Fréttablaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 20
Þ
egar ég var lítil sögðu
mamma og amma
mér svo margar
sögur af álfum sem
ég heillaðist algjör-
lega af,“ segir Flor-
ence Helga, sem á íslenska móður
en franskan föður. „Það sem heill-
aði mig sérstaklega við álfana var
að sögur þeirra minna helst á
ævintýri. Þeir birtast í draumum
og hjálpa mannfólkinu og það er
mjög áhugavert,“ segir Florence
Helga og heldur áfram: „Mennirn-
ir hjálpa álfunum oft líka þrátt
fyrir að geta ekki séð þá. Mér
finnst álfasögurnar alveg frábær-
ar fyrir hugmyndaflugið enda búa
álfarnir úti í sveit og sögurnar eru
mjög margvíslegar.“ Florence
Helga minnir á að álfarnir séu ekki
alltaf góðir við mennina því þeir
geti líka verið ruddalegir. „Amma
mín sá ýmislegt í draumum en það
er ættgengt,“ segir hún og játar
því að stundum sjái hún hluti líka
sem aðrir sjá ekki og bætir því við
að hún trúi sjálf á álfa. Florence til-
einkar einmitt bókina Gígju ömmu
sinni, sem er nýlátin.
Þrátt fyrir að hafa aldrei búið á
Íslandi þá hefur Florence Helga
komið hingað til lands á hverju ári
frá því hún fæddist enda á hún
alla móðurættina hér. „Mig langar
mikið til að búa einhvern tíma á
Íslandi en það er dálítið erfitt af
því maðurinn minn er franskur.
Það er samt aldrei að vita ef hann
fengi góða vinnu,“ segir Florence
Helga og bætir því við að í hjarta
sínu líði henni meira eins og
Íslendingi en Frakka.
Florence Helga segist halda í
íslenskar hefðir varðandi jóla-
haldið enda finnist henni íslensk
jól mun meira spennandi en
frönsk. „Íslensk jól eru allt öðru-
vísi en hjá Frökkum. Í Frakklandi
er ekki eins mikið skreytt og mér
finnst líka að trúin gleymist því
allt sem fólk hugsar um eru gjafir
og kjöt. Mér finnst að trúin eigi að
spila þar stærra hlutverk. Fólk fer
ekki mikið í kirkju eða hlustar á
jólalög og sálma,“ segir hún en
telur það þó eitthvað vera að
breytast.
Heilluð af álfum
Florence Helga Thibault er hálfíslensk og hálffrönsk en hefur búið í París
alla sína ævi. Hún hefur komið til Íslands á hverju sumri og heillaðist af
álfasögunum sem móðir hennar og amma sögðu henni. Nú hefur hún gefið
út bókina Álfasögur Jóns Árnasonar, ásamt Önnu Kristínu Ásbjörnsdóttur,
sem endursagði sögurnar en Florence Helga myndskreytti.