Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 72
Mark Twain fæðist
Mannleg náttúra er nú einu
sinni þannig að flest er
hægt að þola nema vel-
gengni annarra.
„Garðar þjónaði á umbrotstíð og
mörgum tímaskeiðum liðinnar aldar í
Hafnarfjarðarkirkju, Bessastaðar-
kirkju og Kálfatjarnarkirkju. Hann
var einstakur maður,“ sagði sr. Gunn-
þór Ingason, sóknarprestur í Hafnar-
firði, en um helgina verður mikið um
að vera í Hafnarfjarðarkirkju í tilefni
aldarafmælis sr. Garðars. Hann þjón-
aði söfnuðum sínum frá 1932 til 1977,
eða í fjörutíu og fimm ár. Hann lést
árið 1979.
„Sr. Garðar var þróttmikill maður
sem lét að sér kveða í félagsmálum á
ýmsa vegu. Hann kom til Hafnarfjarð-
ar í kreppunni og liðsinnti eftir bestu
getu. Hann var formaður Vetrarhjálp-
arinnar og fátækrahjálpar og var mál-
svari samhjálpar á þrengdartímum,“
sagði sr. Gunnþór. „Svo var hann einn
af bestu söngvurum þjóðarinnar,“
bætti hann við, en Garðar söng með
Karlakór KFUM og Fóstbræðrum og
stjórnaði og söng með Þröstum, karla-
kór Hafnfirðinga. „Það er frábært að
hlýða á hann syngja með Fóstbræðr-
um, það eru til upptökur með þeim þar
sem sr. Garðar syngur einsöng og
maður heyrir hreinlega ekki fallegri
rödd,“ sagði Gunnþór.
Stríðsárin voru Hafnfirðingum
erfið. „Sr. Garðar var kletturinn í
þessum hafsjó þjáningu og rauna
mannlífsins og þótti frábær sálusorg-
ari. Hann var svo raungóður og traust-
ur,“ sagði sr. Gunnþór.
Haldið verður upp á aldarafmæli
sr. Garðars með veglegri dagskrá.
Karlakórinn Þrestir og eldri Fóst-
bræður halda kórtónleika í kirkjunni
klukkan þrjú á laugardag og á sunnu-
degi verður hátíðarguðþjónusta klukk-
an ellefu. „Ég, sr. Þórhallur Heimis-
son, sr. Þórhildur Ólafs og dr. Gunnar
Kristjánsson, prófastur leiðum mess-
una,“ sagði Gunnþór. Söngkonur sem
sungu í kór kirkjunnar á efri árum
séra Garðars koma einnig fram í
messunni, þær Jóhanna Linnet, Ing-
veldur G. Ólafsdóttir, Guðný Árna-
dóttir og Margrét Pálmadóttir. Ásamt
þeim syngja Ragnheiður Linnet,
Hanna Björk Guðjónsdóttir, kór kirkj-
unnar og unglingakór, en nemandi úr
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar kemur
einnig. „Svo verður hátíðisverður og
samsæti í Hásölum Strandbergs, safn-
aðarheimilisins, þar sem sr. Björn
Jónsson fyrrum prófastur flytur „Svip-
myndir af samleið“, en hann jarðsöng
sr. Garðar á sínum tíma,“ sagði sr.
Gunnþór. Allir eru velkomnir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Kristinn Guðmundsson
bifreiðastjóri, Grenigrund 11, Akranesi,
andaðist á heimili sínu 27. nóvember 2006. Útförin
verður gerð frá Akraneskirkju 8. desember 2006 kl. 14.
Kirstín Benediktsdóttir
Rúnar Helgi Kristinsson
Petra Kristín Kristinsdóttir Einar Guðni Þorsteinsson
Guðmundur Kristinn Kristinsson Kristín Brynja
Gústafsdóttir
Guðlaugur Guðjón Kristinsson Sylvía Clothier Rúdolfsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Karl Gunnlaugsson
Garðarsbraut 28, Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þriðjudaginn
28. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar.
F.h. aðstandenda
Hörður Már Karlsson Anna Lilja Guðjónsdóttir.
Berglind María Karlsdóttir Kristinn Einarsson
Barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna.
Elskuleg konan mín,
Ingibjörg Sófusdóttir
Köldukinn 13, Hafnarfirði,
lést að Sólvangi þriðjudaginn 28. nóvember. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Gunnar Guðmundsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Magðalena Ólafsdóttir
húsmóðir, Austurgerði 8, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann 27. nóvember
sl. Jarðarförin fer fram í Bústaðakirkju þriðjudaginn
5. desember kl. 13.00.
Hannes Vigfússon
Ómar Hannesson Anna Karlsdóttir
Elín Hannesdóttir
Baldur Hannesson Særós Guðnadóttir
Haukur Hannesson
Bryndís Hannesdóttir Halldór Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Jón Valberg Sigurjónsson
matsveinn,
lést miðvikudaginn 22. nóvember á Landspítalanum
Fossvogi. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudag-
inn 1. desember k. 13.00.
Sigurjón Valberg Jónsson Theódóra Sigrún Haraldsdóttir
Guðmundur Valberg Jónsson Linda Silch
Kristinn Valberg Jónsson Malgorzata Bluszko
Valborg Sigrún Jónsdóttir Jón Ingi Sigvaldason
Jóhann Valberg Jónsson Dagbjört Þuríður Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
Örn Steinar Ásbjarnarson
Þorgrímsstöðum,
verður jarðsunginn frá Tjarnarkirkju, Vatnsnesi
laugardaginn 2. desember kl. 14.00.
Kristín Guðjónsdóttir
Ásbjörn Guðmundsson
Þorbjörg Ásbjarnardóttir J. Óskar Sigurbjörnsson
Margrét Ásbjarnardóttir Þorvaldur Kristjánsson
Ásbjörn, Alexander og Þorvaldur Örn.
Okkar ástkæri vinur, faðir, tengdafaðir,
bróðir og mágur,
Gunnar M. Sigurðsson
(Gunni Sig.), starfsmaður Vífilfells,
Álfaskeiði 76, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju á morgun,
föstudaginn 1. desember kl. 13.00.
Aðalbjörg Sigþórsdóttir
Sigurður Örn Gunnarsson Sif Heiða Guðmundsdóttir
Hilmar Örn Gunnarsson Ólöf Jónsdóttir
Aðalbjörg Gunnarsdóttir Höskuldur Þór Höskuldsson
Sigríður Ósk Zoëga Sig. Guðmundur Smári Tómasson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi okkar,
Bragi Sveinsson
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn
28. nóvember síðastliðinn. Hann verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju þriðjudaginn 5. desember klukkan 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Kristín Ðiep Nguyen
Kristín Ingveldur Bragadóttir
Þóra Sædís Bragadóttir
Aðalheiður Bragadóttir
Björn Bragi Bragason
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
dóttir, systir, amma og langamma,
Elísabet Óskarsdóttir
Sóltúni 5, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn
1. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Félag velunnara Hlíðabæjar, Flókagötu 53.
Óskar Heimir Ingvarsson Guðrún Matthíasdóttir
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir Alfred Wolfgang Gunnarsson
Helga Björg Björnsdóttir Hans-Petter Fransrud
Indriði Björnsson Ekaterina Gagunashvili
Helga Þorleifsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.