Fréttablaðið - 14.11.2006, Page 51
[Hlutabréf]
Kaupþing hefur hafið sölu nýrra
hlutabréfa, sem verður beint til
erlendra fjárfesta, í því skyni að
styrkja eiginfjárgrunn bankans og
styðja við frekari útrás. Samsvarar
útgáfan um tíu prósenta aukningu
hlutafjár.
Verðlagning hlutanna verður
ákvörðuð 21. nóvember með hliðsjón
af viðbrögðum við áskriftarsöfnun
og markaðsgengi hlutabréfa félags-
ins um það leyti. Miðað við gengið
825 krónur á hlut gæti bankinn safn-
að tæpum 55 milljörðum króna.
Bankinn hefur skuldbundið sig til
að auka ekki hlutafé í hálft ár eftir
útboðið. Þá hafa tveir stærstu hlut-
hafar bankans, Exista og Kjalar
(Egla), skuldbundið sig til að selja
ekki hlutabréf í eigu sinni í 180 daga
eftir að nýju hlutunum hefur verið
úthlutað og það sama gildir um hóp
lykilstjórnenda og stjórnarmanna
næsta árið eftir að úthlutun lýkur.
Útboð Kaup-
þings hafið
Nærri fimm milljarða króna bati
hefur orðið á afkomu norræna lág-
gjaldaflugfélagsins Sterlings, dótt-
urfélags FL Group, fyrir afskriftir
á þessu ári samanborið við síðasta
ár. Ef einskiptiskostnaður er frátal-
inn er batinn enn meiri.
Árangurinn er tilkominn vegna
mikils aðhalds í kostnaði.
Rekstrarhagnaður fyrir afskrift-
ir (EBITDA) var neikvæður um 877
milljónir króna á fyrstu níu mánuð-
um ársins en var jákvæður um 1,3
milljarða á þriðja ársfjórðungi.
Miklar árstíðasveiflur eru í
rekstri Sterlings. Hagnaður félags-
ins fyrir skatt á þriðja ársfjórðungi
var 1,1 milljarður króna en tapið
var 1,4 milljarðar fyrir árið í heild.
Stjórnendur Sterling búast við
að félagið verði rekið réttu megin
við núllið í ár.
Gjörbreyting
hjá Sterling
Krónan veiktist í gær um 1,9 pró-
sent þegar hún fór upp fyrir geng-
isvísitöluna 120 og endaði í 121,8.
Bæði greiningardeildir Kaupþings
og Landsbankans benda á að veik-
inguna megi rekja til skýrslu
matsfyrirtækisins Fitch fyrir
helgina þar sem lánshæfishorfur
ríkisins voru áfram sagðar nei-
kvæðar.
Fitch hélt símafund um málið
seinnipartinn í gær og styrkist
krónan á ný eftir fundinn, enda
kom ekkert nýtt þar fram.
Krónan veiktist
fyrir símafund
Hannes Smárason, forstjóri FL Group,
telur að með því að nýta alla þá kosti
sem FL standi til boða geti félagið ráð-
ist í ný verkefni fyrir
120 milljarða króna,
jafnvel allt að 150
milljarða. Fjárhags-
legur styrkur félags-
ins hefur aldrei verið
meiri eftir sölu á hlut
þess í Icelandair
Group á dögunum.
Hagnaður FL nam
tæpum ellefu millj-
örðum króna á fyrstu
níu mánuðum ársins og jókst um 67
prósent á milli ára. Á þriðja ársfjórð-
ungi hagnaðist félagið um 5.257 millj-
ónir sem er þrettán prósenta aukning
frá sama tíma í fyrra. Hins vegar
dróst hagnaður félagsins fyrir skatt
saman um tólf prósent milli ára.
Uppgjör ársfjórðungsins var held-
ur undir meðaltalsspá markaðsaðila
sem hljóðaði upp á sex milljarða
króna.
Hreinar fjárfestingatekjur voru
565 milljónir króna og dró styrking
krónunnar úr hagnaði af fjárfesting-
um.
Frá lokum september hefur efna-
hagur FL tekið gjörbreytingum í kjöl-
far sölu á Icelandair. Þegar horft er til
fyrstu tíu mánaða ársins nam hagnað-
ur fyrir skatta 36 milljörðum króna
samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri
og óx eigið fé úr 112 milljörðum í lok
september í 131 milljarð mánuði síðar.
Eiginfjárhlutfall félagsins var yfir 53
prósent í lok október.
Byssur FL Group fullhlaðnar
Félagið getur ráðist í ný verkefni fyrir að minnsta kosti 120 milljarða króna.