Fréttablaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 6
Breski sagnfræð-
ingurinn og rithöfundurinn David
Irving var í liðinni viku látinn
laus úr fangelsi í Austurríki, en
vegna þoku í Lundúnum seinkaði
heimför hans.
Í fangelsinu hafði hann dúsað í
þrettán mánuði er dómstóll í
Vínarborg úrskurðaði að afgang-
urinn af þriggja ára fangelsis-
dómi, sem hann var dæmdur til
fyrr á árinu fyrir að véfengja
helförina gegn gyðingum í ræðum
sem hann hélt í Austurríki árið
1989, skyldi skilorðsbundinn.
Samkvæmt austurrískum
lögum liggur allt að tíu ára
fangelsisrefsing við því að afneita
helförinni.
Látinn laus eft-
ir ár í fangelsi
Stjórnarandstaðan í
Danmörku gagnrýnir nú Anders
Fogh Rasmussen forsætisráð-
herra fyrir að hafa mistúlkað
orðalag í minnisblaði frá George
W. Bush Bandaríkjaforseta um
fanga frá Afganistan. Bandaríkja-
menn sjálfir túlki orðalagið með
allt öðrum hætti.
Fogh Rasmussen hefur frá
árinu 2002 staðið á því fastara en
fótunum að í þessu minnisblaði,
sem er frá því í febrúar árið 2002,
lýsi Bush því ótvírætt yfir að
Bandaríkjamenn ætli að fara í
einu og öllu að ákvæðum Genfar-
sáttmálanna um stríðsfanga að því
er varðar meðferð fanga frá
Afganistan, jafnvel þótt þeir séu
ekki skilgreindir sem stríðsfang-
ar.
Þennan skilning hefur danska
stjórnin notað sem réttlætingu
fyrir því að danskir hermenn
afhendi bandarískum hermönnum
þá fanga sem Danir taka fasta í
Afganistan.
Nú hefur danska útvarpið hins
vegar upplýst að minnisblaðið
hafi Bandaríkjamenn þvert á
móti notað sem forsendu þess að
fara ekki að ákvæðum Genfar-
sáttmálanna, þar sem Bush sé
þarna að veita heimild til þess að
gera undanþágur varðandi þessa
fanga.
Mistúlkaði bandarískt skjal
Við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar Reykjavíkurborgar
á þriðjudag sagði Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri að til-
tekt vegna fortíðarvanda hefði
beðið nýs meirihluta eftir kosn-
ingarnar í vor.
Gaf hann stjórnskipulagi borg-
arinnar lága einkunn sem og fjár-
málastjórn gamla meirihlutans.
Vilhjálmur sagði stjórnskipu-
lagið vonlaust „eftir nokkurra ára
stjórnkerfisæfingar undir forystu
borgarfulltrúa Dags B. Eggerts-
sonar, sem aukið hefur flækjustig-
ið í stjórnsýslu borgarinnar.“
Óhjákvæmilegt væri fyrir
meirihlutann að einfalda og bæta
stjórnsýsluna. Hafi stjórnendur
borgarinnar leitað leiða á undan-
förnum mánuðum við að veita
þjónustu með skilvirkari hætti og
minni tilkostnaði en áður.
Dagur B. Eggertsson hafnar
þessum útlistunum Vilhjálms.
„Það sem borgarstjóri kallar
æfingar er helmingsfækkun
nefnda og einföldun og straum-
línulögun á öllu stjórnkerfinu,“
segir Dagur og bætir við að mark-
mið breytinganna hafi verið að
færa þjónustuna eins nálægt borg-
arbúum og hægt hafi verið.
„Þetta hefur bæði sparað pen-
inga og skilað betri þjónustu eins
og sést á ánægjumælingum.
Umbæturnar eru að mörgu leyti
hliðstæðar því sem okkar fram-
sæknustu fyrirtæki í þjónustu
hafa innleitt hjá sér á sama ára-
bili. Það þarf því að hafa stæka
fortíðarþrá til að átta sig ekki á að
breytingarnar hafa verið til bóta.“
Auk þess að gagnrýna stjórn-
kerfið sagði Vilhjálmur að nýja
borgarstjórnin hefði hlotið í arf
„árlegt margra milljarða króna
gat milli almennra tekna og gjalda
aðalsjóðs.“ Því þyrfti að taka enn
frekar á vandanum á nýju ári og
ná fram hagræðingu í rekstri.
Dagur segir að með þeim orðum
sé borgarstjóri væntanlega að
vísa til þess að hluti tekna Reykja-
víkurborgar komi í gegnum arð-
greiðslur og ábyrgðagjald frá
Orkuveitunni. „Menn hafa stund-
um talað um þetta sem sérkenni-
legar tekjur til að nýta borgarbú-
um til heilla en það er ekki nokkur
einasta breyting á því í fjárhagsá-
ætlun meirihlutans þannig að
þarna stangast algjörlega á orð og
gjörðir.“
Stjórnkerfisæfingar
auka flækjuferlið
Borgarstjóri segir stjórnskipulag Reykjavíkur undir stjórn R-listans vonlaust og
því nauðsynlegt að einfalda og bæta stjórnsýslu borgarinnar. Dagur B. Eggerts-
son hafnar því og segir kerfið hafa sparað peninga og skilað bættri þjónustu.
Starfsfólk Norrænu eft-
irlitssveitarinnar á Srí Lanka,
SLMM, hefur verið kallað til höf-
uðstöðva í Kólombó. Átök hafa
harðnað og brot beggja aðila,
stjórnarhers og tamílatígra, á
vopnahléssamningnum hafa auk-
ist verulega, segir í tilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu.
Þorfinnur Ómarsson, fjölmiðla-
fulltrúi SLMM, segir að einnig
hafi komið til jólafrí starfsmanna.
Um helmingur sveitarinnar sé í
jólafríi og vegna fyrirsjáanlegrar
manneklu þótti hentugt að kalla
fólkið saman og skoða stöðu mála.
Yfir jólin verða fimm Íslend-
ingar við skyldustörf í eftirlits-
sveitunum. Jólin þar eystra eru
ansi frábrugðin hátíðinni hér
heima. Aðalbjörn Sigurðsson og
María Jespersen friðargæslulið-
ar ætla ekki að herma eftir
íslenskum jólum á Srí Lanka. Þau
halda til borgarinnar Batticaloa í
dag og borða þar með vinum. „Við
gerum bara það besta úr þessu.
Maður tekur ekki stemninguna
með sér og við komum ekki með
hangikjöt eða laufabrauð með
okkur,“ sagði Aðalbjörn. Þess í
stað ætla friðargæsluliðarnir að
gera jólin eins frábrugðin hinum
hefðbundnu og hugsast má og
skella sér í partí í kvöld. Enda lítt
jólalegt á eyjunni; hitinn milli 27
og 34 gráður og við hámark regn-
tímabilsins.
Fá ekkert hangikjöt um jólin
Átján ára gamall maður
var dæmdur í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
líkamsárás í Héraðsdómi Vest-
fjarða á miðvikudaginn. Maður-
inn kýldi og skallaði jafnaldra
sinn í andlitið fyrir utan dansstað
nóvember í fyrra. Maðurinn hlaut
glóðarauga hægra megin á
andlitinu, blóðnasir og bólgið nef.
Þegar refsingin yfir mannin-
um var ákveðin var litið til þess
að þrátt fyrir ungan aldur hefur
maðurinn áður verið sakfelldur
fyrir ofbeldisbrot. En það var virt
honum til málsbóta að hafa játað
brot sitt fyrir dómi.
Skallaði og
kýldi til blóðs
Borðar þú skötu um jólin?
Drekkur þú malt og appelsín
um jólin?
Ákærur á hendur
átta bandarískum hermönnum
fyrir stríðsglæpi í Írak er stærsta
sakamálið á hendur Bandaríkja-
her frá því
innrásin í Írak
hófst.
Fjórir óbreytt-
ir hermenn eru
ákærðir fyrir
morð á 24
saklausum
íröskum borgur-
um, en að auki
eru fjórir
yfirmenn
þeirra ákærðir fyrir að hafa
hylmt yfir með þeim.
Morðin áttu sér stað í bænum
Haditha í Írak á síðasta ári.
Mennirnir eru sagðir hafa myrt
fólkið eftir að einn félagi þeirra
varð fyrir sprengju og lést.
Átta ákærðir
fyrir stríðsglæp
Þróunarsamvinnustofnun
Íslands ver um 280 milljónum til
verkefna í Malaví á næsta ári, eða
um fjórðungi þess fjármagns sem
hefur verið samþykkt fyrir árið
2007. Gert er ráð fyrir að kostnaður
við verkefni á næsta ári nemi
rúmum 1.200 milljónum króna.
Þá hefur verið samþykkt að
veita 150 milljónum króna til
Úganda, 140 milljónum til Namibíu,
rúmum 130 milljónum til Mósamb-
ik, tæpum 100 milljónum til Srí
Lanka og ríflega 70 milljónum til
Níkaragva, auk um 80 milljónum
króna til samstarfs með frjálsum
félagasamtökum, innan lands sem
utan.
Fjórðungurinn
fer til Malaví
Góðgerðasöfnun á jólagjöfum
handa börnum á Íslandi hefur
staðið yfir í Kringlunni og í ár
söfnuðust um 4.000 pakkar.
Fjölskylduhjálp Íslands og
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
sáu um að koma pökkunum til
þeirra sem á aðstoð þurftu að
halda fyrir jólin.
Undirtektir voru góðar og ljóst
að mörg börn munu gleðjast um
þessi jól fyrir tilstuðlan þeirra
sem lögðu sitt að mörkum í
söfnuninni. Þörfin er gríðarlega
mikil að sögn starfsfólks Fjöl-
skylduhjálpar Íslands og Mæðra-
styrksnefndar.
Íslandspóstur sá um að senda
pakka frítt til söfnunarinnar fyrir
þá sem búsettir eru utan höfuð-
borgarsvæðisins.
Alls söfnuðust
4.000 jólagjafir
Tæplega áttatíu prósent
Íslendinga eru jákvæð í garð
Íbúðalánasjóðs og tæp fjögur
prósent neikvæð. Þetta kemur
fram í könnun Capace t.
Þetta er svipað og kom fram í
sambærilegri könnun sem gerð
var meðal fasteignakaupenda á
tímabilinu júlí til októberloka á
þessu ári. Þar sögðust tæp 76
prósent jákvæð en sjö prósent
neikvæð. Margir kvörtuðu undan
of lágu hámarksláni og takmörk-
unum vegna brunabótamats sem
hefti eðlilegar lánveitingar.
Jákvæðni í garð
Íbúðalánasjóðs