Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 26
Hraði samfélagsins er efni mál-
þings sem Náttúrulækninga-
félag Íslands efnir til í Laug-
arneskirkju í kvöld. Steinunn
Inga Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá
Starfsleikni, er ein af frummæl-
endum.
Sátt á öllum sviðum er yfirskrift
fyrirlestrar Steinunnar. Í honum
kveðst hún ætla að höfða til við-
horfa fólks og viðmiða og útskýrir
það nánar. ¿Við viljum taka þátt í
öllu því sem lífið hefur upp á að
bjóða og ná hámarksárangri á
öllum sviðum. En ef væntingarnar
verða of miklar þá erum við fyrir-
fram dæmd til að verða fyrir von-
brigðum á einhverjum sviðum.¿
Hún kveðst ekki ætla að boða að
fátækt og basl auki hamingju en
samt ætla að velta því upp hvort
valmöguleikar velmegunarinnar
valdi okkur streitu. ¿Við erum svo
frjáls og höfum úr svo mörgum
kostum að velja í lífinu en allir
þessir valmöguleikar geta
leitt til óhamingju.
Við ætlum að
útskrifast úr flott-
asta skólanum, vera í flottasta
starfinu, vera með flottasta heimil-
ið og eiga jafnvel flottustu börnin.
Svona miklar væntingar eru gríð-
arlegir streituvaldar sem geta
endað með vandamálum og sorg.
Því verðum við að staldra við þegar
við erum komin fram yfir það sem
er nóg. Hamingjan er nefnilega
innra hugarástand.¿
Steinunn dregur samt ekki úr
því að fólk eigi að vera metnaðar-
fullt og stefna að hámarksárangri í
því sem skiptir það mestu máli. En
hvað er það að hennar
mati? ¿Að hlúa að fjöl-
skyldunni virðist
vera það sem
veitir fólki mesta
hamingju þegar
upp er staðið og
heilsan er öllum
dýrmæt. Starfið
er líka flestum
mjög mikils virði
og það er þýð-
ingarmikið
að
njóta þess. Ekki bara að vinna til að
eiga fyrir salti í grautinn heldur af
þeirri sannfæringu að verið sé að
gera gagn í víðara samhengi. En við
megum ekki gleyma okkur í vinn-
unni því þá bitnar það á hinum svið-
unum, heilsunni og samskiptunum.
Þarna þarf því að finna jafnvægi á
milli og hafa raunhæfar vænting-
ar.2
Steinunn er lærð í viðskiptasál-
fræði og álags-og streitufræði og
fer í fyrirtæki með fyrirlestra og
námskeið. ¿Allt sem ég geri leiðir
að því að minnka streituálag,¿
útskýrir hún. En hvernig tekst
henni sjálfri að samræma starf og
heimilishald? Nú hlær hún. ¿Mér
finnst ofboðslega gaman í vinn-
unni en mig langar líka að vera
með dótturinni og hugsa vel um
heimilið. Þegar ég vinn of mikið
þá verður ekki sátt heima fyrir og
það veldur streitu. Sátt á öllum
sviðum er það sem þarf. Það finn
ég vel á eigin skinni.¿
Málþingið í Laugarneskirkju
hefst klukkan 20 í kvöld. Fundar-
stjóri er sr. Bjarni Karlsson.
Miklir valmöguleikar
geta leitt til óhamingju
*Tilboðsverð 2006
S
e
p
t.
2
0
0
6
Nicorette Fruitmint
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
www.nicorette.is
Nýttbragð
sem kemurá óvart
25%
afsláttur
*
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur