Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 26

Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 26
Þrjátíu manns eru í fram- boði í forvali Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs sem fram fer um helgina. Afdráttarlaus svör frambjóðenda í tvö efstu sætin gefa vísbendingu um pólitískan samhljóm en um leið greinilegan skoðana- mun frambjóðenda. Frambjóðendur eru ósammála um hvort rétt hafi verið að einkavæða bankana. Kristján Hreinsson segir það hafa verið rétt að einkavæða bankana en að það hafi verið „óþarfi að gefa Búnaðarbank- ann.“ Frambjóðendur hafna alfarið áformum um stækkun álvers Alcan í Straumsvík. Eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu greiða Hafnfirðingar atkvæði um það hvort stækkunaráform fyrir- tækisins nái fram að ganga. Byggir sú ákvörðun bæjaryfirvalda á 33. grein samþykktar um stjórn Hafn- arfjarðarbæjar, en þar segir að bæjarstjórn beri „að leggja þau mál í dóm kjósenda sem hún álítur vera mjög þýðingarmikil fyrir bæjarfélagið.“ Allir eru sammála um að verð- leggja eigi útblástur á kolefnis- samböndum út í andrúmsloftið. Breski hagfræðingurinn Nicholas Stern, sem fór fyrir vinnu bresku ríkisstjórnarinnar um athugun á hugsanlegum áhrif- um aðgerðaleysis vegna loftslags- breytinga af mannavöldum, sagði það brýnt viðfangsefni að ríkis- stjórnir þjóða heimsins verðlegðu útblástur á kolefnissamböndum. Grundvallarröksemdin að baki þessari skoðun Stern er sú sama og Auður Lilja Erlingsdóttir bend- ir á í svari sínu, að það eigi að „kosta að menga og borga sig að vera umhverfisvænn.“ Samhljómur frambjóðenda gefur vísbendingu um að loftslags- breytingar af mannavöldum séu þegar orðið mikilvægt umræðu- efni meðal flokksmanna. Frambjóðendur eru skýrlega ósammála um hvort rétt hafi verið að óska ekki eftir fresti er frjáls för íbúa frá átta Austur-Evrópu- ríkjum var heimiluð 1. maí á þessu ári. Sumir segja það hafa verið rétt, aðrir rangt. Paul F. Nikolov, sem unnið hefur að málefnum innflytjenda, segir ákvörðunina hafa verið rétta í ljósi þess að „atvinnuleysi hefur minnkað þrátt fyrir að hingað hafi komið þúsundir frá 1. maí.“ Það kemur ekki á óvart að allir frambjóðendur hafni einkavæð- ingu Landsvirkjunar þar sem hug- myndir í þá veru samrýmast ekki pólitískri hugsjón flokksins. Búast má við því að umræða um náttúru- vernd og umhverfismál snúist að einhverju leyti um þá grundvallar- spurningu, hvort það sé heppilegt að ríkið ráði því hvaða auðlindir megi nýta og hverjar ekki, um leið og ríkið er eini eigandinn að stærsta fyrirtækinu sem sækist eftir nýtingu auðlinda. Eflaust á umræða um þá stöðu sem upp kemur um áramót, þegar ríkið verður eini eigandinn að Landsvirkjun, eftir að fara fram innan stjórnmálaflokkanna og þá hvort eignarhaldið sé ákjósanlegt. Augljóslega gefa svör frambjóð- enda um einkavæðingaráform ekki tæmandi svör en þau gefa vísbendingum um pólitíska sýn flokksmanna. Kristján Hreinsson er eini fram- bjóðandinn sem telur það hafa verið rétt að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni. Hann nefnir það sérstaklega að réttast hefði verið að „afla fylgis á alþjóðavettvangi“ áður en ákveðið var að hefja veið- arnar. Skattahækkanir eru óvinsælar. Augljóst er að stór hluti frambjóð- enda í forvalinu er ósáttur við núverandi skattkerfi. Er það almennt viðhorf að réttast væri að „jafna skattbyrðina, létta henni af þeim sem þurfa að lifa af lágmarkslaunum“, eins og Kolbrún Halldórsdóttir þingkona segir í svari sínu. Frambjóðendur útiloka ekki sam- starf við Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn, þótt „það sé ekki fyrsti kostur“, eins og skýrlega kemur fram í svörum Kristínar Tómas- dóttur og Álfheiðar Ingadóttur. Frambjóðendur eru ósammála um hvort stuðla eigi að frekara samstarfi einkaaðila og hins opin- bera í heilbrigðiskerfinu. Hluti frambjóðenda hafnar alfarið aðkomu einkaaðila að heilbrigðis- kerfinu á meðan aðrir eru því hlynntir, svo lengi sem heilbrigðis- kerfið heyri undir ríki og sveitar- félög og sé að þeirra ábyrgð. Mikill meirihluti frambjóðenda telur það óréttlætanlegt að lífeyris- kjör þingmanna og ráðherra séu betri en annarra starfsstétta. Kolbrún Halldórsdóttir lætur sér nægja að svara spurningunni á þann veg að baráttan fyrir launa- jöfnun sé brýn en það blási ekki byrlega. Ósammála um einkavæðingu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.