Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 34

Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 34
4 Helstu ferðaskrifstofur landsins bjóða upp á mikið úrval skíðaferða, sem njóta sífellt aukinna vinsælda á meðal Íslendinga, ekki síst vegna hækkandi hitastigs og vaxandi snjó- leysis hérlendis. Að sögn Guðrúnar Sigurgeirsdóttur, framleiðslustjóra hjá Úrval-Útsýn, er nú svo komið að fólk er jafnvel hætt að stunda skíði á Íslandi. Fólk fer heldur í eina almennilega skíðaferð erlendis á ári og algengt er að ferðalangar dvelji þar í um vikutíma. „Um eða yfir 3.000 Íslendingar fara í svona skíðaferðir á hverju ári og þessi tala fer hækkandi með hverju árinu,“ segir Guðrún. Skíðaferð- irnar eru vinsælastar frá janúar og fram í lok mars. Sem dæmi nefn- ir Guðrún að nú þegar sé að verða uppselt í flestar ferðir hjá Úrval- Útsýn á háannatíma næsta árs. „Við fljúgum vikulega með leiguflugi til Ítalíu og nánast allar vélar í janúar og febrúar eru troðfullar.“ Aðspurð um ástæðuna fyrir þessum vinsældum segir Guðrún að þegar fólk hefur einu sinni farið í slíkar ferðir fari það oftast aftur. „Og ef fólk platar vini sína með í eitt skipti þá munu þeir líka fara aftur. Því er ekkert skrítið að eft- irspurnin skuli vera svona mikil,“ útskýrir Guðrún en bætir við að auk þess séu aðstæður á skíðasvæð- um erlendis eins og best verður á kosið. „Brekkurnar eru náttúrulega mjög langar og góðar og þá er lyftukosturinn frábær. Veðrið er yfirleitt gott og ekki þarf að hafa neinar áhyggjur af snjóleysi. Það er alltaf snjór,“ segir Guðrún. Á síð- ustu árum hafa skíðaferðirnar hins vegar þróast út í að vera svolitlar dekurferðir. „Nú fara flestir á hótel með hálfu fæði þar sem aðstaða til heilsurækt- ar er til staðar og á svæði þar sem hægt er að finna fjölbreytta afþrey- ingu fyrir alla fjölskylduna.“ Engar áhyggjur af snjóleysi Íslendingar sækjast í auknum mæli eftir því að komast á skíði í Ölpunum. { vetrarlíf } 4x4 specialist Ford dekkin 33x13,5R18 Tilboðsverð 24,900,- Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444 Jeppadekkin frá Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum matvöruveslana. Látum ekki fylgifiska skammdegisins leggja okkur í rúmið. Styrkjum mótstöðuaflið, höldum heilbrigði og hreysti með varnarefnum náttúrunnar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.