Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 64

Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 64
 Fréttablaðið fjallaði á dögunum um greiðslur til handa A-landsliðsmönnum Íslands í karla- og kvennaflokki. Í úttekt blaðsins kom í ljós gífurlegur munur á greiðslum til karla- og kvennaliðanna. Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við Fréttablaðið á þeim tíma að greiðslurnar væru trúnaðarmál. Eftir birtingu fréttar Fréttablaðs- ins gaf KSÍ út yfirlýsingu þar sem stendur orðrétt: „Þær litlu tekjur sem þó hafa fengist hafa verið í formi styrkja sem hvergi nærri hafa staðið undir rekstrinum. Kostnaður við rekstur A landsliðs kvenna og þriggja yngri landsliða kvenna er að mestu greiddur af tekjum A landsliðs karla.“ Í kjölfar yfirlýsingarinnar sendi Fréttablaðið formlega fyrirspurn til Geirs þar sem meðal annars var farið fram á að fá upplýsingar um hversu háir styrkir frá FIFA og UEFA til handa íslenska kvennalandsliðinu væru enda fylgir enginn rökstuðningur yfir- lýsingu KSÍ. Í ársreikningi KSÍ fyrir árið 2005 kemur fram að UEFA-styrkurinn er tæpar 56 milljónir króna og FIFA-styrkur- inn er tæpar 16 milljónir. Samtals rúmlega 70 milljónir króna. Í fyrirspurninni var einnig spurt hverjir væru styrktaraðilar kvennalandsliðsins og hversu hátt framlag þeirra styrktaraðila væri á ársgrundvelli. Samstarfsaðilar KSÍ eru fjöl- margir og í fyrirspurninni var því spurt hvort samstarfsaðilarnir, sem eru titlaðir samstarfsaðilar KSÍ á heimasíðu sambandsins, væru eingöngu að styrkja karla- landsliðið eða hvort peningar frá þessum opinberu samstarfsaðil- um væru hugsaðir til handa öllum landsliðum Íslands eða rekstri KSÍ yfir höfuð. Í liðnum „styrkir og framlög“ í ársreikningi KSÍ fyrir árið 2005 kemur fram að „ýmsir styrkir“ eru tæplega 35 milljónir króna. KSÍ fékk síðan rúmar 16 milljónir króna frá Íþrótta- og ólympíusam- bandi Íslands, ÍSÍ, fyrir árið 2005. Heildarupphæð þessara styrkja fyrir árið 2005 er vel yfir 120 milljónum króna og því er spurn- ingin sú hversu mikið af styrkt- arfénu rennur til kvennalandslið- anna sem virðast vera nær eingöngu rekin á styrkjum sam- kvæmt yfirlýsingu KSÍ. Fyrir- spurninni, sem var send tvívegis á Geir, var ekki svarað. Rekstur A-landsliðs kvenna árið 2005 kostaði rúmar 10 millj- ónir króna og heildarkostnaður við öll kvennalandsliðin sama ár var rúmlega 21 milljón króna. Til samanburðar má geta þess að rekstur við U-17 ára landslið karla var ögn hærri en rekstur A- landsliðs kvenna. Kostnaður við A-landslið karla var tæplega 63 milljónir króna. Þess má síðan geta að skrif- stofu- og nefndakostnaður Knatt- spyrnusambandsins árið 2005 var yfir 38 milljónum króna. Eins og áður segir sá fram- kvæmdastjóri Knattspyrnusam- bandsins, Geir Þorsteinsson, sér ekki fært að svara fyrirspurn Fréttablaðsins í gegnum tölvu- póst. Geir svaraði síma í gær en spurður neitaði hann að svara spurningum blaðamanns í málinu þar sem hann sagðist ósáttur við vinnubrögð undirritaðs. Hann sagði yfirlýsinguna segja allt sem segja þurfi í málinu. Jafnvel þótt yfirlýsingin sé ekki rökstudd á nokkurn hátt. Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, neitar að gefa upp hversu mikið af styrktarfé KSÍ rennur til handa kvennalandsliðinu sem KSÍ segir vera rekið á styrkjum. Styrkir og framlög til KSÍ árið 2005 voru vel yfir 120 milljónum króna en sama ár kostaði rekstur A-landsliðs kvenna rúmar 10 milljónir króna. Ætlum að valta yfir bikarmeistarana S T Á L P L U S : S : 5 4 4 8 8 0 0 : W W W . S T A L P L U S . I S Góð vara á fínu verði: Ódýr gæðavara fyrir fiskiðnað framleidd I verksmiðju okkar í Lettlandi. m.a. handflökunarlínur, allar tegundir færibanda, karahvolfur, pönnurekkar og sprautusöltunarvél, afkastamikil vél sem hefur komið vel út í fiskvinnslu hér á landi. Hönnum vinnslulínur og tæki í samráði við kaupendur: Það var boðið upp á mikla skemmtun í íþróttahúsi Kennaraháskólans þar sem Stúdínur tóku á móti Grindavík. Eftir venjulegan leiktíma stóðu leikar jafnir, 60-60, og þurfti því að framlengja leikinn. Þar voru aðeins skoruð sex stig en Hildur Sigurðardóttir skoraði sigurkörf- una fyrir Grindavík á lokamínút- unni. ÍS kom reyndar mjög á óvart með því að taka forystuna eftir fyrsta leikhluta, 23-9. Grindavík- urstúlkur réttu úr kútnum og náðu forystunni fyrir hálfleik. Þetta er annar leikurinn í röð sem leikmenn ÍS lenda í fram- lengingu en liðið vann Breiðablik á fimmtudaginn eftir tvær framlengingar. Árangur liðsins er því góður í ljósi þess að enginn bandarískur leikmaður er í liðinu og hópurinn telur einungis sjö leikmenn. Sömuleiðis er athyglisvert að Þórunn Bjarnadóttir hefur að meðaltali í vetur leikið rúmlega 40 mínútur í leik. Aftur fram- lengt hjá ÍS Iceland Express deild kv. Jose Reina segir að leik- menn Liverpool séu búnir að afskrifa möguleika sína á því að vinna enska meistaratitilinn, en hafi þess í stað sett stefnuna á að tryggja sér sæti í Meistaradeild- inni á næsta keppnistímabili. „Við stefnum á að ná fjórða sætinu núna og verðum að berjast fyrir því. Það er líklega að verða óraunhæft að ætla okkur að vinna deildina vegna þess forskots sem Manchester United og Chelsea eru búin að ná. Við ætlum okkur hins vegar að tryggja okkur Meistara- deildarsætið og ég er ekki frá því að við séum betra lið í Meistara- deildinni en í ensku úrvalsdeild- inni.“ Liverpool tapaði fyrir Arsenal um helgina, 3-0, og situr sem stendur í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Stefnum á fjórða sætið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.