Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 4
4 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR
GenGið 17.01.2007
Gjaldmiðlar kaup sala
Heimild: seðlabanki Íslands
125,2762
GenGisvísitala krónunnar
70,37 70,71
138,37 139,05
90,88 91,38
12,192 12,264
10,911 10,975
10,031 10,089
0,5832 0,5866
104,92 105,54
Bandaríkjadalur
sterlingspund
evra
dönsk króna
Norsk króna
sænsk króna
japanskt jen
sdr
Ég er sáttur við þessa
niðurstöðu og tel nefnd-
ina hafa dregið saman mikið
efni sem sé góður grunnur til að
vinna á áfram.
Jón KristJánsson
formaður stjórNarskrárNefNdar
vIðskIpTI Gengi hlutabréfa í fjár-
festingarfélaginu FL Group hefur
hækkað um tæp nítján prósent á
einum mánuði, þar af um 13,3 pró-
sent frá áramótum. Ætla má að
markaðsvirði félagsins hafi því
aukist um 27 milljarða króna það
sem af er árinu.
Samanlagður gengishagnaður
af stærstu eignarhlutum FL, í AMR
Corporation, stærsta flugrekstrar-
fyrirtæki heims, og í Glitni nemur
um einum milljarði króna á hverj-
um degi frá áramótum.
AMR hefur skotist upp um
þriðjung frá áramótum og áætlar
Greining Glitnis að óinnleystur
gengishagnaður FL af 5,98 pró-
senta hlut nemi 8,9 milljörðum
króna. Lækkandi olíuverð kemur
sér vel fyrir rekstur flugfélaga um
allan heim.
Þá reiknar greiningardeildin
með því að hagnaður af þrjátíu
prósenta hlut FL í Glitni geti verið
um sjö milljarðar króna frá árs-
byrjun.
FL Group er annar stærsti hlut-
hafinn í Finnair, sem hefur hækkað
um fimm prósent frá áramótum.
Þar fellur eflaust til rúmur einn
milljarður í gengishagnað.
Þá kunna almennar verðhækk-
anir á innlendum hlutabréfamark-
aði að hafa haft áhrif til hækkunar
á virði FL. Félagið heldur utan um
hluti í félögum á borð við Actavis,
Landsbankanum, Mosaic og
Straumi, sem flestöll hafa átt góðu
gengi að fagna á nýju ári. - eþa
FL Group er næststærst í Finnair
eignarhlutir í amr, finnair og Glitni hafa
skilað miklum gengishagnaði á árinu.
Hlutabréf í Fl Group hækka um tæpan fimmtung á einum mánuði:
Græðir milljarð á degi hverjum
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Vest-
mannaeyjum hefur ekki upplýst
hver stóð á bak við röð af íkveikj-
um í bænum frá árinu 2000, þegar
kveikt var í frystikistu Ísfélags-
ins, til ársins 2006. Eftirlit með
mannaferðum að nóttu til hefur
verið aukið í bænum eftir að
kveikt var í fiskimjölsverksmiðju
Ísfélagsins hinn 16. desember síð-
astliðinn.
Enginn liggur undir grun í mál-
inu að svo stöddu. Að sögn lögregl-
unnar er málið enn í rannsókn og
verður haldið opnu. Ef kveikt
verður í aftur í Eyjum verður
íkveikjan sett í samband við þetta
mál að sögn lögreglunnar. - ifv
íkveikjurnar í eyjum:
Enginn liggur
undir grun
sTjóRnMÁL Kjörnefnd Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurkjördæmi
hefur lokið við að stilla upp lista
sem lagður verður fyrir kjör-
dæmisþing sem
kemur saman á
sunnudag. Í
prófkjöri fengu
þeir sem lentu í
fimm af efstu sex
sætunum
bindandi kosn-
ingu.
Sveinn
Pálsson, formaður kjörnefndar-
innar, segir að röðin úr prófkjör-
inu haldi sér, í það minnsta fyrir
efstu sex sætin. Árni M. Mathie-
sen hafnaði í fyrsta sæti og Árni
Johnsen í öðru sætinu. Kjartan
Ólafsson fékk ekki bindandi
kosningu í þriðja sætið, en í
tillögu kjörnefndar heldur hann
sætinu. - bj
Örlög Árna Johnsen ráðast:
Kosið um tillögu
á sunnudaginn
árni Johnsen
FyRIRLEsTUR Systurnar Halla og
Ragna Ólafsdætur munu í kvöld
flytja erindi um íslamska menn-
ingu í Bæjarbókasafni Ölfuss í
Þorlákshöfn. Halla og Ragna, sem
eru dætur Ólafs Áka Ragnarsson-
ar bæjarstjóra, hafa stundað nám
í Egyptalandi. Að því er segir á
vefsetri sveitarfélagsins Ölfuss
hafa systurnar lært arabísku og
fræðst um íslamska menningu á
meðan á dvöl þeirra í Egyptalandi
hefur staðið. Í nóvember síðast-
liðnum heimsótti bæjarstjórinn
systurnar í Egyptalandi og þá var
meðfylgjandi mynd tekin. Erindi
Höllu og Rögnu hefst klukkan sex
síðdegis. - gar
Bæjarstjóradætur í Ölfusi:
Systur fræða
íbúa um íslam
í eGyptaLandi Halla og ragna ásamt
eldri systur sinni regínu og föður sínum
við píramídana.
sTjóRnMÁL Samþykki tveir þriðju
hlutar þingmanna frumvarp til
stjórnskipunarlaga verður því
vísað til þjóðaratkvæðis án þess að
því fylgi þingrof og kosningar.
Þannig verður þjóðin í raun
stjórnarskrárgjafinn.
Stjórnarskrárnefnd leggur til að
þessi breyting verði gerð á
stjórnarskránni.
Nefndin hóf störf í ársbyrjun
2005 og var ætlað að leggja til
heildarendurskoðun á stjórnar-
skránni. Að sögn Jóns Kristjáns-
sonar nefndarformanns var sú
afstaða uppi innan nefndarinnar að
þverpólitískt samkomulag yrði að
ríkja um allar tillögur að breyting-
um og mátu menn það svo að málið
væri ekki nógu þroskað til að slík
samstaða tækist. Þá var lögð
áhersla á að leggja til heildar-
endurskoðun en ekki breytingar á
einstaka greinum.
„Ég er sáttur við þessa niður-
stöðu og tel nefndina hafa dregið
saman mikið efni sem sé góður
grunnur til að vinna á áfram,“ segir
Jón.
Össuri Skarphéðinssyni finnst
mikilvægt að breytingin nái fram
að ganga enda felist í henni leiðar-
vísir um hvernig breyta beri
stjórnarskránni í framtíðinni. Hann
lítur líka svo á að í þessu felist
áfangi í átt að almennum þjóðar-
atkvæðagreiðslum um mál. „En ég
væri ekki ærlegur ef ég segði ekki
hreint út að það eru mér töluverð
vonbrigði að ekki tókst að þoka
málum lengra.“ Hann segist ekki
hafa fellt sig við þá nálgun að nauð-
synlegt væri að leggja til heildar-
endurskoðun. „Ég taldi að við
ættum að reyna að fullvinna þau
ákvæði sem líklegt var að við
gætum náð samstöðu um.“ Í því
sambandi nefnir Össur ákvæði um
hugsanlegt framsal á fullveldi,
þjóðaratkvæðagreiðslur og sam-
eignarákvæði þjóðarinnar á sam-
eiginlegum auðlindum.
Allir sjö kaflar stjórnarskrár-
innar og greinarnar 81 voru tekin
til skoðunar í nefndinni en að sögn
Jóns var helst dvalið við þá fjóra
kafla sem fjalla um Alþingi, for-
seta, ríkisstjórn og dómstóla. „En
26. greinin um synjunarvald for-
seta var miðlægur punktur, menn
skiptust á skoðunum um hana án
þess að ná niðurstöðu og það var
mesta deilumálið,“ segir Jón. Uppi
hafi verið gjörólík sjónarmið um
hvernig fara eigi með ákvæðið.
Jón segist ekki hafa búist við að
verkið yrði auðvelt enda hófst það í
sérstöku andrúmslofti. „Hér voru
illvígar deilur um stjórnarskrána
og synjunarvald forseta sem ristu
mjög djúpt í þinginu en vinnuand-
inn í nefndinni hefur verið ágætur
þrátt fyrir skiptar skoðanir um
ýmsa hluti.“
bjorn@frettabladid.is
Synjunarvald forseta
veigamest deiluefna
Stjórnarskrárnefnd leggur til að ein breyting verði gerð á stjórnarskrá lýðveldis-
ins. Lýtur hún að því að færa ákvörðunarvald um stjórnarskrárbreytingar út til
þjóðarinnar. Nefndarmenn komu sér ekki saman um að gera aðrar breytingar.
stJórnarsKrárneFnd
jón kristjánsson
Þorsteinn pálsson
Birgir ármannsson
Bjarni Benediktsson
Guðjón a. kristjánsson
jónína Bjartmarz
kristrún Heimisdóttir
steingrímur j. sigfússon
Össur skarphéðinsson
stJórnarsKrárneFnd Nefndin leggur til að ekki þurfi að koma til þingrofs vegna
stjónarskrárbreytinga. tveir þriðju hlutar þingmanna geta samkvæmt því vísað breyt-
ingum til þjóðaratkvæðis.
sTjóRnMÁL Umræður um frum-
varpið um Ríkisútvarpið ohf.
hófust í gærmorgun og stóðu enn
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Fyrri tvö kvöld vikunnar
stóðu umræður til tólf á mið-
nætti.
Önnur mál hafa ekki verið
sett á dagskrá Alþingis, hvorki
hefðbundin þingmál né umræður
utan dagskrár eða fyrirspurnir.
Stjórnarandstaðan hefur
gagnrýnt að önnur mál fáist ekki
rædd en stjórnarliðar svarað því
til að samkomulag um þessa
tilhögun hafi verið gert á
aðventunni. Því neita stjórnar-
andstæðingar og segja að um það
eitt hafi verið samið að RÚV
málinu yrði frestað fram yfir
áramót - ekki að önnur mál og
hefðir yrðu að víkja. - bþs
Frumvarpið um ríkisútvarpið:
Annað kemst
ekki á dagskrá
FERðIR Íslenskir ferðamenn þurfa
vegabréfsáritun til að ferðast til
ákveðinna landa í Karíbahafi á
tímabilinu 15. janúar til 15. maí á
þessu ári. Ástæðan er hertar
öryggiskröfur vegna Cricket
World Cup 2007.
Löndin eru Antígva og
Barbúda, Barbadoseyjar,
Dóminíka, Grenada, Gvæjana,
Jamaíka, Sankti Kristófer og
Nevis, Sankti Lúsía, Sankti
Vinsent og Grenadíneyjar og
Trínidad og Tóbagó. - sþs
íslendingar þurfa vegabréfsáritun:
Öryggi hert í
Karíbahafi