Fréttablaðið - 14.11.2006, Page 23
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Snær Seljan Thoroddsen lærði glímu af föður sínum
og hefur nú náð langt á sínu sviði.
„Ég hef æft glímu frá 10 eða 11 ára aldri,“ segir Snær sem
er nú 23 ára gamall. „Faðir minn, Þórólfur Helgason, vakti
upphaflega áhuga minn, en hann keppti á árum áður í glímu
og kenndi hana síðan í heimabæ mínum, Reyðarfirði.“
Snær fór ungur að aldri með föður sínum suður til að
fylgjast með glímumótum og fannst spennandi að sjá hversu
miklir afreksmenn tókust þar á. „Íþróttin höfðaði til mín sem
lítils gutta vegna þess hversu hörð og karlmannleg hún leit
út fyrir að vera,“ útskýrir hann og hlær við tilhugsunina.
Faðir Snæs kenndi honum öll grunnatriðin í glímu og
segir hann samstarf þeirra feðga hafa gengið vonum framar.
„Þegar við fluttum suður hafði hann kennt mér allt sem hann
kunni þannig að ég fékk frekari tilsögn hjá KR og hef eftir
það æft mig mestmegnis sjálfur,“ segir Snær enn fremur.
Snær æfir nú sex sinnum í viku, þar af einu sinni hlaup,
tvisvar sinnum glímu og þrisvar sinnum kraftlyftingar. Að
hans sögn byggja kraftlyftingarnar og hlaupið á æfinga-
áætlun svipaðri þeirri og ólympíufararnir í frjálsum íþrótt-
um árið 2008 fara eftir.
Snær segist jafnframt leggja áherslu á hollt mataræði til
að halda sér í góðu formi. Hann neytir að meðaltali sex mál-
tíða á dag, borðar mikið af skyri og drekkur töluvert af vatni.
„Holl fæða er ekki síður nauðsynleg og góð hreyfing ætli
maður sér að ná langt í glímunni,“ segir hann og bætir við að
það eigi við um alla sem vilji skapa sér nafn í íþróttum.
Pabbi er
fyrirmyndin