Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 36

Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 36
6 „Það fyrsta sem þarf að hafa í huga er hver getan er hjá viðkomandi og hvernig stíl hann hefur. Skíðar hann hratt eða hægt, er hann meira í stuttum eða löngum beygjum og svo framvegis. Miklu máli skiptir að fólk geri sér grein fyrir þessum atriðum þegar það kaupir skíði,“ segir Helgi Benediktsson, deildar- stjóri hjá Útilífi í Glæsibæ. Í dag eru hin svokölluðu „carving“-skíði langvinsælust hjá þeim sem stunda skíðaíþróttina í frístundum en mun auðveldara er að stjórna þeim heldur en „flötu“ skíðunum sem áður einokuðu markaðinn. Helgi segir að fyrir utan getu notandans þarf einnig að taka tillit til hæðar hans og þyngdar. Mælt er með því að skíðamaðurinn velji sér skíði sem eru 10 til 15 sentimetrum styttri en hann sjálfur. „Segja má að karlalengdin sem við miðum við sé um 170 sentimetrar en hjá konum er miðað við 155 sentimetra. Síðan er þetta að sjálfsögðu breytilegt í báðar áttir eftir því hversu hár og þungur skíðamaðurinn er.“ Helgi segir að valið á skíðaskóm þurfi ekki síður að vera vandað. „Skíðin endast oftast nokkuð lengi en skíðaskóna og bindingarnar þarf að endurnýja með reglulegu milli- bili. Eins og með skíðin þá fer það eftir einstaklingnum hvaða skór henta og að mörgu að hyggja. Við leggjum mikið upp úr því þeir séu þægilegir og gefi vel eftir, sérstak- lega fyrir þá sem eru óvanir. Skórn- ir eru mjög mismunandi í laginu og útliti og mjög mismunandi er hvað hentar hverjum og einum. Þess vegna mælum við fótinn á við- skiptavininum og förum vel yfir öll atriði sem kunna að skipta máli,“ segir Helgi og bætir við að þessi nauðsynlegi útbúnaður, skíðin, skórnir og bindingarnar, sé lang- mest seldur í settum en ekki í stök- um einingum. Kyn iðkenda skiptir að sjálf- sögðu miklu máli þegar kemur að því að velja skíði þar sem nú er hægt að fá skíði sem eru sérstak- lega hönnuð fyrir konur og þeirra líkamsbyggingu. „Kvennaskíðin eru mýkri og léttari en fyrst og fremst eru þau náttúrulega öðruvísi útlits,“ segir Helgi og bætir við að konurn- ar séu gjarnar á að kaupa skíði með bleikum áherslum en karlarnir vilji helst ekki sjá þann lit. Vanda skal valið á skíðum og útbúnaði Ekki er auðvelt verk að kaupa skíði í fyrsta sinn. Að mörgu er að hyggja, bæði hvað varðar skíðin sjálf og skíðaskóna og annan búnað. Fólki er ráðlagt að fá aðstoð við valið frá fagfólki skíðaverslana á landinu enda nauðsynlegt að skíðabúnaðurinn henti þeim sem ætlar að nota hann. Þó að veturinn geti verið bæði kaldur og grimmur má alveg finna sjarmerandi hliðar þessa forna fjanda. Ilmsterk og kraftgóð súpa getur hlýjað á fallegum vetrardegi og ekki skemmir fyrir þegar súpan er allt í senn kraftmikil, góð og holl. Miso-súpan hefur svo sannarlega allt þetta. Hún er fljótlöguð og auð- veld í matreiðslu. Miso-súpa hefur verið einn af undirstöðuréttum Japana í margar aldar og fá Jap- anar sér iðulega eina skál af miso á degi hverjum. Aðalundirstað- an í súpunni, miso, er léttgerjaður og saltaður sojabaunamassi sem er ríkur af próteini, vítamínum og steinefnum. Miso-súpan er því frábær til þess að fylla okkur af orku í skammdeginu sem nú verður dekkra og dimmara með hverjum deginum sem líður. Ekki spillir heldur fyrir að hún er einstaklega bragðgóð og erf- itt er að fá leið á henni, sérstaklega þar sem hægt er að matreiða hana á svo margan hátt. Hér kemur uppskrift að um einum lítra af miso-súpu frá Ósushi í Iðuhúsinu, tilvalin í hitabrúsann. Lítra af vatni er hellt í pott, ásamt smábútum af kombu-þangi, og suðan látin koma upp. Þangið er þá fjarlægt og hitinn lækkaður. Þá er bætt út í um það bil þremur til fjórum matskeiðum af Bonito-krafti (túnfiskkraftur). Því næst er sjálfu misokreminu, um sex matskeiðum, bætt út í og þá verður að passa vel að vatnið sé undir suðumarki. Þessu er síðan hrært saman og seyðið er tilbúið. Nú má bæta við, eftir smekk, grænmeti og öðru út í súpuna. Gott er sem dæmi að bæta út í vorlauk, tofu-bitum og wagame-þangi. Einnig er hægt að bæta við núðlum og kjúkl- ingi eða einfaldlega hverju sem er. Kraftmikil og holl Miso-súpa er tilvalin á hitabrúsann á köldum degi. { vetrarlíf }

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.