Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 4

Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 4
75.000 KR. GJAFABRÉF FRÁ SMÁRALIND FYLGIR NÚNA ÖLLUM BÍLUM Leiðtogar hinna 26 aðildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins strengdu þess heit í lok tveggja daga fundar síns í Ríga í Lettlandi í gær að standa sína pligt í Afganistan, þrátt fyrir vax- andi mannfall í átökum þar og neitun sumra NATO-ríkja um að leggja til hermenn í hættulegustu verkefnin. Geir H. Haarde forsætisráð- herra benti í ræðu sinni á fundin- um á, að Ísland hefði nú þá sér- stöðu að vera án reglubundins eftirlits og viðbúnaðar í lofti á friðartímum. Sú staða yrði úrlausnarefni bæði fyrir íslensk stjórnvöld og bandalagið. Því myndi ríkisstjórn Íslands óska eftir því að málið yrði sem fyrst tekið til umfjöllunar í Norður-Atl- antshafsráðinu. Leiðtogarnir lýstu því yfir að 25 þúsund manna viðbragðssveit- ir bandalagsins væru komnar á laggirnar eftir fjögurra ára undir- búning, en þeim er ætlað að standa í fylkingarbrjósti nútímavædds herafla NATO. Þá var Serbíu - sjö og hálfu ári eftir loftárásir NATO á landið - ásamt grannríkjunum Makedoníu og Svartfjallalandi boðin þátttaka í aðildarundirbúningsáætlun bandalagsins. „Við staðfestum óbifandi stöð- ugleika bandalags okkar og lýsum því yfir að [NATO-herliðið í Afganistan] búi yfir þeim mann- afla, búnaði og sveigjanleika sem þörf krefur til að tryggja áfram- haldandi árangursríka fram- kvæmd verkefnisins,“ segir í lokaályktun leiðtoganna. Af þessu tilefni greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra frá því að íslensk stjórnvöld myndu auka framlög til endurreisnar- og þróunarverkefna í Afganistan, auk þess sem staðið yrði að flug- frakt í þágu þeirra bandalags- ríkja sem hafa liðsafla í sunnan- verðu landinu. Í umræðum um pólitíska og hernaðarlega uppfærslu NATO sagði Geir að um mjög nauðsyn- legt ferli væri að ræða sem varð- aði getu bandalagsins til að gegna hlutverki sínu við breyttar aðstæður. Um leið benti hann á að þetta mætti ekki verða til þess að bandalagið missti sjónar á kjarna- tilgangi samstarfsins, það er sameiginlegum vörnum byggð- um á gagnkvæmum varnarskuld- bindingum aðildarríkjanna. Í því samhengi benti Geir á, að Ísland hefði nú þá sérstöðu innan bandalagsins að vera án reglu- bundins eftirlits og viðbúnaðar í lofti á friðartímum. Sú staða yrði úrlausnarefni bæði fyrir íslensk stjórnvöld og bandalagið, „enda hefði það ávallt nálgast öryggi aðildarríkjanna með heildstæðum hætti,“ að því er haft er eftir Geir í fréttatilkynningu. Geir sagði að íslensk stjórn- völd væru ánægð með nýlegt samkomulag við Bandaríkin um varnarmál, en eftir stæði nauð- syn á eftirliti og viðbúnaði á frið- artímum. Því yrði af Íslands hálfu óskað eftir að málið yrði tekið til umfjöllunar í Norður- Atlantshafsráðinu á næstu vikum. Norður-Atlantshafsráðið er æðsta stofnun NATO. Breytt staða varna Íslands líka úrlausnarefni NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins luku fundi sínum í Ríga í Lettlandi í gær með því að álykta um stað- festu bandalagsins að ná árangri í Afganistan. Forsætisráðherra sagði breytta stöðu varnarmála á Íslandi einnig vera úrlausnarefni NATO. Málið yrði tekið til umfjöllunar í Norður-Atlantshafsráðinu á næstunni. Ríkisstjórn Íslands fer yfir niðurstöðu skýringaviðræðna íslenskra yfirvalda og skipasmíða- fyrirtækisins Asmar á ríkisstjórn- arfundi á morgun. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins verður Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra falið að ganga endanlega frá kaupum á varðskip- inu á grundvelli skýringaviðræðna sem fram fóru í síðustu viku. Fulltrúar skipasmíðafyrirtækis- ins Asmar, sem smíðar skip sín í Talcahuano í Chile, funduðu þá með forsvarsmönnum Landhelgisgæsl- unnar, Ríkiskaupa og Rolls Royce í Noregi en það fyrirtæki kemur að hönnun skipsins. Danskur verkfræðingur, Cars- ten Fauner, var íslenskum yfirvöld- um innan handar í samningavið- ræðunum sem tæknilegur ráðgjafi. Eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu átti Asmar lægsta til- boðið í gerð nýs varðskips, um 2,4 milljarða króna sem var um 200 milljónum undir áætluðum kostn- aði. Þrjú önnur fyrirtæki buðu í gerð varðskipsins, Damen í Hollandi, Simek í Noregi og Peene-werft í Þýskalandi. Gert er ráð fyrir að skipið verði rúmlega 90 metra langt og með 100 til 125 tonna dráttarkraft. Björn Bjarnason vildi ekki tjá sig um málið er Fréttablaðið leitaði eftir því í gær frekar en Sólmundur Jóns- son, rekstrarstjóri Landhelgisgæsl- unnar. Ekki náðist í Georg Lárus- son, forstjóra Landhelgisgæslunnar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Málþing um stofn- frumurannsóknir, þar sem drög að nýju frumvarpi verður kynnt verður haldið í Norræna húsinu í dag. Árið 2005 var skipuð nefnd sem fékk það verkefni að endurskoða lög um tæknifrjóvgun með tilliti til rannsókna á stofnfrumum úr fósturvísum en afrakstur nefndar- starfsins liggur nú fyrir. Ólöf Ýrr Atladóttir, fram- kvæmdastjóri vísindasiðanefndar, segir vísindarannsóknir á heilbrigðissviði vaxandi grein hér á landi en að þörf sé á að endur- skoða löggjöfina. Málþingið stendur frá klukkan 13-18. Þörf á nýjum reglugerðum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.