Fréttablaðið - 24.12.2006, Síða 10

Fréttablaðið - 24.12.2006, Síða 10
greinar@frettabladid.is E ngin hátíð kristinna manna setur eins mikinn svip á þjóðlífið og jólahátíðin. Gildir þar einu hvort um er að ræða hér á Íslandi eða annars staðar í hinum kristna heimi. Jafnvel utan hinna hefðbundnu kristnu landa fer jólahátíðin ekki fram hjá fólki, og allra síst nú á dögum alþjóðlegrar og mikillar fjölmiðlunar. Það er þó nokkuð síðan eplalykt, kerti og spil settu svip sinn á jólahaldið hér á landi. Nú á tímum er aðventan hins vegar orðin ein allsherjar tónlistar- og ljósahátíð hér á landi, og mun vera leitun að öðru eins í nágrannalöndunum, auk þess sem þessi tími árs er mikil verslunarhátíð. Ljósaskreytingar setja orðið mikinn svip á umhverfið, ekki aðeins í höfuðborginni og bæjum um land allt, heldur ekki síður í sveitum landsins. Þar setja ljósaskreytingar kannski meiri svip á umhverfið en í bæjunum, þar sem er svo að segja stöðugur ljósagangur af einhverju tagi í skammdeginu. Sveitirnar lifna svo sannarlega við á aðventunni og setja oft ævintýralegan blæ á fjöll og dali . En jólin eru ekki bara tónleikar og ljósaskreytingar, matar- og gjafahátíð. Hinn raunverulegi og upprunalegi tilgangur jólanna er að minnast fæðingar frelsarans, sem sagt er frá í jólaguðspjallinu. Því má ekki gleyma í öllu amstrinu fyrir og um jólin. Það er vegna Jesúbarnsins sem fæddist í jötu í Betl- ehem, sem við höldum jól. Frelsarinn hefur sett meiri svip á mannkynið en nokkur annar og hann er stöðugt rannsóknar- efni. Það er hann sem hefur mótað siðmenningu okkar og það er því mikilvægt að boðskapur jólanna drukkni ekki í önnunum sem fylgja jólahátíðinni. Þetta er okkur mikilvægt að muna, og reyna að haga því þannig til að kyrrar stundir gefist um jóla- dagana til að innbyrða frið og helgi jólahátíðarinnar. En það eru fleiri persónur sem tengjast nútímajólum en sjálfur Jesú. Nafn hans tengist kyrrð og friði og hann er umlukinn heilagleika. Hinar persónurnar sem tengjast jólum eru jólasveinar, og í kringum þá eru ærsl og læti. Þeir eru ásamt Jesú hluti af jólahaldinu, en með ólíkum hætti þó. Það má segja að þessar persónur sem tengjast jólunum séu mikl- ar andstæður, en þó ómissandi þáttur jólahaldsins. Um þessi jól verða kirkjur landins væntanlega þéttsetnar eins og endranær. Kirkjuferð er hjá mjög mörgum ómissandi hluti af jólahaldinu. Á þeim vettvangi hafa líka orðið miklar breytingar frá því að eplalyktin, kertin og spilin settu svip sinn á jólahátíðina. Fleiri konur munu líklega skrýðast hempu og hökli um þessi jól hér á landi en nokkru sinni fyrr. Konum í presta- stétt hefur fjölgað töluvert hér á síðari árum og er það vel. Þær hafa breytt yfirbragði helgihaldsins og eru gott innlegg í jafnréttisbaráttuna. Þær eiga líka að njóta sannmælis í hinum kristna heimi og þær eiga sinn rétt. Þeirra hlutverk innan þjóðkirkjunnar er mikilvægt og það ber að virða og þakka. Gleðileg jól. Jólahátíðin Er vetrar geysar stormur stríður þá stendur hjá oss friðarengill blíður,“ segir í alþekktum jólasálmi Valdimars Briem, „Í dag er glatt í döprum hjörtum“. Vetrarstormarnir hafa geysað, stríðari en nokkru sinni undan- farna daga. Maður undrast æðruleysi fólks sem hefur orðið fyrir tjóni og erfiðleikum vegna flóða og skriðufalla. Því er mikið gefið. Eins er alltaf jafn undra- vert það sem björgunarsveitar- fólk og aðrir sem sinna aðstoð og björgunarstörfum eru reiðubúnir til að leggja á sig, og leggja sig jafnvel í hættu. Eins góðir grannar sem bregðast við til hjálpar. Þar eru víða hjálpar- og friðarenglar á ferð meðal okkar og það er mikið þakkarefni. Gleymum því ekki. Guð gefi að allir fái notið friðar og gleði jólahátíðarinnar, og að engin alvarleg slys, áföll eða önnur ótíðindi hendi. Þegar veðrin sýna á sér slíkar öfgar þá eru hlýnun andrúms- loftsins og gróðurhúsaáhrif nærtækir sökudólgar að margra mati. Sumum finnast veðurfregn- irnar vera orðnar stórpólitískar! Þótt umdeilt sé að hve miklu leyti breytingar í veðurfari eru af mannavöldum, eða um eðlilegar sveiflur er að ræða, þá virðist óhjákvæmilegt að tengja öfga veðurfarsins við lífshætti okkar. Það eru samhengi í lífinu og sköpunarverkinu sem við verðum að taka tillit til. Það hafa menn ætíð talið sig vita. Kristin kirkja er send með erindi og boðskap sem hvetur sérhverja manneskju til hófsemi og virðingar í umgengni við lífið og jörðina. Friðarengillinn blíði bendir enn sem fyrr á lausnina, á frelsara heimsins, barnið í jötunni. Boðskapur hans snertir lífið allt. Það er engin tilviljun að frelsarinn fæddist í fjárhúskró. Uxi og asni og jórtrandi lamb urðu vitni að fæðing hans, sem er frelsari heimsins, alls heimsins. Hann beindi athygli okkar að liljum vallarins og fuglum himinsins og hvetur okkur að gefa gaum að hrynjandi árstíða og gangi himintungla og tímanna táknum. Og að sjá í því merki þess að lausnin er í nánd. Ekki ragnarök eyðingar, heldur lausn, það ríki, sú veröld þar sem vilji Guðs hefur sigrað allt. Um það biðjum við þegar við segjum:„Til komi þitt ríki. Verði þinn vilji.“ Og þá um leið erum við minnt á að okkur ber að leitast við að greiða því veg. Og í ljósi þess megum við vita að lífsstíll okkar almennt er undir dómi. Við erum orðin háð gengdarlausri sóun orkulinda, linnulausum hernaði gegn náttúr- unni, almennu virðingarleysi við manngildið. Við sjáum það daglega á síðum dagblaðanna og það æpir á okkur af skjánum, eitthvað verður að breytast. Yfirgangurinn, óðagotið og tillitsleysið á vegum landsins er birtingarmynd andlegs ástands, sem við getum unnið bót á. Heill og framtíð okkar er í húfi, já, og heill og framtíð barnanna okkar. Ábyrgð, virðing, tillitsemi, hógværð í umgengni við jörðina, lífið, annað fólk, okkur sjálf. Við þurfum ekki að bíða eftir því að G8 leysi málin, að Sameinuðu þjóðirnar nái samstöðu, að ríkisstjórnin taki á sig rögg. Mikilvægast er að við hvert og eitt öxlum ábyrgð og sýnum samstöðu með lífinu og umhyggju um annað fólk. Í aðdraganda jólanna kemur enn og aftur upp umræða um fátækt og misskipting gæðanna. Það er eðlilegt, vegna þess að eitt meginstef jólaboðskaparins er samstaða með þeim fátæku, þeim sem heimurinn lokar einatt á og úthýsir. Jesús Kristur sem fæddist utangarðs, í fjárhúsinu í Betlehem, tók sér stöðu með þeim, og segir: „Það sem þið gerið einum af þessum mínum minnstu systkinum, það gerið þið mér.“ Viðbrögð við ákalli Hjálparstarfs kirkjunnar og annarra líknarsamtaka á aðventu sýna að margir vilja leggja sitt af mörkum til að hjálpa fátæk- um, heima og erlendis. Fátækt og örbirgð er alheimsvandi. Umræðan og athyglin má aldrei einskorðast við okkar eigin heimatún né heldur festast í deilum um hugtök og í talnaleikj- um fræðinga. Fátækt er vissu- lega afstæð. Aldrei höfum við verið auðugri sem þjóð, og aldrei hafa eins margir Íslendingar verið í hópi auðmanna. Við erum ekki lengur fátæk og smá, eins og löngum áður. Hins vegar er ekki alveg víst að það standist sem danskurinn segir: „Þegar rignir á prestinn drýpur á djáknann.“ Við Íslendingar höfum viljað byggja það þjóðfé- lag að hér ríki jöfnuður og að enginn, hvorki börn né gamal- menni, líði skort. Þeirri þjóðfé- lagssýn megum við aldrei gleyma. Jólin ganga senn í garð. Jólaklukkur, ljós og helgir hljómar jólanna bera boðskap friðar og kærleika inn í sérhvert hús og vonandi sérhvert hjarta. Þar er „friðarengill blíður“ að vitja þín. Eiginlega eru jólin, jólahaldið, jólagjöf kristninnar til heimsins! Af því að jólin gefa innsýn inn í þann heim þar sem vilji Guðs ræður, hið góða, fagra og fullkomna. Jólin sýna það hvernig það er þegar áhrif góðvildar og gleði, trúar og kærleika fá að vinna sitt verk. Jólin segja að góðvildin og friðurinn, ljósið er okkur ætlað og áskapað, og við erum kölluð til að greiða því veg. Þó að stormarnir geysi í náttúrunni, og í mannlífinu, þá „stendur hjá oss friðarengill blíður“ og minnir okkur á að Guð er góður, það er góður hugur að baki lífi og tilveru manns og heims, föður- hjarta sem ann, umhyggja og ástúð, sem yfir vakir og engum gleymir. Megi það snerta við okkur öllum, og lýsa okkur veginn fram. Gleðileg jól! Karl Sigurbjörnsson Jól í stormi Kristin kirkja er send með erindi og boðskap sem hvetur sérhverja manneskju til hóf- semi og virðingar í umgengni við lífið og jörðina.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.