Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 25
Mikið hefur verið lagt í endur-
bætur á Mini-verksmiðjunum.
Nú er framleiðslan komin upp í
240.000 bíla á ári.
Mini-bíllinn er framleiddur á
þremur stöðum í Bretlandi: Hams
Hall, Oxford og Swindon. Verk-
smiðjurnar þrjár, sem kallaðar
eru Mini-framleiðsluþríhyrning-
urinn, eru í eigu BMW og þótti
mörgum Bretum súrt í broti þegar
Mini-merkið var selt úr landi árið
2000. Ekki skánaði það þegar í ljós
kom að kaupandinn var þýskur.
Hver Mini-bíll inniheldur hluta
frá öllum verksmiðjunum. Í Plant
Hall er vélin framleidd, í Swindon
skrokkur og skel bílanna og öllu er
svo skellt saman í Oxford. Sæti,
mælaborð og slíkt er svo framleitt
af smærri undirverktökum sem
flestir eru í kringum Oxford.
Verksmiðjurnar þrjár hafa
gengið í gegnum mikla endurnýj-
un á síðustu árum. Kostnaðurinn
við þessar breytingar var 2,6 millj-
arðar sem komu beint úr kassa
BMW. Árangurinn er aukin fram-
leiðslugeta og skilvirkni sem á að
skila sér í aukinni samkeppnis-
hæfni. Enn fremur segja talsmenn
BMW að fyrirkomulagið tryggi að
hægt sé að verða við óskum mark-
aðarins á mun sveigjanlegri hátt
og hægt að breyta stórum pöntun-
um með einungis sjö daga fyrir-
vara.
Um 6.800 manns vinna í Mini-
verksmiðjunum og er framleiðslu-
getan 240.000 bílar á ári. Þetta
þýðir að hver starfsmaður smíðar
35 bíla á ári og að á hverjum degi
rúlla 658 nýir Mini-bílar af færi-
bandinu fullkláraðir og tilbúnir á
götuna.
Vélar og menn vinna saman
Ekkert lát er á sókn Formúlu 1
í Asíu. Nú vilja Indverjar vera
með.
Formúla 1 er stöðugt að verða vin-
sælli í Asíu. Svar stjórnenda For-
múlunnar við áhuganum er að
fjölga keppnum í álfunni. Keyrt
verður í Suður-Kóreu árið 2010,
sögusagnir eru uppi þess efnis að
yfirvöld í Singapúr séu hársbreidd
frá því að fá keppni til sín, og nýj-
asta viðbótin er Nýja-Delí á Ind-
landi.
Lengi hefur staðið til að keppa
á Indlandi en illa hefur gengið að
sameinast um staðsetningu. Þau
vandræði virðast vera að baki og
geta samningaviðræður því farið
á næsta stig.
Gangi allt þetta eftir verða
keppnir í Asíu orðnar átta, í nýju
löndunum þremur auk Tyrklands,
Barein, Malasíu, Japan og Kína
þar sem þegar er keppt. F1 keppn-
ir í Asíu verða þá orðnir jafnmarg-
ir og í Evrópu, það er að segja mis-
takist Portúgölum að fá kappakstur
til Portimao í suðurhluta landsins
eins og þeir reyna nú.
Delí næst á
dagskrá F1