Fréttablaðið - 30.11.2006, Síða 95

Fréttablaðið - 30.11.2006, Síða 95
Það var létt yfir íslenska kvennalandsliðinu í handbolta eftir að liðið vann sigur á Adserbaídsjan í fyrsta leiknum í undankeppni HM á þriðjudag- inn. Liðið fékk frí í gær og í dag en það er erfitt verkefni fyrir höndum á morgun þegar Ísland mætir Portúgal. Stelpurnar tóku fríinu fagnandi og eftir leikinn mátti víða sjá bros á andlitum þeirra. Ekki síst í herbergi þeirra Elísabetar Gunnarsdóttur og Hörpu Melsted þar sem fram fór hörkuspennandi lagakeppni. Keppnin fór þannig fram að Rakel Dögg Bragadóttir sat við tölvuna, spilaði lög úr henni og hinar stelpurnar áttu að giska á hver væri flytjandinn. Það var að lokum Ragnhildur Guðmunds- dóttir sem fór með nokkuð öruggan sigur af hólmi enda ansi nösk á að giska og greinilega vel að sér í tónlistarheiminum. Spila á spil og skemmta sér Frákastavélin Ben Wallace, sem kom til Chicago Bulls frá Detroit Pistons í sumar, er búinn að gera allt vitlaust hjá félaginu á þeim stutta tíma sem hann hefur verið í herbúðum félagsins. Nýjasta nýtt er að Wall- ace braut reglur félagsins vísvit- andi í leik gegn New York Knicks er hann mætti til leiks með ennis- band sem einhverra hluta vegna er bannað hjá Bulls. Hann var fyrir vikið settur á bekkinn. Í næsta leik á eftir mætti hann til leiks án ennisbandsins og fékk að spila en spilaði ekki vel. Í raun hefur Wallace átt í miklum erfiðleikum í vetur og hefur ekki einu sinni náð tíu fráköstum að meðaltali í leik. Vörnin átti að styrkjast með komu hans en hún hefur verið slakari en síðasta vetur það sem af er þessum vetri. Annars virðist Wallace vera með allt á hornum sér og sam- skipti hans við þjálfara og stjórn- arformann félagsins hafa ekki verið upp á marga fiska. Það er margt sem fer í taugarnar á Wall- ace hjá félaginu og til að mynda hefur hann rifist mikið yfir því að fá ekki að spila tónlist í búnings- klefanum fyrir leiki. Kaldhæðnin í þessu ennis- bands-máli er sú að Bulls notar mynd af Wallace með ennisband í auglýsingaskyni fyrir félagið. En af hverju ákvað Wallace eiginlega að mæta til leiks með ennisbandið vitandi að það væri bannað? „Ég var bara í þannig skapi,“ sagði Wallace einfaldlega. Ben Wallace var í aðalhlutverki hjá Chicago Bulls sem vann New York Knicks í fyrrinótt, 102-85. Þá lék hann í tæpar 40 mínútur, skor- aði tíu stig og tók tólf fráköst. Settur á bekkinn fyrir að nota ennisband Argentínumaðurinn strunsaði heim á leið um síðustu helgi er honum var skipt af velli í leik West Ham. Hann bað félaga sína síðar afsökunar, sagðist hafa verið heitt í hamsi og því hafi hann brugðist svo illa við. Félagar Tevez í West Ham- liðinu fengu að velja refsingu til að leggja á Argentínumanninn og þeir ákváðu að hann skyldi mæta á næstu æfingar í landsliðstreyju Brasilíu. Verður áhugavert að sjá hvort hann sættir sig við þá refsingu. Neyddur í treyju Brasilíu Varnarmennirnir Silvinho frá Brasilíu og Giovanni Van Bronckhorst hafa ákveðið að framlengja samninga sína við Evrópumeistara Barcelona til ársins 2008 en samningar beggja áttu að renna út næsta sumar. „Það er búið að ganga frá öllu og við munum skrifa undir pappírana í byrjun desember,“ sagði Txiki Begiristain, yfirmað- ur knattspyrnumála hjá Barce- lona. Framlengja við Barcelona
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.