Fréttablaðið - 30.11.2006, Page 11

Fréttablaðið - 30.11.2006, Page 11
Framkvæmdum við Norðausturveg, sem átti að hefjast á næsta ári, verður seinkað og 300 milljóna króna fjárveitingu frestað frá 2007 til 2008. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir að framkvæmdin verði boðin út á fyrri hluta næsta árs og að framkvæmdir hefjist um mitt næsta ár. „Við ætluðum að byrja framkvæmdir á næsta ári en það voru deilur við landeigendur og því hefur ekki verið hægt að byrja fullnaðarhönnun og undirbúning framkvæmda. Verkið kemst því ekki af stað fyrr en líður á árið,“ segir Sturla Böðvarsson. Fer í gang á næsta ári Sumarbústaður við Kiðjabergsveg í Grímsnesi brann til kaldra kola aðfaranótt miðvikudagsins. Einn maður á fimmtudagsaldri var í bústaðnum þegar eldurinn kom upp. Hundur mannsins vakti hann og stóð bústaðurinn þá í ljósum logum. Maðurinn náði að komast út af sjálfsdáðum. Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um eldsvoðann klukkan rúmlega tvö og hringdi á sjúkrabíl sem flutti manninn á slysadeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss. Hann var útskrifaður í gær. Eldsupptök eru ókunn en lögreglan vinnur að rannsókn málsins. Hundur bjarg- aði manninum Ekið var á hjól- reiðamann á fimmtugsaldri í Flatahrauni í Hafnarfirði á miðvikudagsmorgun. Lögreglan í Hafnarfirði fékk tilkynningu um slysið laust fyrir klukkan átta. Maðurinn var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Hann hlaut höfuðáverka en er ekki þungt haldinn að sögn svæfingalæknis. Tildrög slyssins eru ókunn. Lögreglan í Hafnarfirði vinnur að rannsókn málsins og að sögn hennar kann myrkur og töluverð hálka að hafa orsakað slysið. Maðurinn er al- varlega slasaður Í fyrra var metár í komum kvenna í Kvennaathvarfið og stefnir í enn meiri fjölda í ár. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi sem Fræðslunefnd Stéttar- félags íslenskra félagsráðgjafa stóð fyrir í gær og var yfirskrift fundarins ofbeldi á heimilum. Í fyrra komu 92 konur í dvöl og 465 í viðtöl að sögn Sigþrúðar Guð- mundsdóttur, framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins, sem hefur verið rekið síðan árið 1982. Á þeim tíma hafa alls um 7.000 konur komið í athvarfið og 2.400 börn. Um 26 prósent kvenna sem komu í athvarfið í fyrra fóru aftur heim í óbreytt ástand. Sigþrúður sagði athugavert að lítið væri um að eldri konur kæmu í athvarfið og til dæmis hefði engin kona eldri en 57 ára komið í fyrra. Ofbeldi gagnvart öldruðum var einnig rætt á fundinum og gerði Kristjana Sigmundsdóttir félags- ráðgjafi meðal annars kerfislægt ofbeldi að umtalsefni þar sem úrræðaleysi þjónustu sé ákveðin gerð ofbeldis gagnvart öldruðum. Kristjana sagði ýmsar rann- sóknir benda til þess að þrjú til tíu prósent eldri borgara verði fyrir ofbeldi af ýmsu tagi. Þó sé talið að það sýni aðeins brot vandans þar sem aldraðir viðurkenni síður að þeir verði fyrir ofbeldi. Fundurinn var í tengslum við 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi sem fjöldi félagasamtaka stendur að. Fleiri komur í Kvennaathvarf Hæstiréttur í Pakistan úrskurðaði í gær að tólf ára gömul skosk stúlka, Molly Campbell, sem einnig gengur undir nafninu Misbah Iram Ahmed Rana, eigi að fara til móður sinnar í Skotlandi. Föður hennar í Pakistan er gert að afhenda hana breskum yfirvöld- um innan viku. Móðir stúlkunnar, sem er skosk, fékk forræði yfir henni árið 2005 og segir að faðir hennar, sem er pakistanskur, hafi flutt hana ólöglega frá Skotlandi til Pakistan. Sjálf segist stúlkan vilja búa hjá föður sínum. Lögfræðingur hennar segir að málinu verði áfrýjað. Skoska stúlkan farin til Skotlands Bókaðu bílinn um leið þegar framvísað er brottfararspjaldi frá Flugfélagi Íslands. Innifalið: 100 km og kaskó. Bílaleigubíll í heilan sólarhring frá2.499kr. Flugfélag Íslands flýgur yfir 100 ferðir í viku til áfangastaða sinna. Þið njótið þess að lesa dagblöðin, fá ykkur kaffi og súkkulaði og áður en þið vitið af eruð þið komin á áfangastað. Ferðin tekur enga stund. Taktu flugið. Pantaðu í síma 570 3030 eða á www.flugfelag.is TÍMINN FLÝGUR flugfelag.is Egilsstaðir 6.990 Ísafjörður 5.990 Akureyri 5.990 Vestm.eyj. 4.490 AKUREYRI FRÁ verð frá: ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 3 52 02 1 1/ 06
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.