Fréttablaðið - 06.01.2007, Side 13
TURBO DIESEL INTERCOOLER
Flest bendir til þess að ferðaþjónustan hafi dafnað
vel á árinu 2006. Gistinóttum á hótelum fjölgaði um
23 prósent í nóvember 2006 frá því í sama mánuði
árið áður, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í
gær. Alls voru 70.900 gistinætur á landinu í nóvem-
ber síðastliðnum. Gistinóttum fjölgaði í öllum lands-
hlutum nema á Suðurlandi, þar sem þeim fækkaði um
tuttugu prósent. Hlutfallslega mest varð aukningin á
Austurlandi, um 45 prósent milli ára.
Ferðamálastofa birti fyrr í vikunni tölur um far-
þega um Keflavíkurflugvöll á nýliðnu ári. Sýndu þær
að um völlinn fóru rúmlega tvær milljónir farþega á
árinu. Er það í fyrsta skipti sem tveggja milljóna
múrinn er rofinn. Fjölgunin milli ára nam rúmum ell-
efu prósentum. Athygli vekur að áfram- og skiptifar-
þegum fækkaði um 21.500 á meðan farþegum á leið
til og frá landinu fjölgaði verulega.
Ferðageirinn óx ört í fyrra
Valgeir Bjarnason, sem starfaði
sem deildarstjóri tekjustýringar
og áætlunar hjá Flugfélagi Íslands,
hefur verið ráðinn tekjustjóri Ice-
land Express. Þessi ráðning gæti
verið liður í því að búa fyrirtækið
undir samkeppni við Flugfélag
Íslands í innanlandsflugi, til Akur-
eyrar og Egilsstaða, eins og komið
hefur fram.
Matthías Páll Imsland, forstjóri
Iceland Express, fagnar komu
Valgeirs og telur að þetta styrki
fyrirtækið til muna. „Við erum
alltaf að leita að góðu fólki og
höfum augun opin,“ segir Matthí-
as Páll spurður um hvort Iceland
Express muni leita frekar í her-
búðir Flugfélagsins eftir starfs-
fólki.
Iceland Express tek-
ur frá Flugfélaginu
Um áramótin varð stærsta verk-
fræðistofa landsins til með sam-
einingu VGK og Hönnunar. Hjá
sameinuðu fyrirtæki vinna 240
starfsmenn á starfsstöðvum í
Reykjavík, á Akranesi, Akureyri,
Egilsstöðum, Reyðarfirði, Kirkju-
bæjarklaustri, Hvolsvelli og Sel-
fossi. Framkvæmdastjórar nýja
fyrirtækisins eru tveir, þeir Eyj-
ólfur Árni Rafnsson, sem er
ábyrgur fyrir innlendum verk-
efnum, og Runólfur Maack, sem
ber ábyrgð á verkefnum fyrir-
tækisins erlendis.
„Með þessu erum við að búa til
öfluga sóknareiningu þar sem
fyrst og fremst er byggt á því góða
fólki sem starfað hefur hjá þess-
um fyrirtækjum og við teljum
okkur nú vel í stakk búin til að
keppa við bæði innlend og erlend
ráðgjafarfyrirtæki, bæði hérlend-
is og erlendis,“ segir Runólfur
Maack framkvæmdastjóri í frétta-
tilkynningu.
VGK og Hönn-
un sameinast
Brimborg hf. afhenti á liðnu ári
um 4.600 bíla, þar af 2.500 nýja, og
hefur sala að sögn fyrirtækisins
aldrei verið jafngóð þar á bæ.
„Jafnframt afhenti Brimborg á
árinu yfir 150 nýja vörubíla, vinnu-
vélar og bátavélar og er það einnig
met,“ segir Brimborg og kveður
mikinn stíganda hafa verið í sölu
hjá fyrirtækinu undanfarin ár.
Brimborg segir nýliðið ár það
næstbesta í bílasölu hér frá upp-
hafi, en á árinu hafi alls selst
19.851 nýr bíll. „Aðeins árið 2005
státaði af betri sölu en þá seldust
20.578 nýir bílar. Athygli vekur að
þriðja besta árið frá upphafi í bíla-
sölu er árið 1987 en þá seldist
18.081 nýr bíll.“
Brimborg spáir 26 prósenta
samdrætti í sölu nýrra bíla á þessu
ári og gerir ráð fyrir því að 14.697
nýir bílar seljist. „Verður því bið á
að met ársins 2005 verði slegið,“
segir Brimborg.
Metár að baki
hjá Brimborg
Kristinn Albertsson tekur við
starfi fjármálastjóra Samskipa
þegar hann lætur af störfum sem
fjármálastjóri
Alfesca eftir ell-
efu ára starf.
Kristni líst
vel á þær breyt-
ingar sem eru í
aðsigi og verk-
efnið sem bíður
hans. „Ég hafði
áhuga á að
breyta til eftir
langt og gott
starf hjá Alfesca. Fyrri störf
munu nýtast vel í nýju starfi og
ég þekki til stjórnenda Sam-
skipa.“
Hlutverk Kristins verður meðal
annars að samþætta fjármál Sam-
skipasamstæðunnar og verður
hann með skrifstofu á Íslandi og í
Rotterdam.
Kristinn siglir
til Samskipa