Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 40
10
Sú kynslóð sem gleðst hvað mest yfir vetrinum og
snjókomunni er vafalaust sú yngsta. Í augum barna
virðast endalausir möguleikar felast í þessu hélaða
vatni og hugmyndaflugið fær lausan tauminn. Snjó-
kast, skíði, snjóþotur, snjókarlar, snjóenglar og síð-
ast en ekki síst snjóhús heyra vetrinum til. Því er
kannski ekki svo undarlegt að krakkar kætist og brosi
þegar þeir sjá fannhvítan snjóinn á jörðinni meðan
þeir sem eldri eru hafa áhyggjur af umferðinni.
Það gefur auga leið að umfangsmesta verkefni
sem nokkur kátur krakki getur tekið sér fyrir hendur
utan dyra að vetri til er að byggja sér veglegt snjó-
hús. Reyndar er það svo aðstæður ráða miklu varð-
andi slík glæsimannvirki. Svo virðist sem snjói sífellt
minna hér á landi og því getur hráefnið til almenni-
legra snjóhúsaframkvæmda oft verið af skornum
skammti.
Þegar tækifærið hins vegar gefst er um að gera að
láta hendur standa fram úr ermum. Þegar ráðast skal
í að byggja snjóhús er betra að vanda til verks. Byrja
skal á því að finna húsinu stað. Gott er að velja því
stað í skjóli svo húsið geti staðið sem lengst. Hag-
kvæmt er að byggja snjóhúsið upp við húsvegg, en
þannig má spara umtalsverðan snjó.
Síðan er að hefjast handa við að að hrúga upp
eins miklum snjó og hægt er á þeim stað sem reisa
skal bústaðinn. Þegar nógu miklu af snjó hefur verið
safnað saman í hrúgu (og það þarf sko helling!) má
byrja að móta sjálft húsið. Passa þarf líka upp á að
snjórinn sé nógu þéttur þannig að húsið hrynji ekki.
Hin hefðbundna snjóhússgerð byrjar einfaldlega
á því að moka sér leið inn í hrúguna. Byrja skal á
að gera göng og síðan búa til hol inni í miðjunni.
Hinir stórtæku nota fötu, bala eða eitthvað annað
skemmtilegt ílát, en með þessum hjálpartækjum má
hlaða upp snjóhús í allra kvikinda líki, ekki ósvipað
og þegar sandkastali eða pýramídi er gerður.
Þegar loks allir eru ánægðir með árangurinn er
ágætt að styrkja aðeins húsið. Það má gera með því
að bleyta snjóinn í snjóhúsinu með vatni en vatnið
frýs síðan og myndar þannig styrktarveggi úr klaka.
Ekki má samt nota of mikið af vatni því þá getur
húsið bráðnað.
Þá ætti þetta að vera komið. Nú má byrja að leika
sér í snjóhúsinu og það verður eins og nokkurs konar
vin í eyðimörkinni. Það er sama hversu vont veður
er úti, alltaf er gott veður inni í snjóhúsinu og þar
má leika sér með hvað sem er en auðvitað verða
allir að vera vel klæddir. Á meðan geta mamma og
pabbi haldið áfram að kveinka sér yfir snjónum og
hálkunni á götunni.
- sha
Stórbrotin mannvirki
Snjóhús er alltaf gaman að byggja og þau gefa stórum sem smáum smá útrás fyrir
framkvæmdagleðina í vetrarskammdeginu.
{ vetrarlíf }