Fréttablaðið - 06.01.2007, Page 85
Margar jurtir voru áður fyrr not-
aðar til lækninga og ýmis lyf
nútímans njóta góðs af gamalli
kunnáttu um lækningajurtir. Þá
voru jurtir líka notaðar til
athafna sem vel má flokka undir
hjátrú og galdur. Hér verða ein-
ungis nefnd nokkur dæmi.
Klóelfting vex allra grasa fyrst
Draumagras, eða klóelfting, er
sagt vaxa allra grasa fyrst og á
það að vera fullsprottið 16. maí.
Þann dag skulu menn taka það,
setja inn í Biblíuna og geyma í
guðspalli 16. sunnudags eftir
trínitatis. Því næst skal láta það í
hársrætur sér fyrir svefninn og
dreymir mann þá það sem maður
vill vita. Einnig er hægt að mylja
draumagrasið saman við messu-
vín og taka inn á fastandi maga á
hverjum morgni. Þessi blanda
ver menn gegn holdsveiki. Vilji
menn aftur á móti verjast inn-
vortis kveisum skal taka drauma-
grasið snemma morguns, bíta
það úr hnefa og snúa sér á móti
austri.
Baldursbrá segir til um tryggð
Baldursbráin er einnig til margra
hluta nytsamleg. Vilji stúlka til
að mynda komast að því hvort
ástvinur hennar sé henni trúr,
getur hún lagt baldursbrá undir
borðdúk án þess að hann viti og
boðið honum síðan að þiggja góð-
gerðir. Gangi honum vel að
kyngja því sem honum er boðið
er hann stúlkunni trúr, en svelg-
ist honum á er hann svikull.
Reynandi er að láta konu liggja
eða sitja á baldursbrá gangi
henni illa að fæða. Einnig er
hægt að láta hana drekka bald-
ursbrá í víni.
Baldursbrá notuð við kvensjúk-
dómum
Baldursbráin er líka alþekkt
lækningaplanta. Hún var aðal-
lega notuð við kvensjúkdómum;
átti að leiða tíðir kvenna og leysa
dáið fóstur frá móður, eftirburð
og staðið blóð. Þá var baldurs-
bráin dugandi við tannpínu og
áttu menn þá að leggja marða
baldursbrá á eyrað þeim megin
sem verkurinn var. Til að lækna
höfuðverk var heillaráð að binda
baldursbrá um höfuðið. Baldurs-
brárte var talið hjartastyrkjandi,
svitadrífandi og ormdrepandi.
Brönugras fyrir ástarlífið
Brönugras var talið einkar nota-
drjúgt til þess að örva ástir
manna og losta. Einnig er sagt að
það geti stillt ósamlyndi hjóna
sofi þau á því. Brönugrasið hefur
gengið undir ýmsum nöfnum,
svo sem hjónagras, friggjargras,
vinagras, elskugras eða graðrót
og segja nöfnin sína sögu.
Krafturinn er í rótinni
Gott þykir að drekka seyðið af
brönugrasi. Aðalkrafturinn er í
rótinni og verður því að gæta
þess vel að hún sé heil þegar
jurtin er tekin upp. Rótin er tví-
skipt og sagt að þykkari helm-
ingurinn hafi þá náttúru að auka
losta og gleði manna, en hinn
grennri auki hreinlífi. Öðrum
helmingi brönugrasrótar skal
lauma undir kodda þess sem
maður vill ná ástum hjá án þess
að hann viti. Sá hinn sami skal
síðan látinn sofa með rótina
undir höfðinu en sjálfir eiga
menn að sofa með hinn helming-
inn.
Lækjasóley kemur upp um ótrúa
Margvísleg trú er til um lækja-
sóley eða hófsóley. Sé hún lauguð
lambsblóði, úlfstönn lögð við
hana og lárviður vafinn utan um
getur enginn mælt til manns
styggðaryrði. Hún dugar líka vel
leiki grunur á því að konur haldi
fram hjá eiginmönnum sínum.
Þá er lækjasóley komið fyrir í
húsinu þar sem ástarleikurinn
fer fram og festist konan þá þar
inni og kemst ekki út fyrr en
lækjasóleyin er tekin burt.
Burnirót góð við innvortis mein-
um
Burnirót er gamalkunnug lækn-
ingajurt. Af stönglinum var soðið
seyði og smyrsl. Seyðið var talið
gott við hausverk, niðurgangi,
nýrnaveiki, blóðsótt, gulu og
öðrum innvortis meinum, en
smyrslin þóttu græðandi. Auk
þessa var burnirótin talin gott
meðal við hárlosi eins og önnur
nöfn hennar, greiðurót og höfuð-
rót, benda til. Gengi konu illa að
fæða var einnig reynandi að
leggja burnirót í rúmið hjá henni
svo að jurtin snerti hana bera.
Maríuvöndur veitir hulinshjálm
Sé maríuvöndur, eða kveisuskúf-
ur, borinn í lófa varnar hann því
að reiðhestur manns þreytist.
Einnig er frá því greint í þjóð-
sögum að maríuvöndurinn, sem
sumir kalla hulinshjálmsgras,
vaxi í kirkjugörðum. Taka skal
jurtina um messutíma en skvetta
fyrst yfir hana vígðu vatni. Gæta
verður þess að snerta ekki maríu-
vöndinn með berum höndum og
láta ekki sól skína á hann. Geyma
skal jurtina í hvítu silki og helg-
uðu messuklæði. Þegar menn
vilja svo varpa yfir sig hulins-
hjálmi skulu þeir gera kross-
mark umhverfis sig í fjórar áttir,
bregða svo maríuvendinum yfir
sig og mun þá enginn sjá þá. Ann-
ars var maríuvöndurinn einnig
talinn alhliða lækningajurt.
Sýkigras til að ná ástum
Sýkigras má nota til að ná ástum
stúlku sé hún til þess treg. Gæta
verður þess að tína jurtina milli
Jónsmessu og Maríumessu,
snemma morguns, áður en fugl-
ar fljúga upp. Því næst verða
menn sér úti um lokk úr hári
stúlkunnar, saxa hann smátt
saman við grasið, blanda með
hunangi og gera úr deig og baka
við eld. Þá á að gefa stúlkunni að
borða baksturinn og mun hún við
það fá óslökkvandi ást á manni.
Sama gagn gerir umfeðmingur
því sé hann látinn undir höfuð
sofandi stúlku fær hún gríðar-
lega ást á þeim sem það gerir.
Hér hafa einungis verið nefnd
nokkur dæmi um jurtir sem not-
aðar hafa verið til lækninga og
galdra en mun fleiri dæmi mætti
taka.
Símon Jón Jóhannsson þjóð-
fræðingur.
Hvaða íslensku jurtir eru
notaðar til lækninga?
„ Ótrúlega fersk, fyndin og notaleg.“
- Sæbjörn Valdimarsson, Mbl
- Ekkert hlé á góðum myndum
Gullnu reglur Græna ljóssins
Ekkert hlé
Myndin sýnd í einum rykk
Minna af auglýsingum
Sýning myndarinnar byrjar fyrr
Engin trufl un
Miðasölu lýkur þegar sýning myndar hefst321
KLIPPIÐ HÉR!
www.graenaljosid.is — Skráðu þig á póstlistann og þér verður boðið á forsýningar allra mynda Græna ljóssins
Lesendur Fréttablaðsins fá 2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar.
Framvísaðu þessari úrklippu í miðasölunni til að fá tilboðið. Tilboðið gildir föstudag, laugardag og sunnudag á allar sýningar.
2 FYRIR 1 ALLA HELGINA
Á LITLU BESTU MYND ÁRSINS FYRIR LESENDUR FRÉTTABLAÐSINS*
*Tilboðið gildir föstudag, laugardag og sunnudag á allar sýningar gegn framvísun úrklippunnar að neðan.
LITLA UNGFRÚ SÓLSKIN SÝND Í REGNBOGANUM OG SMÁRABÍÓI
„ Ljúfsár og yndisleg!“
- Sigríður Pétursdóttir, Rás 1