Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 66
Mál Helga Sigurðssonar
er enn í algjörum hnút og sér ekki
fyrir endann á því. Helgi fór fram
á að verða leystur undan samningi
en Fram neitaði þeirri bón Helga.
Neituninni hefur Helgi svarað
með því að mæta ekki á æfingar
hjá félaginu. Hann hefur enn
engar skýringar gefið á fjarveru
sinni.
„Ég talaði við Helga þegar ég
skrifaði undir en þá var málið
komið upp. Ég hef ekkert heyrt
frá honum síðan. Ég veit ekki
hvernig málið fer. Ég væri til í að
halda honum en það er spurning
hvort einhverjum sé greiði gerður
með því úr þessu,“ sagði Ólafur
Þórðarson, þjálfari Fram, en heyra
mátti að hann var ekkert sérstak-
lega ánægður með framgöngu
framherjans í málinu.
„Leikmenn verða að gera sér
grein fyrir því að þegar þeir skrifa
undir samninga þá virkar það bara
ekkert á eina vegu. Leikmönnum
finnst oft helvíti hart þegar félög-
in ætla að standa á sínu og telja
svo eðlilegt að þeir fái að fara að
vild.“
Það eru um tvær vikur síðan
Fram-strákarnir byrjuðu að æfa
undir stjórn Ólafs og þjálfarinn
segir að Helgi sé enn velkominn á
æfingar þótt hann sé búinn að
skrópa hingað til.
„Dyrnar standa enn opnar frá
mínum bæjardyrum séð,“ sagði
Ólafur en mun hann sætta sig við
það að Helgi verði seldur til ann-
ars félags hér á landi? „Það er
ákvörðun stjórnarinnar og hefur
ekkert með mig að gera. Auðvitað
er ekkert gott að missa fyrirliðann
en það getur verið betra að vera
án hans en að hafa hann fúlan inni
á vellinum. Leikmaður sem óskar
eftir því að vera ekki í félaginu
skilar sjálfsagt engu fyrir það.
Maður veit samt aldrei hvað ger-
ist og það er annarra en mín að
leysa þetta mál. Ég einbeiti mér að
þjálfuninni með þann mannskap
sem mætir á æfingar,“ sagði Ólaf-
ur Þórðarson, þjálfari Fram.
Ólafur Þórðarson, þjálfari Fram, segir að dyrnar standi enn opnar fyrir fram-
herjann Helga Sigurðsson þótt hann sé ekki enn farinn að láta sjá sig á æfing-
um félagsins og gefi engar skýringar á fjarverunni.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
12
0
2
Wayne Rooney, leikmaður
Manchester United og enska lands-
liðsins, hefur komist í kast við lögin
vegna slagsmála sem áttu sér stað
að næturlagi fyrir utan skemmti-
stað að nafni Panacea í Manchest-
er. Lögreglan tilkynnti í gær að
hún hygðist yfirheyra Rooney
vegna málsins. Atvikið átti sér stað
15. október síðastliðinn.
Dagblaðið The People greindi
frá því á sunnudag að Rooney hefði
verið að fagna því að velski hnefa-
leikakappinn Joe Calzaghe hefði
haldið WBO-heimsmeistaratign
sinni í ofurmillivigt eftir sigur í
bardaga sem haldinn var í borginni
fyrr um kvöldið. Mun Rooney hafa
lent saman við ljósmyndara á leið
sinni frá skemmtistaðnum.
Lögreglan sagði að Rooney
hefði ekki verið handtekinn vegna
málsins og að ljósmyndarinn hefði
ekki þurft að leita til læknis eftir
atvikið. Hann hafi þó tilkynnt það
til lögreglu.
Er þetta ekki í fyrsta skiptið
sem lögreglan þarf að hafa afskipti
af Rooney vegna slagsmála en í
mars síðastliðnum rannsakaði lög-
reglan meinta árás Rooney á
námsmann á skemmtistað í borg-
inni. Sá ákvað að kæra ekki og var
því málið látið niður falla.
Sætir rannsókn vegna slagsmála
Ian Dowie, fyrrum stjóri
Crystal Palace, var í gær sagt upp
störfum sem knattspyrnustjóri
enska úrvalsdeildarliðsins
Charlton sem Hermann Hreiðars-
son leikur með. Liðinu hefur
gengið skelfilega það sem af er
leiktíðinni, hefur unnið tvo af tólf
leikjum og er í botnsæti deildar-
innar. Nú síðast tapaði liðið um
helgina fyrir Wigan, 3-2.
Charlton hefur unnið Bolton og
Manchester City á leiktíðinni og
gert jafntefli við Watford og
Newcastle. Dowie tók við starfinu
af Alan Curbishley sem hafði
stýrt liðinu með góðum árangri í
tæp fimmtán ár. Að Dowie
undanskildum hafa aðeins fjórir
menn stýrt liðinu síðan 1982.
Dowie er fyrsti knattspyrnu-
stjórinn í ensku úrvalsdeildinni
sem fær að taka poka sinn á
þessu tímabili.
Ian Dowie rek-
inn frá Charlton
Fyrrverandi markvörður
sænska landsliðsins, Magnus
Hedman, mun semja við Chelsea
um að leika með liðinu út þessa
leiktíð. Hann mun því fylla skarð
þriðja markvarðar liðsins þar
sem Carlo Cudicini og Hilario
hafa færst ofar í goggunarröðinni
vegna meiðsla Petr Cech.
„Við höfum náð samkomulagi,“
sagði Hedman við heimasíðu
sænsku sjónvarpsstöðvarinnar
TV4 í gær. í fréttinni er sagt að
Hedman muni fara til Lundúna í
vikunni til að skrifa undir
samninginn.
Cech verður frá alla leiktíðina
þar sem hann höfuðkúpubrotnaði
í leik gegn Reading í síðasta
mánuði. Hafa tvær stálplötur
verið ígræddar í höfuð hans og er
búist við að hann geti hafið
æfingar í janúar.
Hedman er fyrrverandi
markvörður hjá Celtic og
Coventry en lagði hanskana á
hilluna vorið 2005.
Semur við Chel-
sea út leiktíðina