Fréttablaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 4
Opnunartímar
um jól og áramót 2006-2007
24. des. Lokað
25. des. Lokað
26. des. kl. 13:00 - 18:00
27. des. kl. 13:00 - 18:00
28. des. kl. 13:00 - 18:00
29. des. kl. 13:00 - 20:00
30. des. kl. 13:00 - 18:00
31. des. kl. 10:30 - 15:00
1. jan. Lokað
2. jan. kl. 13:00 - 18:00
Karlmaður sem ákærður
hefur verið fyrir þátttöku í stór-
felldu kókaínsmygli hingað til lands
losnaði á föstudag úr gæsluvarð-
hald vegna dráttar sem orðið hafði
á málsmeðferð í Héraðsdómi.
Maðurinn hafði setið í gæslu-
varðhaldi frá 10. ágúst. Hann var
hnepptur í fangelsi ásamt fjórum
öðrum vegna tilraunar til að
smygla til landsins tæplega tveim-
ur kílóum af kókaíni 9. ágúst.
Fíkniefnin fundust við leit í far-
angri stúlku þegar hún kom til
landsins um Keflavíkurflugvöll.
Þáttur mannsins í málinu er talinn
verulegur þar sem hann hafi við-
urkennt að hafa farið til Spánar,
sótt þar efnið, fengið það burðar-
dýri og skipulagt innflutninginn.
Hæstiréttur hefur tekið undir það
álit ákæruvalds að fyrir liggi
sterkur grunur um að maðurinn
hafi framið brot sem geti varðað
hann allt að 12 ára fangelsi.
Héraðsdómur hafði nýverið
úrskurðað manninn í gæsluvarð-
hald til 25. janúar. Hann kærði til
Hæstaréttar, sem segir í dómi
sínum að verjandi hans hafi í síð-
asta mánuði óskað eftir því að
aðalmeðferð færi fram fyrir 20.
desember, en þá rann gæsluvarð-
hald mannsins út.
Héraðsdómari hefði bókað að
ekki væri hægt að verða við því
sökum anna. Hæstiréttur taldi þá
skýringu ekki fullnægjandi og
felldi gæsluvarðhaldsúrskurðinn
úr gildi.
Bandaríski herinn
greindi frá því í gærmorgun að
einn af fjórum helstu leiðtogum
talíbana í Afganistan, Akhtar
Mohammed Osmani, hefði fallið í
loftárás á þriðjudag. Tveir
liðsmenn uppreisnarsveita
talíbana féllu einnig í árásinni
sem bandaríski herinn gerði
nærri landamærum Pakistana.
Osmani er sagður hafa verið
náinn samstarfsmaður múllah
Omars, helsta leiðtoga talíbana,
og tengst Osama bin Laden.
Osmani mun hafa leitt talíbana í
suðurhluta Afganistans, en
töluverð átök hafa verið á því
svæði undanfarið.
Einn leiðtoga
talíbana fallinn
Sjópróf vegna strands
flutningaskipsins Wilson Muuga
fóru fram fyrir Héraðsdómi
Reykjaness í fyrradag. Fram kom
að ekki hefði aðeins sjálfstýring
skipsins bilað heldur einnig svo-
nefndur gírókompás sem gaf til
kynna að stefna skipsins væri sú
sem til var ætlast þrátt fyrir að
skipið hefði hrakist af leið vegna
hliðarvinds.
Fram kom við sjóprófið að yfir-
stýrimanni skipsins, sem var við
stjórnvölinn þegar slysið varð,
hafi ekki verið kunnugt um að
gírókompásinn hefði bilað fyrr í
mánuðinum og gert hafi verið við
hann 6. desember. Hefði hann
vitað það hefði hann vitaskuld
verið mun varari um sig.
Þá kom fram að skipverjar á
Wilson Muuga hefðu að beiðni
danska varðskipsins Tritons gert
klárt fyrir uppgöngu varðskips-
liða sem sendir voru yfir á gúm-
bát, en hefðu ekki óskað eftir því
og varað við því að afar erfitt væri
að komast um borð vegna öldu-
gangs. Eins og kunnugt er drukkn-
aði 25 ára danskur sjóliði við
björgunaraðgerðirnar.
Wilson Muuga færðist lítillega
nær landi í fyrrinótt en að sögn
Hávars Sigurjónssonar, upplýs-
ingafulltrúa Umhverfisstofnunar,
telja menn skipið hafa staðið af
sér það mikið hvassviðri og stór-
streymi að óhætt sé að treysta því
að það muni standa enn eftir jól.
Um tíu klukkustundir þarf til að
koma búnaði út í skipið til að dæla
olíunni burt og annað eins til dæl-
ingarinnar sjálfrar. Enn sem
komið er hafi veður verið of slæmt
til að hægt væri að athafna sig svo
lengi í einu. Vissulega hafi lægt
inni á milli en aldrei nógu lengi og
því verði beðið með aðgerðir fram
yfir jól nema alvarlegur olíuleki
geri vart við sig.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
flutti nokkra menn út í skipið í
gærmorgun til að koma upp sigl-
ingaljósum á skipinu og einstreym-
islokum í botn þess fyrir olíuna.
Mennirnir voru á skipinu í fáeinar
klukkustundir og á meðan fór þyrl-
an í könnunarflug að kanna hvort
olía hefði lekið úr skipinu. Einhver
svartolía hefur lekið úr botntönk-
um skipsins og lá taumur hennar í
átt til lands.
Skipið stefndi í aðra
átt en áttaviti sýndi
Bilaður áttaviti, sem gaf til kynna ranga stefnu Wilson Muuga, olli strandinu á
þriðjudagsnótt. Þetta kom fram í sjóprófi í fyrradag. Líklega verður beðið með
að dæla olíunni úr skipinu þangað til eftir jól. Svartolía hefur lekið úr skipinu.
Messur og helgistundir
hjá þjóðkirkjunni verða á milli sex
og sjö hundruð yfir hátíðarnar.
Í Reykjavík, Seltjarnarnesi og
Kópavogi verða um 160 messur og
helgistundir dagana 24. til 26.
desember og um áramót, í
kirkjum, á sjúkrahúsum, dvalar-
heimilum og víðar.
Víða verður samverustund í
kirkjum um eftirmiðdag í dag
fyrir börn sem reynist stundum
erfitt að þreyja daginn.
Um allt land er messað fyrir
fólk sem ekki getur sótt kirkju af
ýmsum ástæðum. Þannig er
helgihald um jól á sjúkrahúsum,
heilsugæslustofnunum og
fangelsum. Einnig verður sérstök
messa í kirkju heyrnarlausra.
Mörg hund-
ruð messur og
helgistundir
Nærri 120 óðir fílar
gerðu árás á hundrað þúsund
manna þorp norðaustantil á
Indlandi snemma á þriðjudags-
morgun. Flestir íbúanna í
þorpinu Hojai voru sofandi
þegar fílarnir komu æðandi ofan
úr fjallshlíðinni sem þorpið
stendur við. Að minnsta kosti
tveir þurftu að fara á sjúkrahús
vegna meiðsla sem hlutust af
atganginum.
Það tók um það bil fimm
klukkustundir að koma nærri 70
fílum út úr bænum, en hinum
tókst að safna saman á skólalóð
sem lögreglumenn og skógar-
verðir stóðu vörð um.
Á undanförnum árum hefur
sífellt verið þrengt meir að
búsvæðum fíla á þessum slóðum,
með þeim afleiðingum að þeir
leita inn í mannabyggðir í leit að
æti.
Óðir fílar gerðu
árás á þorpsbúa
Erlendur karlmaður
hefur verið dæmdur í sex mánaða
fangelsi fyrir að hafa skallað
annan mann og slegið hann í
andlit með glerglasi þannig að
töluverðir áverkar hlutust af.
Árásin átti sér stað á skemmti-
stað í Reykjavík. Dómurinn, sem
kveðinn var upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur, er skilorðsbundinn
til þriggja ára.
Árásarmaðurinn var jafnframt
dæmdur til að greiða fórnarlamb-
inu 150 þúsund krónur, auk um
360 þúsund króna í sakarkostnað.
Skallaði og sló
mann í andlitið
Elísabet II Englands-
drottning hefur ákveðið að sæma
írska rokkarann Bono, söngvara
sveitarinnar U2, heiðursriddara-
tign fyrir störf hans í tónlistar-
geiranum og baráttu hans fyrir
mannúðarmálum.
Bono mun taka við viðurkenn-
ingunni úr hendi breska sendi-
herrans á Írlandi snemma á
næsta ári. Hann fær hins vegar
ekki að kalla sig Sir Bono, eins og
Bítillinn Paul McCartney og fleiri
nafntogaðir menn, þar sem aðeins
er um heiðursriddaratign að
ræða. Sækja þurfti um sérstaka
undanþágu vegna málsins þar
sem Írar mega ekki taka við
konunglegum viðurkenningum
frá Bretum.
Bono verður
heiðursriddari
* Vindhraði er í metrum á sekúndu.
Kaupmannahöfn
Þórshöfn
Osló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Algarve
Krít
Las Palmas
8 skýjað
GLEÐILEG JÓL
Jæja, þá eru jólin
loks að ganga í garð
eftir illviðrasaman
veðurkafla að undan-
förnu.Viðgetumhugg-
að okkur við það að
ekki er að sjá illviðra-
kafla það sem eftir lifir
árs. Það verður þó
strekkingur í dag en
lægir með kvöldinu.
Yfirleitt verður hlýtt um
jólin og því verða þau
með rauðu sniði. Ég vil
nota tækifæriðogóska
lesendum öllum gleði-
legra jóla.
VEÐURHORFUR
Í BORGINNI Í DAG
Sunnan strekkingur.
Lægir í kvöld. Rigning
ogsíðarsmáskúrir.Hiti
4-8 stig,svalast íkvöld.
Yfirleitt 8-13 m/s.
5-13 m/s, úrkomulítið.
SigurðurÞ.Ragnarsson,
veðurfræðingur
6
8
6
6
7
8
8
10
6
9
7
3
9
10
10
13
8
8
13
16
9
10
3
3
2
2
5
5
3
3
3