarmið að velja fjölbreyttan hóp fólks til starfa. Þannig virðist bæði þátttakendum í prófkjörum og forsvarsmönn- um flokka finnast skipta meira máli að hvert byggðarlag eigi sinn fulltrúa á lista heldur en að hann sé skipaður fjölbreyttum hópi karla og kvenna á öllum aldri. Kynjahlutfall á framboðslistum stjórnmálaflokkanna er graf- alvarlegt mál. Þeir sem þessa lista skipa eru fulltrúar þjóðarinnar á Alþingi næstu fjögur ár. Að flokkarnir, með fulltingi stuðnings- manna sinna sem þátt taka í prófkjörum, skuli hver á fætur öðrum birta framboðslista sem að miklum meirihluta eru skipaðir eins- leitum hópi tæplega miðaldra karlmanna er til skammar. Kjósendur 21. aldarinnar hljóta að gera þá kröfu til stjórnmála- flokka að listar þeirra endurspegli þjóðina með skýrari hætti en nú virðist líta út fyrir, annað er gróf tímaskekkja. Vannýtt tækifæri Svo virðist sem karlmenn á tæplega miðjum aldri séu líklegastir til að ná árangri í prófkjörum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.