Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 14.11.2006, Qupperneq 62
Sextán hljómsveitir hafa skráð sig í hina alþjóðlegu hljómsveitarkeppni Global Battle of the Bands sem verð- ur haldin dagana 15.-24. nóvember í Hellinum, tónleikasal Tónlistarþró- unarmiðstöðvarinnar (TÞM). Hljómsveitirnar hafa allar sínar ólíku stefnur, allt frá melódísku poppi upp í hart rokk og verður tón- listarflutningurinn því fjölbreytt- ur. Einnig er von á gestahljómsveit- um til að halda uppi stemningunni á meðan dómnefnd fer yfir úrslit hvers kvölds. Keppt verður fjögur kvöld, 15., 16., 22. og 23. nóvember, og verður valin ein hljómsveit á hverju kvöldi til þess að keppa til úrslita hérlend- is föstudaginn 24. nóvember. Sigur- hljómsveit úrslitakvöldsins mun síðan keppa fyrir hönd Íslands í London Astoria í desember. Keppnin er árlegur viðburður og hefur verið haldin síðustu tvö ár með góðum árangri. Íslensku hljómsveitirnar Lights on the Highway og Finnegan, sem báru sigur úr býtum hérlendis árin 2004 og 2005, hafa hlotið verðskuldaða athygli í kjölfar þátttökunnar. Hér er því um gott tækifæri að ræða fyrir íslenskt tónlistarlíf á innlend- um sem erlendum grundvelli. Öll kvöldin hefjast kl. 20 og kostar 600 krónur inn á hvert kvöld, en kaupa má aðgangspassa á öll fimm kvöldin fyrir 1.600 krón- ur. Tónleikarnir eru opnir öllum aldurshópum. Miðasalan fer fram á www.ton- leikar.is. Miðar verða einnig seldir við innganginn hvert kvöld fyrir sig. Nánari upplýsingar um atburð- inn má finna á tonleikar.is. Sextán sveitir keppa Frumburður norsku sveitarinnar Serena-Maneesh hefur breiðst út eins og eldur í sinu innan tónlist- arheimsins síðan hún kom út í fyrra hjá hinu smávaxna plötufyr- irtæki Honeymilk. Platan hefur á þessu ári fengið alþjóðlega dreif- ingu og er nú loks fáanleg hér- lendis. Því er ekki úr vegi að birta smá umfjöllun um plötuna. Serena er hugarfóstur Emils Nikolaisen sem áður hafði gert garðinn frægan í Noregi með sveitum á borð við Silver, Extol og The Loch Ness Mouse. Full- skipað eru í bandinu hins vegar sex manns og mynda þessir ein- staklingar gífurlega sterka heild (tónleikar sveitarinnar eru sem dæmi magnþrungnir). Tilgangur sveitarinnar virðist augljós; að matreiða ómmikið, óreiðukennt og hart shogazerokk, skógláps- rokk á íslensku. Þegar rennt er í gegnum plötuna má heyra aug- ljós áhrif frá sveitum á borð við My Bloody Valentine, Slowdive, Spacemen 3 og þýskum kraut- rokk-sveitum, til dæmis CAN og Neu!, auk þess að minna ískyggi- lega mikið á hina íslensku Singa- pore Sling sem getur ekki verið annað en töff. Þó svo að þessir áhrifavaldar séu greinilegir fara Emil og félagar einfaldlega svo vel með efnið að jafn gott skóg- lápsrokk hefur ekki heyrst í heil- an áratug eða svo. Upphafslagið, Drain Cosmet- ics, gefur strax til kynna það sem koma skal, hádramatískt og svo ómmikið að jafnvel í pínulitlum herynartólum virðist lagið umlykja mann allan. Það sama á við um nær alla aðra tóna sem fylgja á eftir. Spennan í kringum óreiðuna á plötunni er mikil en allt er samt sem áður á sínum stað og íðilfagurt eins og kemur bersýnilega í ljós í lögum á borð við Chorale Lick og Selina’s Mel- odie Fountain. Helsti galli plötunnar er kannski sá að langir endurtekn- ingarkaflar víðs vegar á plötunni eiga það til að líkjast hver öðrum kannski helst of mikið. Eru samt langt frá því að vera pirrandi enda platan öll heilsteypt og krafturinn nánast ómannlegur. Serena-Maneesh hefur vonandi með þessari plötu sinni hafið nýja shoegaze- bylgju enda þar á ferð ein svalasta tónlistarstefna sög- unnar. Endurfæðing skóglápsrokksins Fiðluleikarinn Lucia Micarelli, sem stal senunni um stund á tónleikum Ian Andersons úr Jethro Tull í Laug- ardalshöll 23. maí, heldur tónleika á Nasa 9. desember. Lucia mætir hingað með strengja- sveit, hljómborðsleikara og tromm- ara og flytur meðal annars djass, klassíska tónlist, tangóa og ýmislegt frá gullaldarárum rokksins. Ætlar hún meðal annars að taka hið sígilda lag Led Zeppelin, Kashmir. Gítar- leikarinn Guðmundur Pétursson mun aðstoða hana við flutninginn. Einnig mun hún flytja lagið Bohem- ian Rhapsody eftir Queen. Lucia Micarelli er 22 ára, ættuð frá Hawaii. Hún var einungis sex ára gömul þegar kom hún fyrst fram sem einleikari á fiðlu með sinfóníuhljómsveit í heimaborg sinni, Honululu. Síðan þá hefur hún meðal annars verið á tónleika- ferðalögum með bandaríska söngvaranum Josh Groban. Á síðasta ári gaf hún út sína fyrstu plötu, Music From a Farther Room. Þar er að finna klassíska tón- list af ýmsu tagi frá ýmsum tímum. Miðasala á tónleikana hefst þriðjudaginn 14. nóvember kl. 10.00 á midi.is og í öllum verslunum Skíf- unnar og BT. Micarelli til Íslands Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur ákveðið hvaða hönnuður fær hann þann heiður að hanna brúðarkjól hennar. Þetta er eftirsókn- arvert meðal hönnuða enda Moss mikið tísku- tákn. Það er góðvinur hennar, Alexander McQueen, sem fær að hanna brúðarkjól- inn og seg- ist hann vera alsæll með að Moss treysti honum fyrir að gera kjól- inn. McQueen segir að kjóllinn verði óhefðbundinn. Fyr- irsætan ætlar í hnapphelduna með rokkaranum Pete Doherty og mun brúðkaupið eiga sér stað á afmæl- isdegi Moss í janúar. McQueen gerir brúðarkjólinn A A A SEN DU SMS JA BOND Á 190 0 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ER U: GSM SÍMAR 007 DVD SAFN IÐ BÍÓMIÐAR DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA ! 9 hver vinnur!Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 EMPIRE 20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI 60 þúsund gestir ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA? MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI I FORSALA AÐGÖNGUMIÐA ER HAFIN Á MIDI.IS ATH: EINNIG ER HÆGT AÐ VERSLA MIÐA Í FORSÖLU Í KVIKMYNDAHÚSUNUM SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6 OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 6, 8, og 10 MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA FEARLESS kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA DEVIL WEARS PRADA kl. 8 og 10.20 DRAUGAHÚSIÐ ÍSL. TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA SKÓGARSTRÍÐ kl. 4 og 6 OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 4, 6, 8 og 10 BORAT kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 FEARLESS kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA DEVIL WEARS PRADA kl. 8 SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6 BORAT kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.